Samvinnan - 01.02.1954, Qupperneq 24
dcÁ kahífa Ctnilij
(Framh. af bls. 12)
fyrir innan við glugga, en út kom hún
ekki, fyrr en hálfu ári síðar. Og okk-
ur varð ljóst, að þetta var ekki ann-
að en það, sem búast hefði mátt við.
Hún var ennþá á valdi föður síns
heitins. Hann hafði ótal sinnum áð-
ur eyðilagt líf hennar, og honum hafði
tekizt að gera það einu sinni enn.
Næst þegar við sáum fröken Emily,
hafði hún breytzt mikið. Hún var
orðin feit og hárið tekið að grána. Það
gránaði meir og meir, eftir því sem
árin liðu, unz það hafði fengið á sig
þennan sérkennilega stálgráa lit, sem
maður setur venjulega í samband við
duglega kaupsýslumenn. Þá hætti
það að breytast. Þessum lit hélt það,
þangað til hún dó sjötíu og fjögurra
ára að aldri.
Eftir að þetta skeði, voru aðaldyrn-
ar ávallt lokaðar, nema þessi sex eða
sjö sumur, sem hún kenndi postulíns-
málun. Það voru dætur betri borgar-
anna, sem fóru í þessar kennslustund-
ir af sömu skyldurækninni og þær
fóru í sunnudagaskóla eða kirkju.
Arin liðu og önnur kynslóð tók við
af samtímamönnum Sartoris ofursta.
Dag eftir dag, mánuð eftir mánuð og
ár eftir ár gátum við séð negrann eld-
ast, verða hærðari og lotnari, þar sem
hann gekk út og inn og fór í búðir.
í desembermánuði ár hvert var henni
sendur skattreikningur, sem hún end-
ursendi án þess að greiða hann. Stund-
um sást henni bregða fyrir innan við
glugga neðri hæðarinnar. Sennilega
hafði hún hætt að nota þá efri. Þann-
ig gekk hún frá kynslóð til kynslóð-
ar — ástfólgin, óhjákvæmileg, óað-
gengileg, þögul og einkennileg.
Þannig dó hún. Hún lagðist veik í
þessu rykuga og skuggalega húsi, þar
sem enginn var til að annast hana,
nema skjögrandi negrinn. Við vissum
ekki einu sinni, að hún var veik. Menn
voru fyrir löngu búnir að gefa negr-
ann upp á bátinn sem sögumann,
enda talaði hann aldrei við neinn, lík-
lega ekki einu sinni við hana. Að
minnsta kosti var rödd hans orðin
hrjúf og rám, líkt og af notkunarleysi.
Hún dó í einu herbergjanna niðri,
þar sem hún lá í þungu, tjölduðu val-
hnotuviðarrúmi. Litarhátturinn var
orðinn gulur og ljótur af stöðugri
inniveru.
V.
Negrinn tók á móti konunum, sem
fyrstar komu á vettvang, við aðal-
dyrnar og hleypti þeim inn. Þær hvísl-
uðust á og litu forvitnar í kringum
sig, en hann hvarf. Hann gekk rak-
leiðis gegnum húsið, út um bakdyrn-
ar og sást ekki framar.
Frænkurnar tvær komu strax. Ut-
förin var gerð á öðrum degi, og bæj-
arbúar komu til að virða fröken Emily
fyrir sér, þar sem hún hvíldi í haug
af keyptum blómum, en blýantsteikn-
að andlit föður hennar virti fvrir sér
líkbörurnar og frúrnar, sem hvísluðu
án afláts. Elztu mennirnir þóttust all-
ir hafa þekkt Emily og beðið hennar.
Ef til vill voru þeir farnir að ruglast
í ríminu.
Þá þegar vissum við, að eitt var
það herbergi á efri hæðinni, sem eng-
inn hafði augum litið í fjörutíu ár
og það þurfti að brjóta upp. Þeir
stilltu sig þó um það, unz fröken Em-
ily var komin niður í gröfina.
Atökin við að brjóta upp hurðina
þyrluðu upp ryki, sem fyllti herberg-
ið. Beizkur, kaldur blær, eins og í graf-
hvelfingu, var á öllu í herberginu, sem
var útbúið eins og svefnherbergi
brúðhjóna. Þessi annarlegi blær hvíldi
yfir upplituðum gluggatjöldunum,
rauðum lampaskermunum, snyrti-
borðinu, þar sem krystalkrukkum var
raðað upp hlið við hlið og burstasett
úr silfri lá. Svo mjög var fallið á silfr-
ið, að áletrunin var ólæsileg. Þarna
lágu líka flibbi og bindi eins og þau
hefðu nýlega verið notuð, en þegar
því var lyft upp, skildi það eftir sig
greinilegt far í rykinu. Á stól voru
vandlega samanbrotin föt. Skór voru
á gólfinu og sokkar líka.
Maður lá í rúminu.
Lengi vel stóðum við þarna og virt-
um fyrir okkur stirðnað og holdlaust
bros hans. Líkaminn virtist hafa leg-
ið í faðmlögum, en nú hafði svefninn
langi, sem endist lengur en ástin, eyði-
lagt þetta merki um ást. Hann var
orðinn svo rotinn, þar sem hann lá
undir því, sem eftir var af náttskyrt-
unni, að ógjörlegt reyndist að skilja
duftið, sem verið hafði maður, frá
rúminu, sem hann hafði hvílt í, og
yfir hann sjálfan og koddann við hlið
hans breiddist þolinmótt tykið eins
og þykk og jöfn ábreiða.
Þá tókum við eftir því, að hinn
koddinn var bældur eins og eftir höf-
uð. Einhver okkar tók eitthvað upp
af koddanum, og þegar við beygðum
okkur niður og störðum gegnum ryk-
ið til þess að aðgæta, hvað þetta væri,
sáum við, að það var langur, stál-
grár hárlokkur.
Illlllllllllllllllllllllllllllllll...............................................................................................................................................................................................................................................Illllllllll)
raflagninga
efni:
Nýkomið:
Vartappar, 10 amp.,
kr. 0.75 pr. stk.
Vartappar, 25 amp.,
kr. 1.10 pr. stk.
Tenglar
Rofar
Dósir
Plötur
Fjöltengi
Breytistykki
Snúrurofar
Ljósakúlur
Dyrabjöllur
Rósettur
Lampahöltlur
Jarðtengi
Postulínstengi
Símahakar
Einnig Rafofnar
og Vöfflujárn
Perustæði
með og án rofa
Vartappar fyrir
Fluorcent-lampa
Dráttarvélar h.f. |
Hafnarstræti 23.
Sími: 81395.
............................................................................ ii 111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 ii iiii iii ii mimi ............... ........................................................................
24