Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1954, Blaðsíða 26

Samvinnan - 01.02.1954, Blaðsíða 26
* * * * * * * * -K * C E F T I R ARMEN PROSPER MÉRIMÉE „Heyrðu kanarífugl; við munum hittast aftur, áður en þú verður hengdur. Ég er á förum til Gibraltar í verzlun- arerindum, en þú munt bráðlega fá fréttir af mér.“ Áður en við skildum, sagði hún okkur frá stað, þar sem við gætum leitað hælis í nokkra daga. Þannig var Carmen okkar forsjón. Bráðlega fengum við senda peninga frá henni — og það sem dýrmætara var: þær fréttir, að tveir enskir aðalsmenn myndu fara frá Gibraltar til Granada á tilteknum degi eftir leið, sem Carmen tilgreindi. Þetta reyndist orð að sönnu. Þessir heiðursmenn áttu næga peninga. Garcia vildi drepa þá, en El Dancaire og ég vorum því andvígir. Við tókum aðeins af þeim pening- ana, úrin — og skyrturnar, en þeirra þörfnuðumst við sárlega. Herra minn; þannig geta menn gerzt ræningjar án þess að vita sjálfir af því. Ég felldi ofurást til stúlku, barðist við annan mann um ástir hennar, varð valdur að óhappa- verki. Ég neyddist til að leggjast út og flýja til fjalla, og fyrr en varði hafði ég breytzt úr smyglara í ræningja. Við- skipti okkar við ensku aðalsmennina sýndu okkur fram á, að ráðlegast væri að halda sig í nágrenni Gibraltar, og eftir þetta höfðum við aðsetur í Sierra de Ronda. Ein- hverju sinni minntust þér á José-María við mig. Það var þar, sem fundum okkar bar saman. Hann var vanur að hafa konu sína með sér á ránsferðum sínum. Hún var fög- ur kona, hæggerð og lítillát, vel siðuð og orðvör, og hún var honum mjög trú. Á hinn bóginn gerði hann henni líf- ið mjög leitt með framkomu sinni. Hann var alltaf að gera hosur sínar grænar fyrir öðru kvenfólki, hann fór illa með hana, og stundum átti hann það til að verða af- brýðissamur. Dag nokkurn særði hann hana með hnífi. Hún varð honum aðeins ennþá fylgispakari fyrir bragðið! Konur eru nú einu sinni þannig og sér í lagi þær andalús- ísku. Þessi kona var hrifin af örinu á handlegg sínum, og henni þótti gaman að sýna það, eins og það væri fegursti skartgripur í heimi. Því fór fjarri, að José-María væri góð- ur félagi. í einni ránsferð, sem við fórum í félagi við hann, tókst honum að hremma allan ágóðann, en við sátum uppi með óþægindin og fyrirhöfnina. En nú verð ég að taka til við frásögnina, þar sem frá var horfið. Við fengum engar fréttir af Carmen. El Dancaire sagði: „Einhver okkar verður að fara til Gibraltar til þess að fá fréttir af henni. Hún hlýtur að hafa gert einhverjar ráðstafanir. Ég mundi ekki víla fyrir mér að fara sjálfur, ef ég væri ekki alltof þekktur í Gibraltar.“ El Tuerto sagði: „Ég er líka vel þekktur þar um slóðir. Ég hef svo oft leikið á brezku her- mennina, og þar sem ég er eineygður, er ekki svo auðvelt fyrir mig að dulbúa mig. „Ég býst þá við, að ég verði að fara,“ sagði ég og gladd- ist við tilhugsunina um að fá að sjá Carmen aftur. „En hvernig á ég að haga ferðinni?“ Hinir svöruðu: „Þú verður annað hvort að fara sjóleiðis eða landleið- ina gegnum San Rocco. Þú ræður sjálfur, hvora leiðina þú velur. Þegar þú kemur til Gibraltar, skaltu ganga nið- ur að höfninni og spyrjast fyrir um sölukerlingu, sem nefnist La Rollona. Þegar þú kemst á hennar fund, mun hún segja þér allt af létta.“ Það varð að ráði, að við færum allir til Sierra, en þar átti ég að skilja við félaga mina og halda til Gibraltar, dulbúinn sem ávaxtasali. Þegar ég kom til Ronda, útbjó einn félagi okkar vegabréf handa mér; í Gaucin var mér fenginn asni. Ég klyfjaði hann appelsínum og melónum og hélt svo áfram ferðinni. Þegar ég kom til Gibraltar, komst ég að raun um, að margir könnuðust við La Roll- ona, en annaðhvort var, að hún var dauð eða þá farin ad jinibus terrce, og í huganum setti ég hvarf hennar í samband við þá staðreynd, að Carmen hafði ekkert lát- ið frá sér heyra. Ég kom asnanum í hús og tók svo að reika um bæinn. Eg hafði ávextina meðferðis og lét sem ég væri að selja þá, en í rauninni ætlaði ég að vita, hvort ég kæmi ekki auga á einhvern, sem ég þekkti. Bærinn er fullur af alls kyns lýð frá öllum heimshornum, og að því leyti svipar honum til Babelsturnsins, að ekki er hægt að ganga þar tíu skref á götu án þess að heyra að minnsta kosti jafn mörg tungumál töluð. Ég kom auga á nokkra tatara, en ekki þorði ég að ræða við þá af trúnaði. Ég var á varðbergi gagnvart þeim á sama hátt og þeir voru á varðbergi gagnvart mér. Réttilega töldum við hver aðra ræningja með nokkurri vissu, en aðalatriðið var að kom- ast að raun um, hvort við tilheyrðum sama flokki. Dag einn, þegar liðið var að sólsetri, heyrði ég, að kona kall- aði til mín niður á götuna: „Ávaxtasali!“ Ég hafði þá 26

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.