Fréttablaðið - 11.08.2009, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 11. ágúst 2009 17
„Ég er skírð í höfuðið á móður-
ömmu minni sem heitir
Unnur. Aspar-nafnið er svo
valið út í bláinn af foreldrum
mínum í anda hippaáranna,“
segir leikkonan Unnur Ösp.
Hún segist alltaf hafa borið
nafn ömmu sinnar með stolti
og þótt vænt um að heita í
höfuðið á henni. „Amma er
eldklár og dugleg kona og ég
er þakklát foreldrum mínum
að hafa skírt í höfuðið á henni
í stað þess að reyna að fara
algerlega ótroðnar slóðir eins
og oft vildi vera á þessum
tíma.“
Nafnið Unnur þýðir alda.
„Kannski er það eilítið lýsandi
fyrir minn karakter, aldan sem
brýst upp og fer svo niður. Ég
og við nöfnunar getum bæði
verið mjög duglegar og orku-
miklar en svo eigum við okkar
rólegri kafla.“
Allra nánasta fjölskylda kall-
ar Unni Ösp oft Unnsu og svo
segist hún eiga skemmtilegt
gælunafn sem góðvinur henn-
ar í leikhúsinu, Sigurður Skúla-
son, hafi gefið henni sem lít-
illi stúlku: Rösp. „Annars hef
ég jafnan verið kölluð báðum
nöfnum og verið ánægð með
það. Ég hef hins vegar rekið
mig á að nafnið er ekki mjög
„útlandavænt“. Í fyrravetur var
ég að leika úti í Bretlandi og
heyrði það til undantekninga
ef nafnið mitt var rétt stafsett í
blöðum, dómum og öðru.“
juliam@frettabladid.is
NAFNIÐ MITT: UNNUR ÖSP STEFÁNSDÓTTIR
Unnur lýsandi fyrir karakterinn
KÖLLUÐ UNNSA AF SÍNUM NÁNUSTU Unnur Ösp Stefánsdóttir leik-
kona er stundum kölluð Unnsa en þó var maður nokkur í leikhúsinu
sem bjó til nafnið Rösp á hana þegar hún var lítil.
Járn- og glerlistaverkið Vitinn var afhjúpað í Bergi, nýja
menningarhúsinu á Dalvík, á Fiskideginum mikla sem
haldinn var laugardaginn 8. ágúst síðastliðinn. Listaverkið
er eftir Höllu Har, gler- og myndlistarkonu. Hún gaf Dal-
víkurbyggð það til minningar um Friðleif Jóhannsson sem
var afi eiginmanns hennar, Hjálmars Stefánssonar.
Friðleifur var útgerðarmaður á Dalvík og Siglufirði
um og eftir næstsíðustu aldamót og lét sig málefni bæjar-
félaganna miklu varða. Hann hóf fyrstur, í félagi við bróð-
ur sinn Jóhann, vélbátaútgerð á Dalvík árið 1906 og hefur
verið reist minnismerki í fjörunni þar sem þeir lentu
fyrsta vélbáti sínum Viktori. Friðleifur var sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Svarfdæla frá 1904-1920 og 1921-1927.
Hann var einnig formaður fyrstu fræðslunefndar á Dal-
vík.
Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri veitti listaverkinu
viðtöku fyrir hönd bæjarins en fjöldi afkomenda Frið-
leifs og Sigríðar Stefánsdóttur konu hans auk annarra
gesta á Fiskideginum mikla voru viðstaddir athöfnina.
Listaverkið stendur í anddyri Bergs menningarhúss. - ve
Viti til minningar um Friðleif
VIÐ LISTAVERKIÐ Friðleifur lét málefni Dalvíkur og Siglufjarðar sig
miklu varða um og eftir næstsíðustu aldamót. MYND/DALVÍKURBYGGÐ
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts eiginmanns míns,
bróður okkar, föður, fósturföður, tengda-
föður, afa og langafa,
Gunnars Þorvaldssonar
rafvirkja, Eyrarvegi 2, 600 Akureyri.
Fyrir hönd aðstandenda
Guðríður Steindórsdóttir
börn Gunnars og fjölskyldur þeirra.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Sigríður Ingimundardóttir
Hornbrekku, Ólafsfirði,
lést á heimili sínu að Hornbrekku þann 7. ágúst sl.
Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn
15. ágúst kl. 14.00.
Gíslína Helgadóttir Ingimar Antonsson
Sigurður Helgason Ágústa Pétursdóttir
Hannes Helgason María Jónsdóttir
Ingimundur Helgason Arndís Friðriksdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
Gunnar K. Gunnlaugsson
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, fimmtudaginn 6.
ágúst. Útförin fer fram frá Háteigskirkju, laugardaginn
15. ágúst kl. 13.00.
Hafdís Baldvinsdóttir, börn og barnabörn.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem
sýnduð okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar elskulegu móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Maríu Hólmfríðar
Jóhannesdóttur
Asparfelli 8, Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð 23. júlí sl.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar A-7 á
Landspítalanum Fossvogi og einnig starfsfólki á hjúkr-
unarheimilinu Seljahlíð, fyrir góða umönnum og sér-
staka hlýju sem okkur var sýnd í veikindum hennar.
Fyrir hönd ástvina
Bjarni Thorarensen Sigríður Magnúsdóttir
Smári Thorarensen Steinunn Sigurjónsdóttir
Hallbjörg Thorarensen Óskar Elvar Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur vináttu, samúð og hlýhug við andlát
og útför
Fanneyjar G. Hannesdóttur
Neðstaleiti 4, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarþjónustunnar
Karitas og líknardeildar LSH, Landakoti fyrir frábæra
umönnun.
Bára Brynjólfsdóttir
Brynjólfur G. Brynjólfsson Emma Eyþórsdóttir
Sólveig Hlín Brynjólfsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Rannveig Edda
Hálfdánardóttir
Holtsflöt 6, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 7. ágúst.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
18. ágúst kl. 14.00.
Kristján Emil Friðriksson
Dórothea Kristjánsdóttir Madsen Jørgen Elsted Madsen
Hálfdán Kristjánsson Ragnhildur Jónsdóttir
Rannveig Kristjánsdóttir
Kristján Emil Jónasson
og ömmubörn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og
amma,
Sigurlaug Sigurðardóttir
nuddkona, áður til heimilis að
Einarsnesi 64,
lést á Vífilsstöðum 8. ágúst sl.
Páll Árni Jónsson Ásdís Björgvinsdóttir
Jón Helgi Pálsson Lilja Garðarsdóttir
Kristbjörg Pálsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
lang- og langalangamma.
Marsibil Guðmunda
Helgadóttir
frá Bæjum á Snæfjallaströnd
lést á Fjórðungssjúkrahúsi Ísafjarðar þriðjudaginn
4. ágúst sl. Jarðsett verður frá Ísafjarðarkirkju laugar-
daginn 15. ágúst kl. 14.00.
Sigríður Helga Jensdóttir Valur Karl Pétursson
Friðbjört Elísabet Jensdóttir Þórir Kjartansson
Guðmundur Helgi Jensson
Freymóður Jensson Inga Jóna Björgvinsdóttir
Pálína Jóhanna Jensdóttir Þorbjörn Halldór Jóhannesson
Margrét Bjarndís Jensdóttir Kristinn Guðni Ebenesersson
Sigvarður Halldórsson Guðríður Elíasdóttir
Ingi Guðnason
Halldóra Magnúsdóttir Guðmundur M. Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigríður María Tómasdóttir
frá Sandeyri,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum
sunnudaginn 2. ágúst, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju 13. ágúst kl. 15.00.
Sigurborg Sigurbjörnsdóttir
Kolbeinn Sigurbjörnsson Helga Jónsdóttir
Tómas Sigurbjörnsson Kristín Nanna Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Gróa Bjarnadóttir
Skipalóni 8, Hafnarfirði, áður Hringbraut
50, Hafnarfirði,
lést sunnudaginn 9. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar.
Sigurður Guðjónsson
Bjarni Sigurðsson Rut Sigurðardóttir
Guðjón Sigurðsson Herborg Friðriksdóttir
Elín Sigurðardóttir Steingrímur Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur, afi og bróðir,
Jónas Teitsson
Hesthömrum 14, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 6. ágúst. Jarðarförin fer fram í
Dómkirkjunni fimmtudaginn 13. ágúst kl. 13.00. Blóm
og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins.
Inga Marta Jónasdóttir
Jónas Ingi Jónasson Áslaug Torfadóttir
Kristín Jónasdóttir Magnús Hjálmarsson
Birgitta Jónasdóttir
Ástbjörg Halldórsdóttir Teitur Jónasson
barnabörn og systkini.