Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1954, Blaðsíða 29

Samvinnan - 01.02.1954, Blaðsíða 29
þú gerðir út af við hann, en“ — bætti hún við með því djöfullega glotti, sem átti engan sinn líka —“ mér kem- ur annað og betra ráð í hug. Láttu El Tuerto ganga á undan, en þú skalt halda þig bakatil við hann. Englend- ingurinn er hraustleikamaður og góð skytta, og hann á góðar byssur. Skilurðu?“ Svo rak hún upp hlátur, svo að mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds. „Nei,“ svaraði ég, „ég hata Carcia, en hann er félagi minn. Vel má vera, að ég eigi eftir að losa þig við hann einn góðan veðurdag. En þegar þar að kemur, munum við gera upp sakir okkar í samræmi við venjur þjóðar minnar. Þó að ég lifi nú tataralífi fyrir tilviljun eina saman, mun ég ávallt verða hreinn Navarrobúi í ýmsum greinum, eins og máltækið segir.“ „Þú ert asni,“ „hrópaði hún, „einfeldningur, sannkall- aður 'payllo. Þú ert eins og dvergur, sem þykist vera stór, ef hann aðeins getur spýtt nógu langt. Þú elskar mig ekki! Burt með þig!“ I hvert skipti sem hún sagði við mig, „burt með þig!“, gat ég ekki farið. Ég hét henni að fara aftur til félaga minna og bíða komu Englendingsins. Hún fyrir sitt leyti Iofaði því að þykjast vera veik, unz hún færi frá Gibralt- ar til Ronda. Ég var ennþá tvo daga um kyrrt í Gibraltar. Carmen gerðist svo djörf að dulbúa sig og heimsækja mig á veit- ingahúsið, þar sem ég bjó. Svo hélt ég af stað. Ég hafði afráðið, hvað gera skyldi. Ég hitti félaga mína á hinum fyrirfram ákveðna stað og flutti þeim fregnina um fyrir- hugað ferðalag Englendingsins og Carmenar. Ég komst að raun um, að El Dancaire og Carcia biðu mín. Við höfðum náttstað í skógi nokkrum og gerðum þar eld af furugreinum. Ég stakk upp á því við Garcia, að við slægj- um í spil, og var hann því samþykkur. I annarri umferð bar ég það á hann, að hann hefði rangt við; þá fór hann að hlæja. Ég kastaði spilunum í andlit honum. Hann ætlaði að grípa til byssunnar. Ég steig á hana og mælti: „Það er sagt, að þú sért öllum föntum fremri við að beita hníf; viltu ekki reyna þig við mig?“ El Dancaire reyndi að skilja okkur. Ég hafði veitt Garcia einn eða tvo pústra, og við reiðina jókst honum hugrekki. Hann dró hníf sinn úr slíðrum og ég gerði slíkt hið sama. Báðir sögðum við El Dancaire, að hann skyldi ekki skipta sér af okkur. Hann sá, að erfitt mundi reynast að halda aft- ur af okkur, og dró hann sig því í hlé. Carcia hafði þegar hniprað sig saman eins og köttur, sem er í þann veginn að stökkva á mús. Með vinstri hendi bar hann hattinn fyrir sig eins og skjöld en í hægri hendi hélt hann á hnífnum að hætti Andalúsíubúa. Ég bjóst til varnar eins og Navarrobúa er siður, bar vinstri hendina fyrir mig, steig fram á vinstra fót og hélt hnffnum niður með hægri hliðinni. Mér fannst ég vera jötunefldur. Hann þaut í áttina til mín eins og ör af streng. Ég snerist á hæli á vinstra fæti, svo að ekkert varð til fyrirstöðu, þegar hann kom að mér, og rak hnífinn á kaf í háls honum upp að hjöltum. Við átökin brotnaði blaðið; hann þurfti ekki meira. Þegar ég dró hnífinn að mér, stóð þverhandar- breið blóðbunan úr sárinu og Carcia féll endilangur fram fyrir sig á jörðina. ............................mmmmmmmmmmmmmimmi IÐUNNAR-SKÚR ERU SERSTAKLEGA LAGAÐIR FYRIR ÍSLENZKA FÆTUR — ! SMEKKLEGIR * VANDAÐIR * ÓDÝRIR SKINNAVERKSMIÐJAN IÐUNN immmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmiiiiii 29 ...................................................................................immmmmmmmmmmimmmmmmm......................mmmmmmi

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.