Fréttablaðið - 24.06.2009, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2009 9ísland er land mitt ● fréttablaðið ●
Krakkar hafa misgaman af því að
sækja söfn með foreldrum sínum
og ekki allra tebolli að skoða lista-
verk sem þeir eldri hafa kannski
meira gaman af. Það er því um að
gera að nýta þau skemmtilegu úti-
listasöfn sem borgin á, svo sem Ás-
mundarsafn og Listasafn Einars
Jónssonar þar sem styttur þeirra
standa úti við. Hægt er draga alla
fjölskylduna þangað í feluleiki
eins og Eina krónu og nýta stórar
stytturnar í afbragðs felustaði og
fræða ungviðið um leið um lista-
mennina.
Fræðandi feluleikur á útilistasöfnum
Boðið er upp á kynningarafslátt á
völdum dagsetningum í júlí á Hótel
Hallormsstað en verðið gildir fyrir
tveggja manna herbergi með baði
og morgunverði.
Afslátturinn er gefinn í til-
efni af því að nýir eigendur hafa
nú tekið við Hótel Hallormsstað
en snemma árs 2008 keypti Grái
hundurinn ehf. meirihlutaeign í
Hallormi, sem er gistiálma við
grunnskólann. Á hótelinu eru 35
herbergi, öll með sér salernis- og
sturtuaðstöðu, og beint á móti hót-
elinu er sundlaug sem opin er yfir
sumartímann.
Hægt er að bóka í síma 471 2400
eða að senda tölvupóst á hotel701@
hotel701.is. Nánari upplýsingar má
auk þess finna á vefsíðunni http://
hotel701.is. - hs
Afsláttur í júlí
Hallormsstaður er 25 kílómetra suður
af Egilsstöðum, sem tekur innan við
hálftíma að aka. Þar er bæði gróðursælt
og milt veðurfar. MYND/SMK
Listasafn Einars Jónssonar er stórskemmtilegur útivistarstaður.
Gönguferð frá Aðalvík til Hest-
eyrar er á meðal dagsferða sem
Vesturferðir bjóða upp á í sumar.
Aðalvík er þrungin sögu og er til
dæmis umkringd tveim herstöðv-
um úr seinna stríði en Hesteyri er
merkileg fyrir margra hluta sakir.
Þar byggðist upp þyrping húsa á
þarsíðustu öld þegar Norðmenn
byggðu þar síldar- og hvalveiðistöð
árið 1894 og standa mörg þeirra
enn í dag. Þar hefur auk þess orðið
æ gróðursælla eftir að beit sauð-
fjár var hætt og er fuglalífið ein-
staklega fjölskrúðugt.
Á heimasíðu Vesturferða www.
vesturferdir.is segir að ferðin sé
tilvalin fyrir þá sem vilja fá örlítið
sýnishorn af því hvernig fjöllin,
húsin, gróðurinn og fjarlægðin
frá GSM-sambandinu spila saman.
Lagt er af stað sjóleiðina frá Ísa-
firði að Sæbóli í Aðalvík klukk-
an níu að morgni göngudags og er
Staðardalurinn genginn að kirkju
sem þar stendur. Gengið er þaðan
upp Fannadal og inn Hesteyrar-
brúnir að Hesteyri. Á leiðinni sést
vel um Djúp, Jökulfjörð og upp á
Drangajökul.
Gangan, sem er miðlungserfið,
er fjórtán kílómetra löng og þar
af er um 400 metra hækkun með
nokkuð grófu undirlagi. - ve
Gengið um
söguslóðir
Læknishúsið er á meðal þeirra húsa sem
vitna um lífið á Hesteyri á árum áður.