Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1953, Page 8

Samvinnan - 01.03.1953, Page 8
Sumar hinar nýju tegundir kvikmynda krefjast þess, aÖ áhorfendur noti lituð gleraugu til að sjá myndirnar rétt. Myndin sýnir, hvernig umhorfs er i kvikmyndasal, þar sem slik mynd er sýnd. Myndirnar eru sýndar á bogamynd- uðu tjaldi, sem er hvorki meira né minna en 17 metra langt og 8 metra hátt. Getur því áhorfandinn snúið höfðinu til hægri og vinstri, og blasir myndin hvarvetna við honum, rétt eins og hann sæti á fremsta bekk í stóru leikhúsi. Þegar horft er á venju- lega kvikmynd, nær hún aðeins yfir 10—15 gráðu sjónvídd, og er þetta mjög lítið, þegar þess er gætt, að eðli- leg sjónvídd nrannsaugans er 165 gráður. „Cinerama“ nær hins vegar yfir 146 gráðu sjónvídd, eða næstum eins vítt og mannsaugað sér. Við þessa breytingu verða áhrifin þau, að áhorfandanum finnst hann ekki sitja og horfa á mynd framundan sér, heldur sér hann viðburði kvikmynd- arinnar gerast allt í kringum sig. Auk þess eru nú hátalarar víðs vegar um sýningarsalinn og koma hljóðin úr ýmsum áttum, eftir því hvar á mynd- inni sá er staddur, sem talar hverju sinni. „Cinerama“ kvikmyndir eru tekn- ar með nýrri aðferð. Eru notaðar þrjár linsur á kvikmyndavélinni og snúa þær í mismunandi áttir, þannig að fram koma þrjár myndir samtímis. Eru þær síðan skildar í sundur, og framkallaðar allar samtímis, í þrem mismunandi kvikmyndavélum, þegar myndin er sýnd. (Sjá mynd). Áhrif þessara mynda eru svo eðli- leg, að áhorfandinn ósjálfrátt beygir höfuðið, ef myndin er tekin úr bát, sem siglir undir brú, og ennað er eft- ir því. Hljóðin koma úr öllum áttum, stundum til hliðar eða jafnvel fyrir aftan áhorfendur, og myndin er ekki flöt, heldur „djúp“ eins og veruleik- inn. Uppfinningamaðurinn, sem fyrstur gerði „Cinerama“ kvikmyndir, heitir Fred Waller, og gerði hann uppfinn- ingu sína á styrjaldarárunum til þess að leysa þann vanda, að gefa flug- vélaskj^ttum tækifæri til æfinga við eðlilegar aðstæður. Ekki er þó talið, að þessi merkilega uppfinning geti rutt venjulegum kvikmyndum úr vegi, þar sem uppsetning tækjanna (þrjár sjmingarvélar í hverju húsi) er mjög dýr og mannahald við sýning- ar mjög mikið. Þegar hreyfing komst á þessi mál og ljóst varð, að almenningur hafði mikinn áhuga á þessurn nýjungum í kvikmyndagerð, hófst kapphlaup milli kvikmjmdafélaganna á þessu sviði. Fyrst kom fram svokölluð „Natural Vision“ gerð af kvikmynd- um, þar sem áhorfendur þurftu að vera með sérstök gleraugu (sjá mynd). Síðan kom „Cinemascope“, þar sem ekki er þörf gleraugna, og virðist sú aðferð hafa hvað mesta framtíðarmöguleika. Er aðeins notuð ein sýningarvél, en sýnt á tjaldi, sem er 21/9 sinnurn stærra en við hinar gömlu kvikm^mdasjmingar. Mun Fox kvikmyndafélagið hefja upptöku slíkra mynda í stórum stíl næsta haust, en Paramount byrjar upptöku á sínum myndum með sérstakri að- ferð, sem það kallar „Paravision“. Þá eru mörg fleiri félög að láta gera kvikmyndir með „Natural Vision“ að- ferðinni. Vafalaust getur einhver uppfinn- ingamaðurinn enn fullkomnað þessar nýju kviknvndaaðferðir á næstu ár- um og gert þær bæði betri og viðráð- anlegri. Hitt virðist augljóst, að þess- ar nýjungar boði kvikmyndir frarn- Dísarfell hleypur af stokkunum Nýlt kaupskip, „Dísarfell", sem er eign Sambands íslenzkra samvinnufélaga, hljóp af stokkunum í Hardinxvelt í Hollandi 5. fcbiúar, og sýnir mvndin skipið skömmu eftir að það var komið á flot. „DísarfeH‘‘, sem er um 900 þungalestir, hefur Hcimahöfn í horlákshöfn, og er væntanlegt hingað til lands í maímánuði í vor. 8

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.