Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1953, Blaðsíða 19

Samvinnan - 01.03.1953, Blaðsíða 19
uerkuðu þá jafnan fisk sinn í ver- cíðarlok og snemma sumars á heim- ilum sínum. Sjómenn áttu oftast hlut sinn inni hjá útgerðarmanni þar til fiskur bátsins var seldur fullverkaður. Bæði formenn og hásetar, þótt ekki væru bátseigendur, gerðust á þenná hátt aðilar að vörupöntunum og fengu sinn áætlaða hlut lagðan inn í kaupfélagið. Gufuskip komu á aðalhafnir Isa- fjarðardjúps og ég hygg einnig á Að- alvík og í Jökulfirði. Þar voru pönt- unarvörur afhentar undir umsjón trúnaðarmanns kaupfélagsins og deildarstjórans, jafnframt var tekið á móti'lofuðum fiski. Verzlunarbúð hafði félagið aldrei á Isafirði, en vörugeymsla þess var í húsinu, þar sem bílstjórafélag Isa- fjarðar hefur nú bækistöð. ★ Kaupfélag Isfirðinga var stofnað í marz 1888. Var þegar horfið að því að panta gufuskipsfarm af ýmsum nauðsynjavörum og skyldi skipið jafnframt flytja út verkaðan saltfisk, sem greiðslu fyrir vörurnar. I Þjóðviljanum 27. des. 1888 er þess getið, að Ogursveitungar hafi þá brugðist vel við með verzlun við fé- lagið, og einkum að láta það fá fisk. „Má eflaust þakka þeim að félagið komst á laggirnar“, segir þar. Einnig segir þar, að vegna samtakaleysis hafi ekki fengizt fullfermi í skipið og kostnaðurinn af farminum því orðið tilfinnanlegri en ella. Kaupendur ytra fundu farminum það til foráttu, að hann væri of smár og felldu farminn í verði um 1400 krónur. „Þrátt fyrir allt þetta,“ segir ennfremur, „hafa þó skiptin við kaupfélagið rejmst ólíkt hagkvæmari en við kaupmenn.“ — Fiskútflutningurinn þetta fyrsta ár félagsins er talinn 700 skippund. Árið 1889 er félagið sagt hafa flutt út um 1700 skippund, svo að misfell- urnar á fiskútflutningnum árið áður urðu ekki til að hefta þróun þess. Fé- lagið efldist nú hröðum skrefum. Fór þar saman sterkur samhugur félags- manna lengi vel og öruggt traust á kaupfélagsstjórninni. Á fulltrúaráðs- fundi 15. janúar 1890 var ákveðið að panta 2500 tunnur (rúmar 330 smá- lestir) af salti. — Einnig var afráðið að senda á árinu 900 til 1000 skip- pund af verkuðum smáfiski til Genúa á ítalíu og auk þess nokkru meira af stórfiski til Spánar. Tilsvarandi vörupantanir munu hafa verið gerðar. Deildunum í Ogurþingaprestakalli (Ögur- og Súðavíkurhreppum) var þá úthlutað 11 þúsund krónum, er var inneign þeirra að árslokum. Höfðu þó deildir þessar fengið töluverða pen- inga áður á félagsárinu. „Bregða má þeim við, er hafa þrúkkað um nokkrar krónur við búð- arborðið undanfarin ár,“ bætir Þjóð- viljinn við. Árið 1892 voru deildir félagsins taldar 14 og varasjóður kaupfélags- ins um 5000 krónur. Var það ekki smá upphæð á þeim árum. Næstu 4 til 5 árin stóð hagur Kaup- félags ísfirðinga með blóma. Á aðal- fundi þess 8. febr. 1897 voru deildirn- ar taldar 16. Hafði þá nýlega verið stofnuð deild í Sléttuhreppi, en nokk- uru árum í Grunnavíkurhreppi. Deildafulltrúarnir lögðu þarna fram vörupantanir og skýrðu jafnframt frá fiskloforðum félagsmanna. Lofaður fiskur nam þar 3000 skippundum. Var þetta mikil verzlunarvelta á þeirra tíma mælikvarða. Vöruverð kaupfélagsins var auð- vitað langt neðan við útsöluverð kaupmanna. Til marks um mismun vöruverðs í kaupfélaginu og kaup- mannaverzlunum Isafjarðar segir Þjóðviljinn 26. júlí 1896: „Kaupfélag Isfirðinga fékk í vor skipsfarm af salti og annan af kolum, og verður söluverð þessara vara með öllum erlendum og innlendum álagn- ingarkostnaði: 229-1 tunnur salt A 2 kr. 90 aur. kr. 0652,60 2367 skippund kol á 2 kr. 75 aur. — 6509,25 kr. 13161,85 Almennt kaupstaðarverð á þessum vörutegundum á Isafirði er: 2294 tunnur salt á 4 kr............ kr. 9176,00 2367 skpd. kol á 4 kr. 50 aur...... — 10651,50 kr. 19827,50 Á þessum tveimur vörutegundum hefur héraðið beinlínis grætt 6665 kr. 65 aur.“ Áður hafði kaupfélagsmaður gert svipaðan samanburð í Þjóðviljanum 7. jan. 1893. Þar tekur hann dæmi af tveimur mönnum, sem annar skiptir við kaupfélagið, hinn við kaupmanna. — Fyrir fisk sinn fær kaupfélagsmað- 19

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.