Samvinnan - 01.06.1948, Page 13
Frá aðalfundum kaupfélaganna
Kaupfélag Skagfirðinga.
Dagana 7. og 8. maí s. 1. var aðalfundur
Kaupfélags Skagfirðinga haldinn að Sauðár-
króki. Fundinn sátu 50 fulltrúar, auk fram-
kvæmdarstjóra, stjórnar, endurskoðenda og
deildarstjóra. Ellefu deildir eru nú innan
vébanda félagsins, með 957 félagsmönnum.
Fjölgar stöðugt meðfimum félagsins.
Samkvæmt ársskýrslu félagsins nam vöru-
salan alls kr. 10.371.051.82.
Innstæður viðskiftamanna voru í árslok
1947 kr. 6.079.267.59, og hafa hækkað á ár-
inu um rúmlega 1.7 millj.
Skuldir viðskiftamanna hafa enn lækkað
á árinu unt kr. 14.083.91, og eru nú kr.
48.639.97.
Hækkun innstæðna félagsins út á við nam
á árinu kr. 1.635.581.33.
Helztu framkvæmdir, sem félagið hefur
haft með höndum á árinu, erti bygging vöru-
geymsluhúss, vélaviðgerðaverkstæðis og osta-
kjallara. Vörugeymsluhúsið er að mestu full-
gert, mikil bygging og myndarleg. Viðgerða-
verkstæðið býr við ófullkomið húsnæði, enda
væntanlega aðeins bráðabirgðabygging. En
það hefur þó þegar bætt nokkuð úr brýnni
þörf. Vélum hefur fjölgað á síðustu árum,
þótt sú aukning sé að vonum aðeins lítið
brot af því, sem þyrfti að vera. Og þótt svart
sé í álinn nú um sinn, þá vona flestir, að
innan langs tíma rakni úr gjaldeyrisvandræð-
unum. Má þá enn vænta nýrra véla. Mun
því félagið óefað hafa fullan hug á að stækka
verkstæðið. Ostageymslan kom í góðar þarfir.
Hana vantaði tilfinnanlega. í framhaldi af
þeirri framkvæmd er félagið nú að hefja
byggingu nýs mjólkursamlagshúss. Hið ganda
var orðið ófullnægjandi með öllu. Félagið
sótti einnig um leyfi til frystihússbyggingar.
Fjárhagsráð neitaði. Sjálfsagt hefur það
haft til þess gild rök. En K. S. hefur líka
mikla þörf fyrir frystihússbyggingu. Núver-
andi frystihús félagsins er eitt með hinum
elztu hér á landi. Hvert ár, sem bygging þess
dregst, bakar skagfirzkum framleiðendum
mikið tjón.
Af tillögum, sem samþykktar voru á fund-
inum, má nefna eftirfarandi:
..Aðalfundur K. S., haldinn á Sauðárkróki
7.-8. maí 1948, vítir það ásta'nd, sem nú ríkir
í gjaldeyris- og innflutningsmálum, og skorar
á ríkisstjórn og Fjárhagsráð að hafa fullkom-
ið samræmi um útgáfu skönnntunarseðla og
tilsvarandi vörumagns, sem inn er flutt.
Jafnframt skorar fundurinn á sömu aðila,
að haga svo dreifingu skömmtunan'ara, að
hver einstaklingur geti fengið vöruna á sín-
um verzlunarstað."
Og ennfremur:
„Aðalfundur K. S. 1948 skorar á stjórn og
aðalfund S. í. S. að beita áhrifum sínum til
þess, svo sem frekast er auðið, að innflutn-
ings- og gjaldeyrislevfi verði á þessu ári og
framvegis, meðan hömlur standa, að því er
til kaupfélaganna tekur, ntiðuð við raunveru-
legar þarfir viðskiftamanna þeirra."
Úr stjórninni átti að ganga Gísli Magnús-
son í Eyhildarholti, en var endurkosinn.
Fulltrúar á aðalfund S. í. S. voru kjörnir
þeir Sveinn Guðmundsson, framkvæmdar-
stjóri félagsins, Tobías Sigurjónsson, bóndi,
•Geldingaholti, og Páll Þorgrímsson, bóndi,
Hvammi.
í fundarlokin mælti formaður félagsins
nokkur orð til Stefáns Vagnssonar, en hann
hefur nú starfað hjá K. S. í 10 ár og jafnan
átt miklum vinsældum að fagna, enda hinn
nýtasti starfsmaður og drengur ágætur.
KRON.
Aðalfundur Kaupfélags Reykjavíkur og
nágrennis var haldinn sunnudaginn 23. maí
1948. Fundinn sátu 109 fulltrúar, félagsstjórn,
framkvæmdastjóri og endurskoðendur, og
einnig nokkrir starfsmenn félagsins, sem gest-
ir. Formaður félagsins, Sigfús Sigurhjartar-
son, flutti skýrslu félagsstjórnar, en fram-
kvæmdastjórinn, ísleifur Högnason, flutti
skýrslu um hag og rekstur félagsins.
Vörusala félagsins árið 1947 nam kr.
17.698.205.76, en tekjuafgangur kr. 778.294.98.
Samþykkt var að úthluta í stofnsjóð og til
útborgunar 7% af ágóðaskyldum viðskiptum
félagsmanna.
Úr stjórn félagsins áttu að ganga: Theodór
B. Líndal, Sveinbjörn Guðlaugsson og Guð-
rún Guðjónsdóttir, og voru þau öll endur-
kosin.
Meðal tillagna þeirra, sem samþykktar
voru, var áskorun á yfirvöldin að auka leyfi
til innflutnings handa lélaginu, vítur til
meirililuta alþingis fyrir að fella á síðasta
vetri irumvarp, er tryggði samvinnufélögun-
um réttlátan innflutning, og áskorun til sam-
vinnumanna að sameinast undir forustu
Sambands íslenzkra samvinnufélaga til bar-
áttu fyrir leiðréttingu á því ranglæti, sem nú
ríkir, krala um aukna hlutdeild samvinnu-
félaganna í innflutningi heimilisvéla og
áskorun um rýmkun á kaffi og svkurskammti.
Kaupfélag Árnesinga.
Kaupfélag Arnesinga hélt aðalfund sinn
í júní-byrjun, að Selfossi. Hágur félagsins er
mjög góður, og heíur það haft margar og
merkilegar stórframkvæmdir með höndum ;i
síðasta ári. Má af þeim nefna, að stórhýsi
félagsins var tekið í notkun á árinu og unnið
var að hitaveitu fyrir kauptúnið, sem félagið
er að leggja frá Laugardælum, jörð sinni við
Selfoss.
Vörusala félagsins nam á s. 1. ári rúml. 15
milljónum kr.. én var á árinu 1946 11.6 millj.
Tekjuafgangur varð rúml. 320 þús. krónur,
og samþykkti fundurinn að greiða 4% af
ágóðaskyldri vöruúttekt til félagsmanna og
leggja [iað í stofnsjóð.
Eiga félagsmenn nú í stofnstjóði, eftir 17
ára starfsemi félagsins, rúmlega 1170 þúsund
krónur.
Félagið rekur útibú á Eyrarbakka. Hvera-
gerði og Stokkseyri, og eru þau stærstu verzl-
anirnar, hver á sínum stað.
Á Selfossi starfrækir félagið bifreiðasmiðju,
þar sem vinna yfir 80 manns, ennfremur
saumastofu og frystihús, — og lopaverksmiðju
í Hveragerði.
Þá hefur félagið nýlega keypt brauðgerðar-
hús á Selfossi, og byrjaði starfsemi þess á veg-
um félagsins um ntiðjan maímánuð s. í.
Á s. 1. ári var lokið smíði verzlunarhúss-
ins. í því eru 5 sölubúðir, skrifstofur, pant-
anaafgreiðslua, geymslur, saumastofa og fyr-
irhuguð kaffistofa fyrir starfsfólk. — Er húsið
allt hið vistlegasta og vinnuskiíyrði ágæt,
enda er þetta mikil bygging, eitt mesta stór-
hýsi á landinu.
Gamla verzlunarhúsið var rifið og byggt
ujjjj á öðrum stað, sem íbúðarhús fyrir starfs-
fólk félagsins.
Félagið hefur séð um lagningu hitaveitu
frá Laugardælum til Selfoss, og er henni nú
það langt komið, að aðalleiðslan er komin
vestarlega í þorpið, og búið að tengja nokk-
ur hús.
Standa vonir til, að heita vatnið verði
komið í öll hús í þorpinu á næsta hausti.
Um s. 1. áramót voru félagsmenn 1080.
Nýlega er lokið aðalfundi FDB, danska
samvinnusambandsins. Reikningar þess sýndu
vörusölu fyrir 298.4 millj. króna, miðað við
259.9 millj. árið 1946. Arður varð 7.8 millj.
króna, og neniur sú aukning 2.9 millj. króna
miðað við árið 1946.
★
Hópur bandarískra samvinnumanna ferð-
ast í sumar um Evrópulöndin til þess að
kvnna sér starlsemi kaupfélaganna, einkum
á Norðurlöndum.
★
\ s. 1. 10 árum hafa svissnesku kaupfélögin
tviifaldað vörusölu sína. Árið 1937 nam hún
200 millj. franka, en árið 1947 418 millj.
franka. Svissneska sambandið telur nú 566
kaupfélög, og hafði þeint fjölgað um 11 á
árinu 1947.
★
í Austurríki selja kaupfélögin 15% af
lielztu matvöru, en sala þeirra í landbúnaðar-
viirum nemur 70—80% af heildsölunni í þess-
um greinum.
13
111111111111111111111111111111l|(