Fréttablaðið - 15.07.2009, Page 14
Kynning
„Í Sýrlandi eru margir áhuga-
verðir staðir fyrir ferðamenn og
sagan er við hvert fótmál. Ég get
nefnt æðislegan markað í borg-
inni Aleppo og rómverska hring-
leikahúsið í Basra,“ segir Sigríður
Víðis og bætir við að í Sýrlandi sé
öruggt að dvelja og heimamenn séu
almennt gestrisnir og vinalegir.
„Í Damaskus, sem er meðal elstu
borga í heimi, er eitthvað um að
vera á hverju götuhorni en samt
lítið áreiti,“ segir hún og heldur
áfram dreymin. „Uppáhaldið mitt
var að fara í göngutúr um gömlu
borgina í Damaskus og koma við
á stóra markaðnum Souk El-Ham-
idiyeh sem er heill heimur út af
fyrir sig. Setjast síðan á torgið við
Umayyad-moskuna og fylgjast með
mannlífinu og fara þaðan á eitt-
hvert af milljón kaffihúsunum eða
á veitingastað því matargerðin í
Sýrlandi er einstök. Oftast eru veit-
ingastaðirnir í fallegum, eldgöml-
um húsum þar sem setið er undir
berum himni í garði í miðju húsinu.
Ótrúlega sjarmerandi.“
Þessi lýsing hljómar sannarlega
vel. Erindi Sigríðar til Mið-Austur-
landa var þó ekki bara að njóta lífs-
ins lystisemda heldur líka að kynna
sér bakgrunn þeirra einstæðu
mæðra sem komu sem flóttamenn
með börn sín frá Írak til Akraness
á síðasta ári. Því efni ætlar hún að
gera skil í bók.
„Ég sjálf er af Skaganum en hef
lengi haft áhuga á málefnum Pal-
estínu og Ísrael, auk þess sem mast-
ersritgerðin mín var um Írak. Allt í
einu voru komnar konur til Íslands
sem tengja allt þetta saman. For-
eldrar þeirra flúðu til Írak frá Pal-
estínu þegar Ísraelsríki var stofn-
að og þær sjálfar þurftu síðan að
flýja Írak.“
Sigríður segir það ekki hafa
verið auðsótt mál að komast inn í
flóttamannabúðirnar í Írak og fá
blaðamannaáritun til Sýrlands en
þó hafi það tekist með aðstoð flótta-
mannastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna og hjálplegra starfsmanna
utanríkisráðuneytisins. Hún er
tekin til við skriftirnar og stefn-
ir á að fara í haust til Palestínu og
aftur til Íraks. Sigríður er alvön að
ferðast og kveðst oftast fara ein af
stað frá Íslandi. „Ég hef komist í
kynni við margt skemmtilegt fólk
á mínu flakki,“ segir hún. „Bæði
heimafólk og ferðamenn.“
gun@frettabladid.is
Flóttafólk veitti innblástur í bók
Hellulagðar götur og torg Damaskus í Sýrlandi hrifu Sigríði Víðis Jónsdóttur blaðamann. Einnig matarmenningin og margt fleira. Hún dvaldi
þar í þrjá mánuði í vor eftir heimsókn í flóttamannabúðir í Írak. Skrapp líka þaðan til nágrannalandanna Líbanon og Jórdaníu.
Á markaði í Damaskus þar sem ólívurn-
ar eru ómótstæðilegar.
Í Maloula, litlum bæ í Sýrlandi státar fólk
sig af því að geta enn talað sama mál
og Jesús Kristur.
Sigríður dvaldi þrjá mánuði í Sýrlandi í vor og skrapp þaðan til nágrannalandanna
Líbanon og Jórdaníu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SKILAGJALD ÖKUTÆKIS sem
afhent er til móttökustöðvar til endur-
nýtingar eða endanlegrar förgunar er 15
þúsund krónur. www.urvinnslusjodur.is
Kerlingarfjöll eru einstök nátt-
úruperla sem margir Íslending-
ar eiga eftir að uppgötva. Þar
eru víðfeðm útivistarsvæði fyrir
göngufólk, hestamenn, fjalla-
hjólamenn, jeppafólk, mótor-
hjólafólk og fleiri. Aðstæður á
svæðinu eru þannig að allir þess-
ir hópar geta stundað útivist á
sinn hátt án þess að trufla hver
annan.
Í Kerlingarfjöllum var rek-
inn skíðaskóli í áratugi en vegna
minnkandi snjóalaga lagðist það
af fyrir aldamót. Byggingarnar
eru þó enn á svæðinu og þær eru
nú nýttar fyrir gistingu og veit-
ingasölu. Margt á svæðinu minnir
enn á gamla skíðaskólann og má
þar nefna kvöldvökurnar frægu
sem þar voru haldnar. Húsa-
kosturinn hefur verið endur-
byggður mikið á síðustu árum
og breytt þannig að möguleikar
eru á gistingu í sérbýli og tveggja
manna herbergjum með vönduð-
um rúmum og salerni. Einnig er
hægt að fá svefnpokapláss, tjalda
eða koma með gistivagna. Veit-
ingasala er í gamla skíðaskólan-
um og ferðalangar geta því dval-
ið á svæðinu án þess að taka með
sér annað en útivistarbúnað.
Hestagerði er á staðnum og
hægt er að kaupa hey, enda eru
fjöllin vinsæll áningarstaður
hestamanna. Við breytingarnar
hefur þess verið vandlega gætt
að halda hlýlegu yfirbragðinu í
litla gróðursæla dalnum þar sem
aðstaðan er. Ein af elstu vatns-
aflsvirkjunum landsins sér staðn-
um fyrir rafmagni og um þess-
ar mundir er verið að gangsetja
hana eftir miklar endurbætur í
sumar. Vegurinn frá Kjalvegi að
Kerlingarfjöllum hefur verið lag-
aður mikið í vor og nú er orðið
fólksbílafært í fjöllin og auðvelt
að fara þangað með tjaldvagna
og fellihýsi. Einstaka hjólhýsi
sést orðið líka. Afleggjarinn er
ekki nema níu kílómetrar og því
tilvalið fyrir ferðalanga um Kjöl
að skella sér í kaffisopa. Þó að
leiðin sé stutt er hún bæði fjöl-
breytt og margir fallegir staðir
á leiðinni, til dæmis Gýgjarfoss
í Jökulfallinu.
Fjölmargar merktar göngu-
leiðir við allra hæfi eru um
Kerlingarfjöllin, allt frá 30 mín-
útna leið í heitu laugina upp með
Ásgarðsá upp í heilar dagleið-
ir upp í efri hverasvæðin og á
fjallstoppana. Vegur liggur upp
á gamla skíðasvæðið og í Hvera-
dali og frábært er að fá sér bíltúr
þangað upp, ganga um og njóta
stórkostlegs útsýnis.
Greinilegar vegaslóðir liggja
umhverfis Kerlingarfjöllin og
þær eru færar seinni hluta sum-
ars fyrir alla jeppa. Hringurinn
er heil dagleið og mjög fjölbreytt-
ur með hæfilegu vatnasulli og
brekkum. Greinilegar og fjölfarn-
ar slóðir tryggja að hægt er að
ferðast um allt svæðið án lands-
spjalla, bæði styttri og lengri
leiðir. Þessi fjölbreytni gefur
skemmtilega möguleika fyrir
fólk með ólík áhugamál að dvelja
saman nokkra daga í fjöllunum,
stunda sína útivist á daginn og
hittast saman á kvöldin, nokkuð
sem starfsmannafélög nýta sér í
auknum mæli. Sérstakar helgar-
ferðir með hópa hafa notið vin-
sælda. Í vor fór stór hópur kvenna
og stundaði jóga í bland við úti-
vist og fyrirhugað er að hafa sér-
stakar helgar í lok ágúst og byrj-
un september fyrir jeppafólk og
vélhjólafólk. Þá verður leiðsögn
í ferðum á daginn og kvöldvökur
á kvöldin, tilvalið fyrir fjölskyld-
ur. Þeir sem vilja skoða svæðið
betur á netinu geta kíkt á www.
kerlingarfjoll.is.
Útivist og kvöldvökur í
Kerlingarfjöllum að nýju
Oft er lagið tekið á tjaldstæðinu í fjöllunum. Nú er orðið fólksbílafært þangað og
auðvelt að komast með tjaldvagna og fellihýsi.
Sigma linsur
fyrir flestar
gerðir
myndavéla
NÁM