Samvinnan - 01.03.1953, Síða 11
stiklaði af þúfu á þúfu, bjóst við að
tudda yrði tafsamt í karganum og
keldunum. En ofsækjandinn dró á
flóttamanninn með herfilegum óhljóð-
um. Þá kastaði Uni bóndi klæðum,
eins og Lárus Rist á sundinu í Odd-
eyrarál: Fyrst fór olíuburan, svo
sparkaði hann af sér klofbússunum;
roðhatturinn og jakkableðillinn lönd-
uðu kyrfilega í brúnklukkupyttum.
Fjaðrafok ævintýrsins ruglaði ekki
nautið í ríminu. En Uni bóndi komst
líka í essið sitt. Hann baðaði út öll-
um skönkum, hælarnir námu við
rasskinnar. Það var eins og fljúgandi
engill væri á ferð um fúasundin, að
vísu býsna kámugur engill, útataður
af rauðaleirsslettum og angandi af
svitalykt. Það er nú heldur ekki nein
nýlunda í veraldarborunni, að stöku
engill stingist niður í forvaða jarð-
lífsins og glati geisladýrð guðdóms-
ins.
Eftir frækilegt kapphlaup komust
þeir báðir yfir mýrarflóann. Tók þá
við melalda. A öldunni lá stór, mosa-
vaxinn steindrangur. Ormagna af
þreytu og mæði skreið Uni bóndi upp
á þennan einbúa. Og þar munaði
sannarlega mjóu um undankomu.
Uni bóndi húkti þarna allt annað
en kempulegur: bullsveittur nötrandi
af vonzku og vanmætti. En eftir
nokkra stund voru talfærin í gang-
færu lagi. Jós hann úr sér svæsnum
kjarnyrðum og hroðalegustu formæl-
ingum: óskaði tudda í hundraðasta
og tuttugasta helvíti. Kvaðst hann
hundur heita, ef þessi meinfalski
svikahrappur týndi ekki lífinu; skyldi
hann umsvifalaust afhausaður og
beinskorinn.
En fóstri hans hljóp umhverfis
steininn, froðufellandi, með rauð-
sprengda augnabjóra barmafulla af
ofstækisfullu hatri, spam jörðina að
hnjám og notaði á sínu máli engu
betri munnsöfnuð.
— Ég þoli manninn minn ekki
lengur, sagði unga eiginkonan. Hann
er svo skapvondur við mig, að ég er
farin að leggja af.
— Af hverju yfirgefur þú hann þá
ekki?
— Ég ætla að láta hann koma mér
niður í 120 pund, áður en ég skil við
hann!
NÚ ÞEGAR SPURNING-
UNNI um það, hver taki viS
af Stalin, hefur verið svarað,
tekur við önnur spurning:
Hvað tekur við af Stalin?
Verða breytingar á utanríkis-
stefnu Sovétríkjanna? Eru
horfur á heimsfriði betri eða
verri en áður? Eins og fyrri
daginn er erfitt um svör. Að
vísu verður slíkum spurning-
um aldrei endanlega svarað
um neina ráðamenn, svo
margbrotin eru heimsmálin
og svo skjótt geta veðrabrigði
orðið. En um hina nýju valda-
menn í Moskvu er lítið vitað,
suma þeirra, og fáir utan
hallarmúra Kreml munu
heyra um þá togstreitu um
völd og aðstöðu, er vel kann
að verða þar.
í VESTUR-EVRÓPU var það
álit margra, að Stalin hefði á
seinni árum verið varkár, sér-
staklega í þeim málum, sem
leitt gátu til nýrrar styrjald-
ar. Eftir dauða hans er því
óttast, að sama varfærni
kunni ekki að ríkja í Moskvu,
og því sé hætta á óheillavið-
burðum meiri en áður. Þó er
þess að gæta, að Molotov, sem
lengst starfaði með Stalin að
utanríkismálum, mun aftur
taka við stjórn þeirra.
ANNARS eru kunnugustu
menn, sem um heimsmálin
skrifa, á einu máli um það, að
ekki sé rétt að vænta neinnar
stefnubreytingar í Moskvu.
Fyrst um sinn munu allir
keppast um að feta í fótspor
Stalins, og framkvæma
stefnu þá, sem hann mótaði.
Hinir nýju forustumenn eru
ekki vanir því að taka ákvarð-
anir i hinum alvarlegustu
málum á eigin spýtur, og
óvíst er, hversu vel þeir
treysta hver öðrum. Allt
skipulag mála er miðað við
Hvaö er 9
að gerast.
hið algera einræðisvald, sem
Stalin hafði, og það getur
reynzt erfitt að tvímenna í
slíkum söðli.
ENN SEM FYRR munu
stjórnmálamenn í hinum
frjálsu löndum fylgjast
gaumgæfilega með því, er
gerist í Moskvu. Þeir munu
skoða myndir af hersýning-
um til að sjá, hverjir standa
næst Malenkov. Þeir munu
athuga, hverjir flytja ræður
og skrifa greinar í blöð. Allt
slíkt gefur bendingar um
breytingar í Kreml, og eftir
öðru er varla hægt að dæma.
Það er algengt, að umheim-
urinn fái ekki að heyra um
breytingar þar fyrr en eftir
dúk og disk, og vissi til dæmis
enginn um breytingu á emb-
ætti æðsta herforingja Sovét-
ríkjanna, fyrr en nafn hans
stóð undir veizluboði, og
valdamesti maður landsins
var lengi vel ekki forseti eða
forsætisráðherra, heldur rit-
ari kommúnistaflokksins.
(Framh. á bls. 25).
11