Fréttablaðið - 15.07.2009, Síða 2
2 15. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
ALÞINGI Ekki er víst að atkvæði
verði greidd í dag um tillögu
meirihluta utanríkismálanefnd-
ar um aðildarumsókn að Evrópu-
sambandinu.
„Ef ég horfi á þetta með bjart-
sýnisgleraugunum þá vona ég að
við klárum þetta annað kvöld [í
kvöld],“ segir Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, forseti Alþingis.
Það sé þó ekki víst, og geti dreg-
ist fram á fimmtudag.
Rætt var um Evrópumálin á
Alþingi fram á kvöld í gær líkt
og undanfarna daga. Ragnheiður
Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði ljóst að hin
mörgu álitamál sem fyrir lægju
yrðu aðeins skýrð í aðildarvið-
ræðum við Evrópusambandið.
Hún sagði það hins vegar miður
að ekki hefði náðst breið sam-
staða um málið þvert á flokks-
línur.
Pétur H. Blöndal, samflokks-
maður Ragnheiðar, fór næstur í
pontu og sagði augljóst að Ragn-
heiður vildi í Evrópusambandið,
og gagnrýndi hana fyrir að hafa
ofurtrú á breytingartillögu utan-
ríkismálanefndar um að tekið
yrði tillit til tiltekinna sjónar-
miða við aðildarviðræðurnar.
Líklegur stuðningur Ragnheið-
ar við tillöguna eykur enn frekar
líkurnar á því að hún hljóti sam-
þykki á þinginu. Eins og fram
hefur komið í Fréttablaðinu mun
meirihlutinn fyrir aðildarumsókn
vera nokkuð tryggur fyrir. - sh
LÖGREGLUMÁL Einn var fluttur á
slysadeild um klukkan tvö í gær
eftir að hafa ekið fólksbíl sínum
inn í hlið sjúkrabíls í forgangs-
akstri á gatnamótum Njarðargötu
og Hringbrautar.
Ökumaður fólksbílsins mun þó
ekki hafa slasast alvarlega, að
sögn varðstjóra lögreglu.
Sjúkrabíllinn sem ekið var á valt.
Í honum voru tveir sjúkraflutnings-
menn, annar ók en hinn sat í fram-
sæti. Þeir sluppu báðir með minni
háttar meiðsl. Enginn sjúklingur
var í bílnum, sem var á leið í útkall
í Vesturbæ. Bílarnir skemmdust
báðir töluvert í árekstrinum og
voru dregnir af vettvangi. - sh
Einn fluttur á sjúkrahús með minni háttar meiðsl eftir árekstur við sjúkrabíl:
Keyrði á sjúkrabíl og slasaðist
AF SLYSSTAÐ Maðurinn var fluttur á
börum í sjúkrabíl en mun þó ekki hafa
verið mikið meiddur. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
VERSLUN Erlendir ferðamenn
kaupa nú dýr sólgleraugu sem
aldrei fyrr, að sögn Gunnars Guð-
jónssonar í Gleraugnamiðstöð-
inni við Laugaveg.
Gunnar segist selja nokkur sól-
gleraugu á tugi þúsunda á degi
hverjum, og þótt verslunin hafi
alltaf selt nokkuð af sólgleraug-
um hafi salan aldrei verið neitt í
líkingu við það sem verið hefur
í sumar. Salan er þó líklega ekki
veðrinu að þakka, enda sólin
ekki látið sjá sig svo mikið, held-
ur er gengi íslensku krónunnar
hagstæðara fyrir útlendinga en
nokkru sinni fyrr. - sh
Ferðamenn kaupglaðir:
Sólgleraugu
seljast grimmt
LÖGREGLUMÁL Mildi þykir að ungur
maður hafi ekki beðið bana þegar
bíll sem hann sat í sprakk í tætlur
skammt utan við Akranes aðfara-
nótt mánudags. Maðurinn, sem
er tæplega tvítugur, hafði verið
að sniffa gas úr níu kílóa gaskút í
bílnum og hugðist svo kveikja sér
í sígarettu. Þá sprakk bíllinn.
Sprengingin var afar öflug og
rifnaði meðal annars hurðin far-
þegamegin af bílnum og þeyttist
tvo metra frá honum. Þá fannst
afturrúðan í 25 metra fjarlægð og
afturhluti bílsins, með ljósabúnað-
inum, losnaði af honum. Maðurinn
slasaðist nokkuð. Hann var fluttur
á sjúkrahús. - sh
Afturrúðan flaug 25 metra:
Sniffaði gas og
bíllinn sprakk
KÍNA, AP Baráttuhópar Úígúra í
Mið-Asíuríkjum hvetja nú liðs-
menn sína og stuðningsfólk til
að hafa hægt um sig og forðast
fjöldamótmæli.
Þetta er gert af ótta við að
átökin breiðist út til nágranna-
landanna og stjórnvöld í þeim
löndum muni taka hart á slíkum
mótmælum af ótta við viðbrögð
kínverskra stjórnvalda.
Allt að hálf milljón Úígúra býr
í fyrrverandi Sovétlýðveldum
vestan við Kína. - gb
Úígúrar í Mið-Asíu:
Óttast hörku
Kínastjórnar
Halla, fenguði ykkur ekki bara
kríu til að róa ykkur?
„Neinei, betri er einn fugl í höfði en
tveir á flugi.“
Bolvíkingar eru reiðir vegna vaxandi kríu-
byggðar í bænum. Stofnað hefur verið til
sérstaks undirskriftalista vegna þessa en
slys varð þegar mótorhjólamaður fékk
kríu framan í sig. Halla Signý Kristjáns-
dóttir er fjármálastjóri Bolungarvíkur.
SJÁVARÚTVEGUR Margir þeirra sem
hafa fengið leyfi til strandveiða eru
gamlir eigendur kvóta. Hafa þeir
selt kvótann sinn, haldið skipun-
um, veiðarfærum og öðru og hafa
nú fengið leyfi til strandveiða, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Nokkuð er um það að menn reki
jafnvel tvo báta til strandveiða.
Einnig eru dæmi þess að menn
sem eiga lítinn kvóta hafi veitt
veiðiskyldu sína í vor, fengið leyfi
til strandveiða og leigi nú út kvót-
ann sinn. Markmið strandveiða
var meðal annars að auka nýliðun
í greininni.
Halldór Ármannsson, formað-
ur smábátaeigenda á Reykjanesi,
og kvótaeigandi, sem Fréttablað-
ið hafði samband við, hefur keypt
kvóta fyrir nokkra tugi milljóna á
undanförnum árum. Nú hafa ein-
hverjir seljendur kvótans fengið
leyfi til strandveiða og keppa við
Halldór á miðunum.
„Auðvitað er þetta svekkjandi að
lenda í þessu en það þýðir ekkert
fyrir mig að vera fúll út af þessu,“
segir Halldór sem segist stuðnings-
maður strandveiðikerfisins þrátt
fyrir þetta.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
segir sambandið hafa fengið nokkr-
ar ábendingar varðandi það að
gamlir kvótaeigendur séu á strand-
veiðum.
„Það er algengast að þeir sem
selja frá sér kvóta haldi bátunum og
þessir aðilar hafa örugglega farið
inn í strandveiðikerfið,“ segir Örn.
Um 400 bátar hafa leyfi til strand-
veiða þó að skilyrðin séu ströng.
Hafa þarf tilskilin réttindi og bát í
haffæru ástandi. Töluverður kostn-
aður fylgir því að fá leyfi til strand-
veiða ef maður er nýr í greininni, að
sögn Arnar. Því sé lítið um nýliða
að veiðum.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna (LÍÚ), segir
sambandið hafa fengið ábendingar
vegna þessa. „Ég held að þetta sé í
gangi. Þetta var ljóst frá upphafi og
eitt af því sem við bentum á varð-
andi þessar strandveiðar.“
Frá og með fimmtudeginum
verða strandveiðar á svæði A, sem
nær frá Eyja- og Miklaholtshreppi
til Skagabyggðar, bannaðar. Líklegt
þótti að viðmiðunaraflinn yrði upp-
urinn um miðja þessa viku.
Gefið var út leyfi til strandveiða
í lok júní. Kvótinn var samtals tæp-
lega 4.000 tonn yfir sumartímann
en nú þegar hafa veiðst um 1.140
tonn. Mest hefur veiðst á svæði A,
um 750 tonn.
Ekki náðist í Jón Bjarnason
sjávarútvegsráðherra vegna máls-
ins. vidirp@frettabladid.is
Seljendur kvóta fá
leyfi til strandveiða
Fyrrum kvótaeigendur hafa margir fengið leyfi til strandveiða. Framkvæmda-
stjóri LÍÚ segir sambandið hafa fengið ábendingar vegna þessa. Kvótaeigandi
segir þetta svekkjandi. Búið er að banna strandveiðar á tilteknu svæði.
SMÁBÁTAR Strandveiðar voru hugsaðar sem frjálsar veiðar til að efla atvinnu í
sjávarbyggðum landsins og stuðla að nýliðun í greininni.
Hjörleifur Guðmundsson, sem seldi kvóta fyrir nokkrum árum, hefur fengið
leyfi til strandveiða. Telur hann eðlilegt að hann fái strandveiðaleyfi eins og
hver annar.
Honum finnst jafnframt að sem flestir nýliðar ættu að koma í greinina.
Nýliðun getur farið fram með strandveiðum, að mati Hjörleifs, en hún sé þó
kannski ekki mikil sem stendur.
„Bankarnir eru auðvitað stopp og það verður engin nýliðun nema maður
geti fengið lán. Strandveiðarnar komu með litlum fyrirvara og allir sem
höfðu báta á sölu þá tóku þá til baka til að geta fengið leyfi. Því er kannski
lítið um nýliðun af því að það þarf auðvitað bát til að veiða,“ segir Hjörleifur.
BANKASTOPP OG FÁIR BÁTAR TIL SÖLU
FRÁ URUMQI Töluverð spenna er enn í
höfuðborg Xinjiang-héraðs í Kína.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Forseti Alþingis segir enn óvíst hvenær umræðu um ESB-umsókn lýkur:
Atkvæði vonandi greidd í dag
ÁSTA R.
JÓHANNESDÓTTIR
RAGNHEIÐUR
RÍKHARÐSDÓTTIR
MENNING Bókabúð Máls og menn-
ingar verður opnuð í gamla
SPRON-húsinu á Skólavörðustíg í
ágúst. Leigusamningur búðarinn-
ar á Laugavegi 18 rennur út um
mánaðamótin og eigendur búðar-
innar sáu sér ekki fært að ráða
við hækkun á leigu þar.
„Við ætlum að bretta upp
ermar og opna sem fyrst,“ segir
Elsa María Ólafsdóttir verslunar-
stjóri. Kaffihús verður í nýjum
húsakynnum og allt á einni hæð.
„Það er gott aðgengi fyrir hjóla-
stóla, sem er mikið fagnaðar-
efni.“ - þeb
Bókabúð Máls og menningar:
Opnuð á Skóla-
vörðustíg í ágúst
SPRON-HÚSIÐ Bókabúð Máls og menn-
ingar verður til húsa hér. Húsið hefur
staðið autt frá því að starfsemi SPRON
var hætt þar í mars.
HEILBRIGÐISMÁL Grunur leikur
á því að íslensk unglingsstúlka
sé smituð af svínaflensu og hafi
jafnvel smitað aðstandanda sinn
af flensunni, að því er sagði í
fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.
Stúlkan var sögð nýlega komin
frá Bandaríkjunum.
Haraldur Briem sóttvarna-
læknir vildi í samtölum við fjöl-
miðla í gær ekki staðfesta ný
tilfelli en sagði yfirlýsingar að
vænta um málið í dag. Búast
megi við því að að tilfellum fjölgi
á Íslandi enda breiði flensan úr
sér um allan heim. - gar
Nýtt tilfelli á Íslandi:
Unglingsstúlka
með svínaflensu
SPURNING DAGSINS