Fréttablaðið - 15.07.2009, Page 4
4 15. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
MUUUUUU
D
Y
N
A
M
O
D
Y
N
A
M
O
D
Y
N
A
M
O
D
Y
N
A
M
O
N
A
M
OO
D
Y
N
A
M
OO
M
O
D
Y
N
A
M
O
D
Y
N
A
MM
D
Y
N
A
D
Y
R
E
Y
K
J
R
E
Y
K
J
R
E
Y
K
J
R
E
Y
K
J
R
E
Y
K
JJ
R
E
Y
K
J
R
E
Y
K
R
E
Y
K
R
E
Y
K
R
E
R
A
V
A
V
A
V
A
V
A
V
A
V
A
V
A
V
A
V
A
ÍKÍKÍKÍKÍKKÍÍKÍKÍKÍ
TILNEFNDUR
TIL ÍSLENSKU BÓK
MENNTA-
VERÐLAUNANNA F
YRIR
LANDSLAG ER ALD
REI
ASNALEGT (2003)
4. SÆTI
SKÁLDVERK
METSÖLULISTA
EYMUNDSSON
www.bjartur.is
UTANRÍKISMÁL Svavar Gestsson,
formaður samninganefndar um
Icesave, segir óhjákvæmilegt að
Alþingi hafi pólitíska skoðun á því
hver verði framgangur samnings-
ins. Hana mætti setja fram hvort
sem er í nefndaráliti eða með
öðrum hætti. Samninginn sjálf-
an verði hins vegar að samþykkja
eða fella.
„Alþingi hlýtur auðvitað að hafa
sína skoðun á því til dæmis hvern-
ig framkvæmd samningsins verð-
ur háttað á komandi árum. Það er
Alþingi sem ræður hinni pólitísku
umgjörð málsins, eins og fjármála-
ráðherra sagði í viðtali í gær.“
Svavar segir að þróunin hafi
sýnt að samningurinn sé um margt
hagstæður. Margt í umhverfinu nú
sé orðið óhagstæðara en var þegar
hann var gerður. Í honum sé miðað
við 4,30 prósenta SIRR-vexti og
125 punkta álag ofan á það; alls
5,55 prósenta vexti. SIRR-vextir
séu í dag 4,70 prósent. Svavar segir
að með því að hafna samningnum
sé verið að taka mikla áhættu fyrir
þjóðina og þjóðarbúið.
Svavar segir gríðarlega mikil-
vægt að náðst hafi það ákvæði í
samninginn að hægt sé að segja
honum upp og borga upp fáist
fjármagn á hagstæðari kjörum.
Þá sé lánstíminn lengri en geng-
ur og gerist og mikilvægt sé fyrir
þjóðina að fá efnahagslegt skjól
í sjö ár.
Hann hafnar því að samnings-
staða Íslendinga hafi verið von-
laus. Brautin hafi meðal annars
verið lögð með undirskrift Davíðs
Oddssonar 15. nóvember þar sem
ábyrgð Íslendinga á skuldbind-
ingunum sé viðurkennd. Þá hafi
ramminn utan um viðræðurnar
verið dreginn í samþykkt Alþing-
is frá 5. desember.
Svavar segir Brussel-viðmið-
in hafa veitt viðspyrnu, en þar
leggja Evrópska efnahagssvæð-
ið og alþjóðasamfélagið áherslu á
að tekið yrði tillit til þeirra erfiðu
og fordæmalausu aðstæðna sem
Ísland er í.
Samninganefndin hafi síðan
miskunnarlaust beitt frystingu
Breta og minnt á að Íslendingar
hefðu skaðast af beitingu hryðju-
verkalaganna. Þá hafi því verið
beitt að þarna hafi komið í ljós að
regluverk um innstæður í Evr-
ópu væri gallað. Það að samþykkt
hafi verið að eignir Landsbank-
ans gengju upp í skuldir hafi líka
hjálpað til. Samningsstaðan hafi
því ekki verið vonlaus, en helgast
af því að ákveðið hafi verið í nóv-
ember að borga skuldirnar.
Ekki er reiknað með að þing-
nefndir ljúki umfjöllun um málið
fyrr en eftir helgi.
kolbeinn@frettabladid.is
Þingið marki Icesave
pólitíska umgjörð
Svavar Gestsson segir eðlilegt að Alþingi geri samþykktir um sína pólitísku
skoðun á því hvernig Icesave-samningum verði háttað. Hann segir ólíklegt að
hægt væri að ná jafnhagstæðum samningum enda hafi vaxtastig hækkað.
SAMNINGAMAÐUR Svavar segir vexti nú vera mun óhagstæðari en þegar samningur-
inn um Icesave var gerður. Það sé mikil áhætta fyrir þjóðina og þjóðarbúið að fella
samningana. Alþingi ráði hins vegar hinni pólitísku umgjörð málsins.
Alþingi hlýtur auðvitað
að hafa sína skoðun á því
til dæmis hvernig framkvæmd
samningsins verður háttað á
komandi árum.
SVAVAR GESTSSON
FORMAÐUR SAMNINGANEFNDAR
UM ICESAVE
VEÐURSPÁ
Alicante
Bassel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
32°
30°
26°
22°
22°
28°
26°
24°
24°
24°
22°
31°
28°
34°
20°
25°
24°
21°
Á MORGUN
3-10 m/s
Hvassast suðaustan til.
FÖSTUDAGUR
Hæg breytileg átt
um allt land.
15
14
11
13
10
9
10
13
13
12
7
7
8
6
7
3
4
5
10
3
4
7
16
16 11
10
14
16
15 11
10
12
BJARTAST SYÐST
Horfur eru á
nokkuð björtu
veðri sunnan- og
suðvestanlands
í dag en annars
staðar verður frem-
ur skýjað. Búast má
við smá rigningu
eða súld norðan
og austanlands
og austantil bætir
heldur í rigningu er
líður á daginn.
Soffía
Sveinsdóttir
Veður-
fréttamaður
TANSANÍA, AP Stríðsglæpadómstóll
á vegum Sameinuðu þjóðanna
hefur komist að þeirri niðurstöðu
að Tharcisse Renzaho, 65 ára fyrr-
verandi ríkisstjóra í Kigali, höfuð-
borg Rúanda, hafi verið einn helsti
forsprakki fjöldamorðanna þar
árið 1994.
Fyrir glæpi sína var Renzaho
dæmdur í ævilangt fangelsi.
Sem ríkisstjóri höfuðborgarinn-
ar var hann jafnframt yfirmaður
lögreglunnar. Dómstóllinn, sem
hefur aðsetur í Tansaníu, segir
ljóst að Renzaho hafi lagt á ráðin
um morðin og hvatt bæði hermenn
og almenna borgara til þess að
setja upp vegatálma, þar sem hægt
væri að stöðva för Tútsa á flótta og
ráða þá af dögum.
Erik Mose, aðaldómari dómstóls-
ins, sagði að Renzaho hafi sjálfur
átt hlut að morðum á meira en 100
Tútsum í kirkju nokkurri. Hann
hafi verið á staðnum bæði fyrir og
eftir morðin og látið undir höfuð
leggjast að stöðva þau.
„Hann tók einnig þátt í að fjar-
lægja líkin,“ sagði Mose.
Meira en hálf milljón manna
varð hundrað daga morðæði Hútúa
að bráð. Hinir myrtu voru bæði
Tútsar, sem eru í minnihluta íbúa
landsins, og hófsamir Hútúar, sem
vildu hlífa Tútsum.
Stríðsglæpadómstóllinn í Tans-
aníu hefur þegar fellt dóma yfir 39
sakborningum, en sex þeirra voru
sýknaðir. - gb
Stríðsglæpadómstóll dæmir einn helsta forsprakka þjóðarmorðsins í Rúanda:
Renzaho fer í lífstíðarfangelsi
THARCISSE RENZAHO Sannað þótti að
hann hafi lagt á ráðin og hvatt til morð-
anna 1994. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Bandaríski bankinn
Goldman Sachs hagnaðist um
3,44 milljarða dala eða 426 millj-
arða króna á núverandi gengi á
tímabilinu apríl til júníloka. Upp-
gjörið sýndi umtalsvert betri
afkomu en greinendur höfðu áður
gert ráð fyrir.
Bankinn hefur greitt til baka
þau lán sem hann fékk frá banda-
ríska ríkinu í björgunarpakka
þarlendra yfirvalda. Hlutabréf í
Goldman Sachs tóku við sér í gær
við þessi tíðindi og hafa hækkað
um 75 prósent það sem af er ári.
- bþa
Uppgjör Goldman Sachs:
Hagnast um 3,4
milljarða dala
ELDSVOÐI Líklegasta orsök bruna
Hótels Valhallar er að eldur hafi
komið upp í gasgrilli í eldhúsinu,
að sögn Þorgríms Óla Sigurðs-
sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns
lögreglunnar á Selfossi. Mikil fita
hafði safnast á grillinu og líklegt
sé að kviknað hafi í henni. Eldur-
inn hafi við það farið upp um háf
í eldhúsinu. Þaðan hafi eldurinn
náð upp á milliloft og svo breiðst
hratt út.
„Um leið og hann náði að brjót-
ast niður úr loftinu og fá súrefni
hefur hann farið út um allt,“
segir Þorgrímur. Ekkert bendir
til refsiverðrar háttsemi.
Rannsókn er ekki lokið, en hún
gæti tekið nokkrar vikur, að sögn
Þorgríms. Rannsóknin er unnin
af lögreglunni á Selfossi í sam-
starfi við tæknideild lögreglunn-
ar á höfuðborgarsvæðinu. Húsið
var tryggt fyrir 280 milljónir
króna. - vsp
Rannsókn á Hótel Valhöll:
Kviknaði í út
frá gasgrilli
VIÐSKIPTI Bandarískir vogunar-
og tryggingarsjóðir gætu orðið
stærstu eigendur Kaupþings í
vikulok. Þetta kom fram í frétt-
um Stöðvar 2 í gær. Um er að
ræða kröfuhafa í bankanum.
Efnahagsreikningar ríkisbank-
anna eiga að liggja fyrir á föstu-
daginn, sem og endurfjármögnun
þeirra og hvernig kröfuhafar
koma að því.
Samkvæmt heimildum Stöðv-
ar 2 er líka mögulegt að kröfu-
hafarnir fái hlutdeild í hagnaði
bankans og vilyrði um að kaupa
hann seinna. Gylfi Magnússon
viðskiptaráðherra vildi lítið tjá
sig um málið í gær. - þeb
Bandarískir kröfuhafar:
Eignast líklega
Kaupþing
HOLLAND, AP Charles Taylor,
fyrrverandi forseti Líberíu,
segir ákærur stríðsglæpadóm-
stóls Samein-
uðu þjóðanna
á hendur sér
reistar á lygum
og rangfærsl-
um.
Hann kom
í gær í fyrsta
sinn í vitna-
stúku dóm-
stólsins, sem
hefur aðsetur í
Haag. Hann neitar alfarið að hafa
stjórnað og vígvætt uppreisnar-
hópa sem drápu og pyntuðu þús-
undir manna.
Taylor er fyrsti þjóðarleiðtogi
Afríkuríkis sem ákærður er fyrir
stríðsglæpi. Hann er sakaður um
morð, pyntingar, nauðganir, kyn-
lífsþrælkun, hryðjuverk og notk-
un barna til hermennsku á tímum
borgarastyrjaldarinnar í Síerra
Leóne árin 1991-2002. Þau átök
kostuðu um hálfa milljón manna
lífið.
- gb
Charles Taylor fyrir dómi:
Segir ákærur
reistar á lygum
CHARLES TAYLOR
VALHÖLL BRENNUR Talið er eldurinn hafi
komið upp í gasgrilli en mikil fita hafði
safnast á grillinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Vilja tilnefningar
Kópavogsbær hefur auglýst eftir
tilnefningum vegna árlegrar jafnréttis-
viðurkenningar. Um getur verið að
ræða stofnun, fyrirtæki, einstakling,
nefnd eða ráð Kópavogsbæjar. Halla
Tómasdóttir, stjórnarformaður Auðar
Capital, fékk viðurkenninguna í fyrra
en Landsbankinn árið 2007.
KÓPAVOGUR
GENGIÐ 14.07.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
217,8754
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,54 128,14
208,05 209,07
178,32 179,32
23,947 24,087
19,724 19,84
16,256 16,352
1,3696 1,3776
197,63 198,81
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR