Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1948, Blaðsíða 26

Samvinnan - 01.06.1948, Blaðsíða 26
HVAÐ ER LYÐRÆÐI? (Framhald af bls. 9) Það keniur t. d. æði oft l'yrir, að orðið demokrati er notað um almenn- ing í landinu, þ. e. þá, sem lialda lýð- ræðinu uppi, í staðinn fyrir stjórnar- fyrirkomulagið sjálft. Hliðstæð er meðferð orðsins aristokrali, sem einn- ig er af grískum uppruna, og þýddi í öndverðu, nákvæmlega útlagt, „bez-tu manna stjórn“*(sbr. á íslenzku að beztu manna yfirsýn. — Þýð.). Á síðari tím- um hefur þetta orð algerlega breytt um merkingu og vei ið notað um að- alsmannastéttina í ýmsum löndum í stað þess að það þýddi upprunalega sérstakt stjórnarfyrirkomulag. Orðið aristokrat þýðir nú ekki lengur þátt- thakanda í aðalsmannastjórn, heldur blátt áfram aiiðugan mann eða mann af liáum ættum. Það er ástæðulaust og villandi að láta orðið demokrati fara sömu leið. Rétt er að tala um lýðræðislegar stofnanir, og er þá átt við þær stofn- anir, sem sérstaklega eiga við í lýð- ræðisríki eða sveitarfélagi með lýð- ræðissniði. Það verður heldur ekki tal- ið rangt að tala um lýðræðislegar skoðanir. en í slíkum skoðunum felst þá það. að lýðræði sé heppilegasta stjórnarfyrirkomulag, sem völ er á. Að tala um lýðræðislegt málfar eða lýðræðislegan klæðaburð nær hins vegar engri átt. Réttur verkamanna til að semja í lélagi við atvinnurekendur, er stund- um kallaður lýðræði. Það er rangt. Samningar og stjórnarfyrirkomulag er sitt hvað, enda eiga samningar sér stað a. m.. k. að nafninu til meðal jrjóða, sent ekki búa við lýðræðisstjórn. Samn- ingar milli stéttarfélaga og atvinnu- rekenda eru í rauninni eins konar Ijármálaglíma nrilli hinna tveggja að- ila, sem háð er í hófi eftir skynsam- legum reglum, sem settar eru af aðil- um og stundum af ríkjum. Munið, að lýðræði (demokrati) þýð- ir srrstakt stjórn a rfy ri rko m u lag og annað ekki — stjórnarfyrirkomulag, sem byggist á þjóðarvilja. Lýðræði og einræði Til jress að láta sér skiljast til fulls, hvað í lýðræðishugsuninni felst, er nauðsynlegt að gera sér jafnframt hug- mynd urn aðrar tegundir stjórnarfyrir- komulags og undirstöðuatriði þeirra. Stendur þá næst að íhuga það stjórnar- fyrirkomulagið, sem lýðræðinu er fjar- skyldast, þ. e. nútíma einræði. Afleið- ingar þess eru núlifandi kynslóð vel kunnar. Orðið diktatur, sem jrýðir einræði og notað er nú sem alþjóðaorð, er komið úr latínu. Um þýðingu jiess má lesa í Rómverjasögu. Diktatur þýddi með Rómverjum í öndverðu stjórnar- fyrirkomulag, sem einstaka sinnum var komið á í landinu, þegar ríkið var talið í yfirvofandi hættu og Jri fyrst og ifremst í styrjöld, ef við ofurefli var að etja. Þegar svo stóð á, var kosinn al- ræðismaður, sem , á latínu nefndist diktator (komið af latnesku sögninni dictari, sem þýðir að bjóða eða skipa fyrir). Alræðismaðurinn var einvald- rir, en aldrei lengur en sex mánuði í einu. Fræg er sagan um Cincinnatus, sem \ ar kosinn alræðismaður árið -158 f. Kr. Sendimenn ríkisins hittu hann, þar sem hann var að plægja akur sinn. Þar fluttu Jreir hintim þann boðskap. að hann liefði verið kjörinn alræðis- maður og falin stjórn rómverska hers- ins, sem jiá var í liáska staddiir. Cin- cinnatus lauk ætlunarverki sínu og hélt síðan áfram að plægja, ]>ar sem frá var horfið. Þessi saga mætti vera mönmim minnisstæð, j>\ í að hún sýn- ir, hverjum augtim hinir fornu Róm- verjar á lýðveldistímanum litu á ein- ræði. Saga Cincinnatus liefur endurtekið sig í lýðræðisríkjum \ orra tíma. Stjórn- arlormenn hafa stundum, jregar þjóðir Jreirra voru í liættu af völdum árásar- ríkja, fengið óvenjuleg völd í hendur, a. m. k. í reynd. Það er t. d. alveg víst, að Winston Churchill var ákaflega \oldugur niaður á meðan styrjöldin \ ið Þýzkaland stóð yfir. En undir eins og stríðinu var lokið, varð liann aft- ur. samkvæmt vilja meiri hluta þjóðar- innar, venjulegur borgari og jiegn, þrátt fyrir þá ómetanlegu Jrjónustu, sem hann hafði Ieyst af hendi fyrir þjóðina. Og Jietta gerðist án Jress að honum svo mikið sem dytti í hug að streitast á móti þjóðan'iljanum og halda völdum áfram. Einræðisstjórn sú, sem komið var á í Rómaveldi eftir að lýðveldið leið undir lok árið 51 e. Kr., svo og einræð- isstjórnir ýmsra Evrópulanda, er settar voru á stofn milli heimsstyrjaldanna, voru allt annars eðlis. Þjóðrinar fengu þeim ekki einræðisvald um takmark- aðan tíma. Þessar síðarnefndu einræð- isstjórnir komust á með þeim hætti, að einstaklingar tóku sjálfir völdin í sínar hendur með tilstyrk fámennra flokka og með Jiað fyrir augum að halda völdunum tim ótiltekinn tíma. Einvaldar þessir litu á sjálfa sig sem persónugerfinga ríkisvaldsins, og fylg- ismenn þeina trúðu á þá sem yfir- mannlegar verur. í auguni þeirra varð ríkið eins konar guðdómur og þegnar Jiess, hver og einn. aðeins svolítil ögn af hinni miklu ríkisheild, álíka ósjálf- stæð og frumur líkamans. Ríkið var allt í öllu (totalitár): Hvergi var greint milli ríkisvaldsins og umráðasvæðis einstaklinganna. Ætlunin var, að afmá einstaklingana sem sjálfstæðar verur. Einstaklingurinn var ekki til vegna sjálfs sín heldur ríkisins. Eða eins og Hermann Göring sagði: Honurn mátti ekki detta í hug að mynda sér skoðun um ríkisstjórnina, ekki einu sinni í draumi! Einvaldurinn sjálfur kallaði sig löggjafa og verndara laganna, en þegar til framkvæmda kom, reyndist hann algerlega óháður þeim lögum, sem hann hafði sjálfur sett, og Jreim reglum, sem hann hafði gefið út um framkvæmd þeirra. A keisaratímunum í Róm og það jafnvel, þegar verstu harðstjéirarnir sátu að völdum, veittu lögin og dómstólarnir hverjum [>egni raunar nokkurt öryggi um líf og eign- ir, svo framarlega sem liann var ekki talinn hættulegur keisaraveldinu og ekki svo auðugur, að einvaldurinn fengi ágirnd á eignum lrans. En í nú- ttma einræðisríkjum eru dómstólarnir ósjálfstæðir og þar með úr sögunni sérhver möguleiki einstaklingsins til að gæta réttar síns og koma fram sem frjáls maður gagnvart umboðsmönn- 26

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.