Fréttablaðið - 15.07.2009, Qupperneq 22
14 15. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Efnt verður til hátíðahalda á Dynjandis-
heiði fimmtudaginn 16. júlí í tilefni
þess að í haust verða 50 ár liðin síðan
vegur var lagður um Dynjandisheiði og
akvegasamband komst á milli byggðar-
laga á Vestfjörðum og milli Reykjavík-
ur og Ísafjarðar.
„Vegurinn breytti umhverfinu hér
alveg geysilega mikið. Þeir á norður-
svæðinu, Stór-Þingeyrarsvæðinu, kom-
ust alla leið til Patreksfjarðar sem
hafði ekki verið hægt áður með vegi,
þó að trillubátur hafi ferjað menn og
bíla frá Bíldudal og yfir á Hrafnseyri,“
segir Magnús Ólafs Hansson, verk-
efnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi
Vestfjarða, sem kemur að skipulagn-
ingu hátíðahaldanna.
Vegurinn á Dynjandisheiði var unn-
inn á árunum 1957 til 1959 og opnaður
þá á haustdögum. „Reyndar voru menn
farnir að laumast hann sumarið 1958
en það er önnur saga,“ segir Magnús
glettinn.
Dynjandisheiði liggur að norðan frá
Dynjandisvogi upp Svínadal. Uppi á
heiðinni eru vegamót og liggur vegur-
inn annars vegar niður í Trostansfjörð
á leið í Bíldudal, eða niður í Vatnsfjörð
í Flókalund.
Til að útskýra nánar hversu mikið
vegurinn um heiðina breytti lífi fólks
á Vestfjörðum tekur Magnús dæmi.
„Fimm leiðir liggja frá Búðardal
og á norðurhluta Vestfjarða. Engin
þeirra er opin yfir vetrartímann og
því þarf Bílddælingur sem ætlar á
Ísafjörð á veturna að aka 804 kíló-
metra leið til Búðardals yfir Laxár-
dalsheiði um Strandasýslu. „Þetta er
699 kílómetra aukakrókur miðað við
stystu sumarleiðina yfir Dynjandis-
og Hrafnseyrarheiði,“ segir hann og
bætir við: „Til gamans má geta að ef
Hafnfirðingur ætlaði upp á Akranes og
þyrfti að taka svipaðan krók yrði hann
að fara til Djúpavíkur í Strandasýslu
og til baka.“
Magnús segir veginn hafa elst vel.
„Það sem er það gleðilega við Dynj-
andisheiði er að hún er síung. Vegurinn
hefur ekkert elst og er nákvæmlega
eins og hann var þegar hann var lagð-
ur. Þetta er stórgóður vegur að keyra
í dag enda hefur Vegagerðin stórbætt
hann undanfarið,“ segir hann.
Hátíðahöldin á fimmtudaginn fara
fram uppi á Dynjandisheiði rétt norðan
við sýslumörkin milli Ísafjarðarsýslna
og Barðastrandarsýslna. Þau hefjast
klukkan 19 og standa til 21. Þar verða
flutt nokkur ávörp. Til dæmis mun Ást-
valdur Guðmundsson, ýtustjóri sem
vann við vegagerðina, segja nokkur
orð og Gísli Eiríksson, hjá Vegagerð
ríkisins, mun lýsa möguleikum á að
koma á heilsársvegasamgöngum milli
byggðarlaga á Vestfjörðum.
Nokkur tónlistaratriði verða á dag-
skrá. Elfar Logi Hannesson leikari
flytur ljóð eftir Guðmund Inga Kristj-
ánsson frá Kirkjubóli í Önundarfirði,
sem Guðmundur orti í tilefni af vega-
gerðinni fyrir 50 árum. Afhjúpuð verð-
ur áskorun til stjórnvalda og að lok-
inni hátíðardagskrá leikur hljómsveit-
in Yxna frá Ísafirði. Þá verður til sýnis
gömul og uppgerð jarðýta, sem var
notuð við vegagerðina fyrir 50 árum.
Auk alls þessa verður boðið upp á kjöt-
súpu og kaffi á eftir.
Magnús og félagar hans vonast með
þessari uppákomu til að vekja athygli
á samgöngumálum Vestfjarða. „Við
vonumst eftir að gefin verði loforð um
jarðgöng milli Dýrafjarðar og Arnar-
fjarðar. Ef við eigum að hafa eina þjóð
í einu landi getum við ekki búið við
þetta. Samskiptin eru engin milli norð-
ur- og suðursvæðis nema um hásumar-
tímann. Með þessu móti væri hægt að
tengja Vestfirðina í hringvegakerfi.“
solveig@frettabladid.is
DYNJANDISHEIÐI: HÁTÍÐAHÖLD VEGNA FIMMTÍU ÁRA OPNUNARAFMÆLIS
DYNJANDISHEIÐIN ER SÍUNG
VEGAGERÐ Framkvæmdir á Vestfjörðum árið 1959. Vestfjarðavegur í Peningadalshlíð. MYND/ÚR EINKASAFNI.
BRIGITTE NIELSEN
ER 46 ÁRA Í DAG.
„Já, ég sýni á mér líkamann,
en aðeins vegna þess að mér
finnst að fólk verði að hafa
eitthvað fallegt að horfa á.“
Brigitte Nielsen er dönsk leik-
kona sem er þó þekktust fyrir
að hafa verið gift leikaranum
Sylvester Stallone.
MERKISATBURÐIR
1567 María Stúart bíður ósigur
fyrir skoska aðlinum við
Carberry Hill og er fang-
elsuð í Loch Leven-kast-
ala.
1626 Einar Sigurðsson, skáld
og prestur í Heydölum í
Breiðdal andast, um 88
ára. Þekktasta kvæði hans
er sálmurinn Nóttin var sú
ágæt ein.
1803 Snorri Björnsson, fyrrum
prestur að Húsafelli, and-
ast, 93 ára. Hann þótti
rammur að afli, sundmað-
ur mikill og skáld gott.
1970 Stórbruni verður í verk-
stæðisbyggingu Strætis-
vagna Reykjavíkur. Meðal
annars brenna þrír stræt-
isvagnar.
1983 Leikjatölvan Nintendo
Entertainment System
kemur fyrst út í Japan.
Fyrsta krossferðin var farin á 11. öld, nánar tiltek-
ið árið 1095 og að undirlagi Urbans II. páfa, með
það að markmiði að hertaka borgina Jerúsalem
og hið Heilaga land. Eftir mánaðarlangt umsátur
um borgina myrtu krossfararnir nánast alla íbúa
borgarinnar á þessum degi árið 1099.
Í krossferðir lögðu kaþólskir Evrópubúar gegn
þeim sem þeir töldu til heiðingja. Slavar, gyð-
ingar, rússneskir og grískir rétttrúnaðarsinnar,
Mongólar, Valdensar, Prússar, Katarar, Hússítar,
pólitískir andstæðingar páfans og aðallega músli-
mar urðu fyrir barðinu á krossförunum.
Tilgangurinn með árásinni á Jerúsalem var
að ná borginni og svo Landinu helga og frelsa
kristna menn undan yfirráðum múslima. Í átök-
unum sem fylgdu sölsuðu krossfararnir undir sig
nærliggjandi landvinninga múslima. Þeim hélst
þó ekki á þeim nema í tvær aldir þegar múslimar
endurheimtu þá að nýju.
Þess má geta að krossferðir voru farnar allt
fram á síðari hluta 13. aldar. Þær höfðu gífurleg
efnahagsleg, stjórnmálaleg og félagsleg áhrif
sem eimir af enn í dag. Heimild: www.wikipedia.org
ÞETTA GERÐIST: 15. JÚLÍ 1099
Krossfarar hertaka Jerúsalem
KROSSFARAR
75 ára afmæli
Helgi Jónsson
Laufvangi 1, Hafnarfi rði.
Hann ætlar að vera með kaffi á
könnunni fyrir ætting ja og vini í
safnaðarheimilinu Víðistaðakirkju
í dag milli klukkan 17 og 19 og þætti
gaman að sjá sem fl esta.
Okkar hjartkæri eiginmaður, faðir,
tengdasonur og mágur
Emilio De Rossi
Via Prudenziana 21
22100 Como, Ítalíu
lést á sjúkrahúsi á Ítalíu þann 13. júlí, bálför verður
í St. Augustino-kirkju í Como þann 15. júlí.
Þeim sem myndu vilja minnast hans er bent á
Samband íslenskra kristniboðsfélaga.
Elsa Waage
Júlía Charlotte De Rossi
Clara G Waage
Vera Waage
Snorri Waage
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
ómetanlega vináttu og hlýhug við andlát
og útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Sverris Leóssonar
útgerðarmanns, Aðalstræti 68, Akureyri.
Guð blessi ykkur öll.
Auður Magnúsdóttir
Magnús Sverrisson Unnur Dóra Norðfjörð
Ásthildur Sverrisdóttir Jóhann Björgvinsson
Ebba Sverrisdóttir Sveinbjörn Bjarnason
Ragnhildur Sverrisdóttir Steinar Sigurðsson
afabörnin og langafastrákarnir.
„Þetta er norskur harmóníkuleikari, margverðlaunað-
ur tónlistarsnillingur, sem ætlar að troða upp. Fólk sem
er vel að sér í þessari tónlist tók andköf þegar það frétti
af komu hans til landsins,“ segir Sigríður Margrét Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska landnámsseturs-
ins í Borgarnesi. Þar ætlar harmóníkuleikarinn Sigmund
Dehli að halda tónleika sem hefjast í kvöld klukkan 21 og
mun leika alþýðutónlist fyrir tónleikagesti.
Sigríður segir að undanfarið hafi tónleikahald aukist
jafnt og þétt í Landnámssetrinu sem hefur getið sér góðan
orðstír fyrir einleiki og sögulegar sýningar. Hún fagnar
því að tónlistarmenn sækist í síauknum mæli eftir því að
troða upp í húsnæðinu.
Þess skal getið að aðgangseyrir á tónleikana í kvöld er
1.000 krónur fyrir fullorðna, en 500 krónur fyrir börn og
ellilífeyrisþega. Sjá www.landnam.is.
Sigmund Dehli í
Landnámssetri
TÓNLEIKAR Norski harmóníkuleikarinn Sigmund Dehli leikur í
Landnámssetri Íslands í kvöld. MYND/ÚR EINKASAFNI
AFMÆLI
DIANE KRUGER
leikkona er 33 ára.
BRIAN AUSTIN
GREEN leikari er
36 ára.
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍ-
USSON alþingis-
maður er 52 ára.