Fréttablaðið - 11.08.2009, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 11.08.2009, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur 5.07 13.33 21.57 4.39 13.18 21.54 Í dag er þriðjudagurinn 11. ágúst 2009, 223. dagur ársins. Í gær grillaði maðurinn minn á svölunum. Hann er annálaður grillari enda hófsamur lífskúnstner fram í fingurgóma. Slíkir menn hafa undantekningarlaust ánægju af því að grilla á svölum; fá sér einn til tvo bjóra og heilsa gangandi vegfarend- um kumpánlega. Hann er meistari hinnar göfugu matargerðar listar smáborgarans, eins og bóka béusinn vinur minn kallar grillmennsku með fyrirlitningartón. ÉG SKELLI þó skollaeyrum við þusi þess bókvitra og horfi alltaf andaktug á eiginmanninn við amer- íska gasgrillið okkar. Slík glóðar- steiking þykir mér ein mergjaðasta táknmynd íslenskrar hamingju. Af því einu að finna ilm af steik stikna á teinum stendur mér sam- stundis fyrir hugskotssjónum blóm- um skreytt verönd, þar sem börn bregða á leik, sæt kona ber fram litríkt salat og við grillið stendur sterklegur fjölskyldufaðir klæddur svuntu með sniðugri áletrun; gjöf til hans frá vinunum úr golfinu eða old boys-boltanum. ÞAÐ er þráin eftir glötuðum tíma sem vekur upp þessi hughrif hjá mér um þessar mundir. Sú var tíðin að fólk hafði almennt ekki á tilfinn- ingunni að stoðir velferðarkerfisins gætu hrunið þá og þegar, flug rúss- neskra herflugvéla væri ógn við land og þjóð, heimsfaraldur kennd- um við svín ætti eftir að dynja yfir og Íslendingar hættu að vera til nema þeir gengjust við himinháum skuldum einhverra karlfauska. Ég man þá tíð þegar Ísland var best í heimi og Íslendingum allir vegir færir. Ég man eftir að hafa fundið sterklega fyrir þessari tilfinningu sem barn við kolagrill á Skaganum þar sem ég horfði á Jón Pál á sviði. Grillið og hamingjan voru bundin órjúfanlegum böndum frá fyrstu tíð í huga mér. ÉG ÁTTI mér því einskis ills von þarna á svölunum í gær og ákvað á smella kossi á þann heittelskaða, svona til að reyna blanda gleðileg- um minningum við það sem varir. Í augnablik hvarflaði maðurinn minn augum sínum af steikinni og það var eins og við manninn mælt. Illskulegur mávur sem hnitað hafði hringa yfir okkur steypti sér niður og stal einni steikinni. Fleiri ill- fygli gerðu tilraun til þess sama en maðurinn minn hratt þeim á brott með því einu að veifa grilltönginni eins og riddara Garðabæjar einum sæmir. Kannski er það vegna þess hve mjög ég kann að meta grill- mennsku að ég snöggreiddist og kallaði á eftir mávinum. „Veistu ekki að Gísli Marteinn býr í þessari götu!“ Ránfuglinum virtist standa gersamlega á sama. Glóðarsteiking borgarans Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.