Fréttablaðið - 15.07.2009, Side 30
22 15. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. svif, 6. spil, 8. hljóma, 9. viðmót, 11.
hlutafélag, 12. afspurn, 14. glingur, 16.
í röð, 17. röst, 18. starf, 20. tvíhljóði, 21.
kropp.
LÓÐRÉTT
1. útdeildu, 3. fíngerð líkamshár, 4.
umstafla, 5. gifti, 7. ómerkilegur sam-
setningur, 10. stykki, 13. örn, 15. uxi, 16.
málmur, 19. númer.
LAUSN
„Ef mig langar í sveittan fer ég á
Aktu taktu, ekki spurning, bestu
borgararnir í bænum! Aktu
taktu klikkar aldrei.“
Sigurlaug María Hreinsdóttir
jarðfræðingur.
LÁRÉTT: 2. flug, 6. ás, 8. óma, 9. fas, 11.
hf, 12. umtal, 14. skran, 16. tu, 17. iða,
18. iðn, 20. au, 21. nart.
LÓÐRÉTT: 1. gáfu, 3. ló, 4. umhlaða, 5.
gaf, 7. samsuða, 10. stk, 13. ari, 15. naut,
16. tin, 19. nr.
Þriðju útgáfu sjónritsins Rafskinnu, sem er fyrsta
íslenska tímaritið sem gefið er út á mynddiski, verð-
ur fagnað með lítilli útihátíð í dag. Þemað í þetta
sinn er í anda kreppunnar og gengur út á endur-
vinnslu og endurútgáfu. Á mynddisknum má meðal
annars finna heimildarmyndir, stuttmyndir, tón-
listarmyndbönd eftir íslenska og erlenda listamenn
auk ritaðs efnis. Sigurður Magnús Finnsson, einn
aðstandenda ritsins, segir ritstjórnina standa í
ströngu fyrir útgáfuna. „Diskarnir voru sendir frá
Berlín í gær með Fed-Ex og nú eru menn að leggja
lokahönd á að púsla þessu öllu saman.“ Hann segir
að hefð hafi skapast fyrir því að halda útgáfuteiti
ritsins undir berum himni og helst það óbreytt í
ár. „Síðustu tvö ár höfum við haldið partý í gamla
Sirkúsportinu, en nú er það í einhverju limbói vegna
staðarins sem á kannski að opna þar. Í staðinn verð-
ur veislan haldin í nýuppgerðum Klapparstígsreit,
á milli Hverfisgötu og Laugavegar,“ segir Sigurður
Magnús.
Hljómsveitin Retró Stefson mun leika endurgerða
tónlist fyrir gesti og DJ Árni Sveins mun þeyta skíf-
um auk þess sem gestum býðst að kaupa eintak af
Rafskinnu á sérstökum útgáfuprís í tilefni dagsins.
Hátíðarhöldin hefjast stundvíslega klukkan 17.00. - sm
Sent með Fed-Ex frá Berlín
KREPPURIT Rafskinna verður í ár í anda kreppunnar og mun
innihalda mikið af endurunnu efni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Þetta er eflaust eitthvað staðlað
sem skrifstofa borgarstjóra hefur
útbúið,“ segir Ólafur F. Magnús-
son fyrrverandi borgarstjóri.
Ólafur F. og Hanna Birna Kristj-
ánsdóttir borgarstjóri hafa í gegn-
um tíðina ekki verið á sömu blað-
síðunni í pólitíkinni og oft tekist
grimmilega á um málefni Reykja-
víkurborgar. En í Visitors Guide,
veglegri handbók sem gefin er
út árlega og ætluð er erlendum
ferðamönnum, er að finna ávarp
eða pistil frá borgarstjóra Reykja-
víkur. Svo einkennilega vill til að
ávarp Hönnu Birnu er nánast það
sama og ávarp Ólafs var í fyrra.
Bæði velja þau sömu fyrirsögn-
ina: „Reykjavík – Be Inspired“ og
byrjunin er sú sama: „Think of
the qualities of a great city – fun,
space, clean air, nature, culture
– and I feel that Reykjavik has
them in spades.“ Glæsileg byrjun
á pistli og magnað að þeim skyldi
ekki einungis hafa dottið nákvæm-
lega hið sama í hug – heldur orðað
það á sama hátt.
Ólafur kannast reyndar ekki
við að hafa skrifað pistil í Visit-
ors Guide þó í orði kveðnu sé það
hann sem ávarpar lesandann og
kvittar undir pistilinn. En þetta
kemur honum ekki á óvart. Hann
segir starf borgarstjóra 26 tíma
starf á sólarhring. Þetta hafi án
efa verið erindi sem embættis-
menn borgarinnar hafi afgreitt
borgarstjóra til undirritunar að
morgni annasams vinnudags. Og
hann ekki einu sinni náð að lesa
það yfir. Því ekki komi til greina
að þau hafi sameinast um texta í
eitt stykki ávarp.
„Ef þú heldur að til sé ólík-
ara fólk en við Hanna Birna þá
skjöplast þér hrikalega. Ég hef
komist að því að við erum af sitt
hvoru sauðahúsinu.“ Ólafur gerir
fastlega ráð fyrir því að ávarpið
í Visitors Guide varði ekki póli-
tíska stefnu.
Það er Netið, markaðs- og
rekstrarráðgjöf, sem gefur Visit-
ors Guide út. Útgefandi og rit-
stjóri er Hákon Þór Sindrason.
Hann segir ávörp borgarstjóranna
ekki eins þó svo virðist í fyrstu.
„Þegar við fengum þetta sent frá
ráðhúsinu þá sýndist mér þetta
vera sama ávarpið,“ segir Hákon
Þór. jakob@frettabladid.is
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON: HANNA BIRNA AF ALLT ÖÐRU SAUÐAHÚSI EN ÉG
Nánast samhljóma ávarp
gjörólíkra borgarstjóra
SAMI RITSTÍLL ÓLÍKS FÓLKS
Í öllum tilfellum er furðulegt þegar tveim mismunandi mönnum er
eignaður sami textinn - og þegar í hlut eiga Hanna Birna og Ólafur F.
verður það nánast absúrd. En líklega var það einhver embættismaður
Reykjavíkur borgar sem ritaði pistilinn fyrir hönd þeirra og breytti einfald-
lega um signatúr.
Listahátíð ungs fólks á Austur-
landi, LungA, hófst með pompi og
prakt á mánudaginn. „Þetta gekk
allt svakalega vel, allir eru komn-
ir í sínar smiðjur, komnir á fullt og
rosaleg gleði. Við erum með tæp-
lega 90 þátttakendur, þannig að það
er góð mæting. Þetta lítur allt mjög
vel út. Opnunarhátíðin var flott og
leiðbeinendakynningin var mega,“
segir Björt Sigfinnsdóttir, úr fram-
kvæmdaráði LungA. Leiðbeinend-
ur kynntu vinnu sína og sjálfa sig.
„Hugleikur var með íróníska kynn-
ingu á sinn hátt á meðan hinir spil-
uðu tónlist og dönsuðu.“
Yfir vikuna trekkir LungA að
um fjögur til fimm þúsund manns
til Seyðisfjarðar að sögn Bjart-
ar, en þar búa rúmlega sjö hundr-
uð manns. Um þrjú hundruð taka
þátt í listahátíðinni sjálfri og koma
þeir hvaðanæva af landinu. Flestir
mæta þó um helgina, sem hefst á
hönnunarsýningu á fimmtudags-
kvöld. „Við erum rosalega spennt
fyrir henni. Hún verður alveg
meiriháttar í ár.“ BA-útskriftar-
nemar úr hönnunarskólanum í
Kolding DK eiga sviðið í ár auk
innlendra hönnuða en sýnt er í
gamla Strandarsíldar-frystihús-
inu. Þá eru Kimi Records með tón-
leika á föstudagskvöldið og sjálfir
stórtónleikarnir og uppskeruhá-
tíðin eru á laugardagskvöld. Í ár
spila Skakkamanage, B.Sig, Mugi-
son, Jagúar og GusGus. Uppskeru-
hátíðin er svo alltaf dálítið dulin.
„Ég held að hún verði líka extra
flott í ár, við erum alltaf að reyna
að toppa okkur. Þetta verður allt-
af flottara og flottara. Það má lítið
gefa upp að svo stöddu en það eru
mjög góðar hugmyndir komnar.“
-kbs
Þúsundir gesta á listahátíð á Seyðisfirði
FURÐUVERUR Leiðbeinendur tóku sig saman og spiluðu fyrir þátttakendur LungA.
GLÆNÝ STÓRLÚÐA
STÓR OG FALLEGUR
HUMAR
Idolstjörnur hafa átt nógu erfitt
uppdráttar þó prentvillupúkinn
sé ekki að leggja þær í einelti.
Þannig kom nýverið út safndiskur-
inn Sumarstjörnur 2009, sem N1
dreifir og selur og
þar er lag númer
sjö „Með sjálfri
mér“ og flytjandi
sagður einhver
Anna Hín. Þarna
er að sjálfsögðu
um að ræða
Önnu Hlín sem
margir töldu
að hefði átt að
vinna síðustu
Idolkeppni.
Hvunndagshetja hefur átt í
nágrannastríði að undanförnu en
nýlegur úrskurður úrskurðarnefndar
skipulags- og byggingarmála er
ekki hliðhollur Auði Haralds rit-
höfundi. Hún hefur átt í nágranna-
erjum og kvartað undan fram-
kvæmdagleði nágranna síns Páls
Björgvinssonar sem einnig býr við
Bergþórugötu 1. Kæru Auðar var
vísað frá vegna þess að hún barst
of seint. Og eitthvað hefur
hvinið í tálknum höfundar
Hvunndagshetjunnar því
í úrskurðinum er talað
um ávirðingar er lúta
að embættisfærslum
byggingarfull-
trúa – en sagt
að ekki liggi
fyrir í málinu
kæranleg stjórn-
valdsákvörðun
um afskipti eða
afskiptaleysi hans.
Söngkonan Védís Hervör Árna-
dóttir eignaðist sitt fyrsta barn í
gærmorgun. Védísi og unnustanum
Þórhalli Bergmann
fæddist drengur
sem var 16 merkur
og 52 sentimetr-
ar. - jbg, sm
FRÉTTIR AF FÓLKI