Samvinnan - 01.03.1953, Page 25
vissum árafjölda. Raforkuna á verk-
smiðjan að fá á „heildsöluverði“ eða
svo ódýrt sem unnt er. Allur rekstur
verður að vera hagsýnn og einfaldur
og svo stjórnskipan. Hér má ekki reisa
skrifstofubákn og nefndafargan, sem
yrði beinasmiðja handa gæðingum
stjórnmálaflokkanna.
8. Jafnhliða áburðarverksmiðjunni
rísa hinar miklu rafstöðvar við Sog
og Laxá. Bændur sunnanlands og
norðan verða að krefjast þess, að raf-
magn þaðan verði lagt um allt þétt-
býli sveitanna, en að afskekktari jörð-
um verði gert kleift að koma upp
einkastöðvum, með vatnsafli eða
dieselhreyflum. Rafnmagn er svo stór
þáttur í lifnaðarháttum og atvinnu-
lífi nútímans, að engar vonir standa
til, að byggðin viðhaldist eða eflist
þar sem það skortir. Rafveitur eru
líka frumskilyrði þess, að iðnstöðvar
rísi út um sveitir og að öll iðja safn-
ist ekki í fjölmenni borganna.
9. ’Eitt meginskilyrði nýtízku bún-
aðar er örugg fræðileg aðstoð. Þessi
fræðilega aðstoð er örðugri hérlend-
is en víðast annarsstaðar, vegna sér-
stæðra landshátta og fámennis.
Við bændur finnum glöggt, að hér
skortir mikið á. Efla þarf búvísind-
in á innlendri reynslu. Hér þarf menn,
sem selja okkur hagkvæmar ræktun-
arvörur og verkfæri. Meðal annars má
nefna, að milljóna skaða hafa bænd-
ur beðið að undanförnu vegna þess,
að gróður af grasfræi, sem fengizt
hefur síðustu árin, dejm út á öðru eða
þriðja ári.
Enn vantar ræktunarsamböndin
marga tækni. Það er draumur margra,
sem á síðustu árum hafa þurrkað tugi
hektara, að fá hið þurra land sléttað
á ódj'ran hátt, þannig að sem minnst
deyi af hinum staðlæga gróðri, bera
síðan tilbúinn áburð á og heyja með
vélum. Ef þingi og stjórn er nógu
ljóst, að framtíð Islands byggist á
notkun og eflingu hinna varanlegu
verðmæta í frjómætti jarðar og afli
fallvatna, mun á næstu árum hefjast
nýtt blómaskeið atvinnulífsins með
nýrri tækni.
Yztafelli á bóndadaginn 1953.
Jón Sigurðsson.
Kvikmyndir
framtíðarinnar
Framh. af bls. S.
tíðarinnar og svar þeirra við sjón-
varpinu. Einn kunnur kvikmynda-
stjóri í Hollywood hefur þegar spáð
því, að fyrir lok þessa árs muni 2500
kvikmyndahús í Bandaríkjunum
verða byrjuð að sýna „Cinemascope“
myndir, og aðrir taka í sama streng.
Það er ekki um að villast, hvert stefn-
ir.
Hvað gerist?
Framh. af bls. 11.
STALIN var oft kallaður
„Ghengis Khan með síma“.
Sú samlíking við hinn forna
alvald Asíulanda er að því
leyti röng, að völd Stalins
hafa án efa verið meiri og
vafasamt er, að nokkur mað-
ur hafi nokkru sinni ráðið
svo miklu yfir svo stóru
landssvæði. Hann skildi
manna bezt, eftir 29 ára
stjórn, að slík völd mundu
í hættu, ef um þau væri bar-
izt. Hann vildi sýnilega ekki
láta endurtaka þá baráttu,
sem hann sjálfur háði til að
vinna þessi völd. Þess vegna
hefur hann verið búinn að
ganga frá stöðuveitingum
fyrir dauða sinn. En hitt er
óreynt, hvort sú skipan helzt
til frambúðar, án þess að til
einhverra átaka komi. Það
mun tíminn leiða í ljós.
SVISSNESKU KAUPFÉLÖGIN
hafa nú opnað 102 sjálfafgreiðslu-
verzlanir, þar á meðal leikfangaverzl-
un í Genf.
FINNSK KAUPFÉLÖG
hafa nú ráðið til sín fjölda sérfræð-
inga í sölumennsku og þjónustu
verzlana við viðskiptamenn, og er
ætlunin að gera kaupfélagsbúðirnar
enn vinsælli meðal almennings. Sér-
fræðingar þessir dveljast að jafnaði
tvær vikur í hverri búð og starfa þá
fullan vinnutíma með fólkinu. Elanto
í Helsinki hefur 15 slíka sérfræðinga
í þjónustu sinni.
FINNSKA SAMBANDIÐ S.O.K.
hefur í tilefni af 50 ára afmæli sínu
1954 ákveðið að gefa 5.000.000 finnsk
mörk (um 350.000 ísl. kr.) til lista og
menntamála. Hefur sambandið leitað
til háskólans og samtaka vísinda- og
listamanna um samvinnu um úthlut-
un fjárins.
MIKIL DEILA
hefur staðið milli bókaútgáfu
danskra samvinnumanna (Det Danske
Forlag) og bóksala undanfarin ár. Er
henni nú lokið á þann hátt, að bók-
salar munu selja bækur forlagsins, en
þó því aðeins, að þær verði ekki seld-
ar í kaupfélagsbúðum innan 5 km.
hrings frá hverjum bóksala!
BASUTALAND
í Afríku hefur nú haft þriggja ára
reynslu af samvinnustarfi. Nýlendu-
stjórnin gekkst fyrir stofnun fyrstu
samvinnufélaganna, aðallega til að
skipuleggja ullarsölu og framleiðslu.
Neytendafélög hafa hins vegar átt
erfiðara uppdráttar í samkeppni við
auðugar, erlendar verzlanir.
ikið úrval
varahluta
JJjrá llariéfa r h.J.
25