Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1948, Qupperneq 18

Samvinnan - 01.06.1948, Qupperneq 18
r Atök innan brezku samvinnuhreyfingarinnar Þess var nýlega getið hér í ritinu, að A. V. Alexander, landvarnarráðherra Breta og einn helzti forvígismaður kaupfélaganna í Bretlandi um áratugi, hefði á þingi samvinnumanna deilt harðlega á ritstjórn vikublaðsins Reyn- olds News fyrir að hafa látið kommún- 4 ista ná tangarhaldi á blaðinu og menga dálka þess kommúnistískum sjónar- miðum. Taldi liann þetta litt að vilja eða í anda samvinnumanna landsins, sem eiga og gefa út þetta íjölbreytta og víðlesna vikublað. Ritstjórinn svar- aði litlu síðar í blaðinu og afneitaði þar kommúnistaflokknum brezka og taldi blaðið enga samleið vilja eiga með honum. En þessum viðskiptum var ekki þar með lokið. Alexander birti nú fyrir skömmu ýtarlega grein í blaðinu, þar sem liann rökstuddi hina fyrri staðhæfingu sína með mörgurn tilvitnunum í blaðið, sem í ýmsum stórmálum, t. d. Tékkóslóvakíubylt- ingunni, hefði tekið málstað alþjóða- kommúnismans, gegn vilja og anda langflestra samvinnumanna landsins. Benti hann og á, að með þessu athæli hefði ritstjórnin lagt vopn í hendur áróðursmanna kommúnista víðs vegar, sem vitnuðu til þessa blaðs og brezku samvinnuhreyfingarinnar til stuðnings málflutningi sínum. (Þessar tilvitnanir kannast íslenzkir blaðalesendur við). Alexander fullyrðir í grein sinni, að stórkostlegur meiri hluti brezkra sam- vinnumanna, bæði ^utan samvinnu- flokksins og innan, styðji stefnu brezku stjórnarinnar og aðhyllist brezkt lýðræði og frelsi í stjórnmálum og séu því á öndverðum meiði við ' kommúnista. í sama blaði svarar ritstj. , Reynolds News þessum ásökunum, af- ( neitar enn konnnúnistum, . en telur hættu á að skrif Alexanders verði til þess að menn fari að líta á gagnrýni á stjórnarvöldin sem kommúnisma. Er það meginefni greinar hans. Þessi átök inngn brezku samvinnuhreyfingarinn- ar hafa vakið allmikla athygli í Bret- landi. Kunnugir telja, að hinn þraut- reyndi og vinsæli samvinnuleiðtogi, A. V. Alexander, liafi í þessu máli, túlkað skoðanir brezkra samvinnumanna yfir- leitt. að hafa með' þ\ í vakandi auga, því að æði misjafnt er upplag þeirra og fram- koma eins og gefur að skilja. Sum eru frek og vilja trana sér fram — eru augsýnilega vön að ráða býsna miklu heima, — önnur eru uppburðarlaus. bæld og feimin og eiga við mikla örð- ugleika að stríða með sjálf sig. Hér þarf að hjálpa og leiðrétta með Iagni og lipurð, svo að lítið beri á. Þriggja mánaða námskeið, sem Fræðsludeild KEA hafði síðastliðinn vetur var fjölsótt og bar góðan árang- ur. Alls voru innrituð 90 börn á aldr- inum 4—7 ára og fékk hvert þeirra 12 tíma kennslu. Kennsluna annaðist undirrituð, en frk. Rósa Gísladóttir annaðist undir- leik og aðstoðaði á ýmsan annan hátt. Að þessu námskeiði loknu skil eg betur en áður orð frk Lindström, þeg- ar hún sagði, að það væri eitthvað töfr- andi við að fást við smábarnaleikfim- ina. A. S. S. 18

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.