Samvinnan - 01.03.1953, Side 29
S^/-frakkar
með WELLINGTON sniði (t.v.)
og RAGLAN sniði (t.h.)
Fyrirliggjandi
GEFJUN - IÐUNN
Kirkjustræti - Reykjavík
í húsið, sá hann að hún var fegurri en hann hafði gert sér
ljóst áður, þrátt fyrir grátinn og aurug föt hennar. Hann
fann í henni einhvern ljóma, sem hann hafði ekki séð í öðr-
um konum.
Hann vakti eina þjónustustúlkuna og lét færa Helenu
súpu og ávexti. Það var búið um hana í herbergi, sem var
langt frá svefnherbergi hans sjálfs. Hún sagði ekki neitt,
nema hvað hún svaraði já og nei við spurningum hans
um það, hvað hún vildi borða. Það var eitthvað óvana-
legt við hana. Hún var eins og villtur fugl, sem hefur ver-
ið settur í búr innanhúss.
Um morguninn vakti ein af þjónustustúlkunum Ogden
til að segja honum, að unga konan væri mjög mikið veik,
og virtist ekki vita, hvar hún væri. Þetta var upphaf af
löngum veikindum hennar, sem urðu til þess, að Ogden
frestaði brottför sinni til Ameríku. Læknar stunduðu hana
og vissu lengi vel ekki, hvort hún mundi lifa eða deyja.
Það var sérkennilegt við þessa atburði, að enginn mað-
ur á allri Rivieraströndinni virtist sakna konunnar. Það
bárust engar tilkynningar um hvarf hennar til lögregl-
unnar, og Ogden neyddist til að fá leynilögreglumenn til
að rannsaka málið, þegar læknarnir heimtuðu að vita
nafn sjúklingsins. Eftir þrjá daga færðu lögreglumenn-
irnir honum þær upplýsingar, að konan væri austurrísk,
héti frú Múller og hefði búið á litlu gistihúsi í Monte
Carlo. Konan, sem átti gistihúsið, hafði ekki haft áhyggj-
ur af hvarfi hennar, þar sem hún hafði tilkynnt, að hún
mundi verða burtu í nokkra daga, og auk þess skilið eftir
farangur sinn. Vegabréf hennar fannst í farangrinum, og
Ogden lét flytja eigur hennar allar yfir í hús sitt.
Flestir hefðu sent stúlkuna á sjúkrahús eða hressing-
arhæli, en Ogden hafði yndi af ævintýrum og hann vildi
lifa á sem óvenjulegastan hátt, svo að hann hafði hana
kyrra í húsi sínu. Henni hefur sjálfsagt skilizt nægilega
fljótt, að hún hafði ekkert að óttast af hans hendi. Hann
sagði henni, hver hann væri. Hann útskýrði einnig fyrir
henni, hversu ríkur hann væri, að hann gæti ekki eytt
tekjum sínum öllum, og hún þyrfti því ekki að óttast
kostnað. Það kom honum á óvart að heyra, að hún væri
sjálf vel efnum búin, og hún bað hann að halda saman
kostnaði, sem hann yrði fyrir hennar vegna, svo að hún
gæti endurgreitt honum. En fyrst í stað sagði hún ekkert
um það, hvers vegna hún hefði legið grátandi í urð við
vegarbrún um miðja nótt.
Hún hresstist smám saman, þrátt fyrir það, að hún
virtist ekki hafa neina löngun til að lifa. Henni virtist
standa á sama um allt og alla. Jafnvel er þau voru að tala
saman kom það fyrir, að hún virtist hverfa ofan í djúp
gleymskunnar.
Ogden varð smám saman ástfanginn af henni, þar sem
hún sat veikburða á svölunum við strönd Miðjarðarhafs-
ins og virtist dáleidd af því að stara of lengi í augu dauð-
ans. Hann varð ekki ástfanginn í henni á venjulegan hátt,
eins og ég eða þú eða elskhugi hennar í Bad Múnster,
heldur fylltist hann djúpri lotningu, sem átti helzt skylt
við aðdáun á gömlu listaverki. Hún var í augum hans
dýrmæt eign, sem varð að fara vel með.
29