Samvinnan - 01.06.1948, Blaðsíða 7
ir aðeins tín árum síðan var Hasa-
ströndin ósnortið eyðimerkursvæði,
lokað fyrir kristnum mönnum, öldótt-
ir sandflákar, sem ljómuðu í fjöl-
breyttu litskrúði við sóiaruppkomu og
sólarlag, unaðsfagrar vinjar. lítil ara-
bísk sveitaþorp og fiskiver, skuggaleg
virki hér og þar með turnum og skot-
raufum — og árþúsundagamlar rústir.
Þegár nú hinn frjálsi og stolti eyði-
merkurbedúíni kemur ríðandi á úlf-
alda sínum frá landi hillinganna og
heilsar hvítu mönnunum frá Texas
eða Chicago með ávarpinu ..Sala’am es
alaikum“, s\’ara þeir honum gjarnan
á sína vísu með sínu kumpánlega ,.0.
K„ boy“.
Hversu viöáttumikil eru oliusvceðin?
Bahreinéyjarnar iiggja hér um bil í
miðjum Persaflóa, sem er rúmlega
1000 km. langur (helmingur af Rauða-
hafinu). Eyjarnar eru átta talsins og
eru að flatarmáli 650 ferkm. með 120
þús. rbúa. Þær eru einnig nefndar
Perlueyjar, því að úti fyrir ströndun-
um er mjög auðugt af perluskel. Meira
en 1000 bátar með 15.000 kafara inn-
anborðs stunda þarna perluveiðar. og
er álraksturinn eftir árið um 20 millj.
króna \ irði. Og svo hefur ein auðlind-
in enn bætzt við — olían.
Hví skyldu ekki neðanjarðar-olíu-
lindir Irans og íraks, jarðfræðilega
séð, liggja áfram suður arabísku
ströndina milli El-Ko\Veit og Bahrein-
eyjanna? Það var þessi spurning, sem
brezki höfuðsmaðurinn Holmes var að
velta fyrir sér fyrir nokkrum árum, og
1931—32 fann hann raunar olíu á
Bahrein. Svo kornu Ameríkumenn
þangað árið 1932 með nóg fjármagn,
og það kom í ljós, að þarna voru mjög
auðug olíulindasvæði. Þremur árum
eftir að fyrst var farið að bora, var
framleiðslan orðin milljón tunnur, og
stöðugt finnst meiri og meiri olía.
Að vissu leyti tillieyrir olían Amer-
íkumönnum, en pólitískt séð eru yfir-
ráðin í hönclum Breta, því aðárið 1861
gerðu þeir vináttusamning við Ataiba-
þjóðflokkinn, þar sem svo er ákveðið,
að eyjarnar skuli vera sjálfstætt ríki
undir brezkri yfirstjórn. Að vísu hefur
,, 1 exaco” lialt þarna olíuhreinsunar-
•stöð síðan 1937, en brezki flotinn hef-
ur alger forréttindi um olíutöku til
sinna þarfa. Ein af eyjunum, Moharr-
aq, er viðkomustaður og áfyllingarstöð
fyrir flugvélar á leið til Incllands og
Austur-Asíu, og flugstöðin þar er ein
liinna stærstu og fullkomnustu í
heimi. Og á aðaleyjunni, Manamah,
hefur R. A. F. gert stóra og fullkomna
flugstöð. Og ekki er skortur á góðu
drykkjarvatni. Ekki er annað en að
sigla langt til liafs í Persaflóa og fvlla
vatnsgeymana frá uppsprettum, sem
erti undir hafsbotni. .
Mestu oliulindir i heimi.
Og nú hefur fundizt olía inni á
sjálfu meginlandi Arabíu, í Hasa, og
þaö eru auðugustu olíulindasvæði,
sem fundizt hafa íram til þessa. „Stand-
ard Oil of California“ og „Tlie Texas
Company" (Texaco) hafa fengið
vinnsluréttindi í Hasa, og Ibn Saud
konungur hefur selt þessum félögum
7