Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1954, Blaðsíða 3

Samvinnan - 01.02.1954, Blaðsíða 3
SAMVINNAN V____________ Nýjar og betri íoábir Þeir munu nú vera fáir, sem ekki vilja viðurkenna hinn mikla þátt samvinnumanna í nýbyggingu atvinnulífsins síðan í styrjaldarlok. Hins vegar heyrast þær raddir, sem spyrja, hvort samvinnumenn hafi ekki gleymt sjálfri verzl- uninni í ákafa sínum við starf á öðrum sviðum. Er í raun og veru ekki óeðlilegt, að slík spurning vakni, því að jafn- an ber meira á nýjungum og framkvæmdum þeirra starfs- greina, sem nýjar eru af nálinni en hinna eldri. * Svarið við þessari spurningu er stutt og skýrt: Ekkert getur verið fjær sanni en það, að samvinnumenn hafi misst áhuga á sjálfri verzluninni eða vanrækt hana. Þvert á móti má segja, að framkvæmdir þeirra á öðrum sviðum, sérstaklega í skipaútgerð, séu til þess gerðar að greiða fyr- ir verzluninni. * Arangur hinna nýju starfsgreina Sambands íslenzkra samvinnufélaga: siglinga, trygginga, nýju verksmiðjanna, bókaútgáfu o.s.frv. hefur verið ánægjulegur. En á sama tíma má ekki gleyma því, að frumdeildir Sambandsins, útflutnings- og innflutningsdeildirnar, hafa vaxið risa- skrefum og eru að líkindum hvor um sig stærsta og næst stærsta verzlunarfyrirtæki landsins. Þetta hefur gerzt á árum hinna verstu erfiðleika í verzluninni, þegar vöru- skortur ríkti árum saman. Síðan honum létti hefur skort- ur á veltufé tekið við, en þó ekki orkað að skyggja á starf deildanna. Ef litið er til kaupfélaganna víðs vegar um land, verð- ur hið sama uppi á teningnum varðandi verzlunina, enda þótt félögin hafi unnið mörg stórafrek fyrir atvinnulíf félagsmanna og þjóðarinnar allrar. Það má heita sama, hvaða landsfjórðung farið er um; alls staðar blasa við augum ný verzlunarhús kaupfélaga, alls staðar aka nýjar og fullkomnari bifreiðar kaupfélaganna hlaðnar vörum um héruð. Sjálfsagt geta flestir samvinnumenn fundið einhvern galla á starfinu í sínu héraði. Seint verður það fullkomið. En allt er þetta gert til þess að bæta dreifing- arkerfið og koma vörum á fljótari hátt og ódýrari til fé- lagsmanna eða frá þeim, og allt er þetta gert að ráði beztu manna í hverju félagi, því að lýðræðislegri verzlunarskip- an hefur enginn bent á enn. * Þótt vel hafi verið unnið fyrir verzlunina undanfarin ár, blasa nú stærri verkefni við augum. Nýjar verzlunarað- ferðir hafa verið teknar upp víða um lönd og hafa ger- breytt skipulagi flestra smásölubúða. Þessar nýju búð- ir, sjálfsafgreiðslubúðirnar svonefndu, hafa reynzt ódýr- ari, þægilegri og skemmtilegri en gamla kerfið með sín- um búðardiskum. Þessi nýja búðaskipan hlýtur því að koma einnig hingað til lands, þar sem hún á við, og hafa samvinnumenn, bæði forystumenn Sambandsins, einstak- ir kaupfélagsstjórar og starfsmenn sýnt málinu mikinn áhuga og aflað mikillar undirbúningsþekkingar. 3

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.