Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1958, Side 5

Samvinnan - 01.02.1958, Side 5
ir iðnbyltingarinnar voru og eru. En þau hafa því miður orðið örlög margra þeirra borga, sem risu úr rústum eftir stríðið. Einnig varð að taka sérstakt tillit til sérstöðu Berlínar sem verð- andi höfuðborgar þýzka ríkisins. Það þarf meira en stjórnarsamþykkt til þess að borg verði höfuðborg. Allar stærstu höfuðborgir Vesturálfu hafa verið að mótast um langan aldur. For- tíð Berlínar var glötuð, framtíðarinn- ar var allt. Það er ljóst, að við slíkar aðstæður þurfti stórmannleg viðbrögð, ef vel átti að fara. Með tilliti til þessa hefur borgarstjórn Berlínar efnt til al- þjóðlegrar samkeppni um skipulag miðhluta borgarinnar undir kjörorð- inu: „Berlín höfuðborg“. Sama til- gangi þjónar einnig hin alþjóðlega byggingarsýning, sem þar var haldin í sumar. Það var árið 1953, að ákveðið var að efna til þessarar sýningar. Sem að- alvettvangur sýningarinnar var valið hið svo nefnda Hansahverfi. Lágu til þess ýmsar gildar orsakir: Eftir stríð- ið var þetta hverfi svo til algjörlega í rúst, það lá í hjarta borgarinnar, skýrt afmarkað, annarsvegar af Spree og hins vegar af Tiergarten, hinu „græna lunga“ Berlínar og þar höfðu ekki staðið neinar byggingar, sem freist- andi hefði verið að byggja í sinni fyrri mynd að nýju. Var þá þegar efnt til samkeppni um grundvallarskipu- lag hverfisins. Hlutskarpastir urðu tveir Berlínar- arkitektar. Næstu tvö árin fóru í að ná frá ýmsum einstaklingum lóðar- skikum þeirra, en það kostaði mikið lögfræðistapp. Síðan var boðið til þátttöku í væntanlegri byggingarsýn- ingu sautján heimsfrægum erlendum arkitektum frá fjórtán þjóðlöndum og þrjátíu og fjórum vestur-þýzkum, þar af átján frá Berlín. Ennfremur voru kvaddir til tíu víðfrægir skrúðgarða- arkitektar. Þessir arkitektar skiptu svo með sér verkum þannig, að hver fékk ákveðið verkefni til sjálfstæðrar úrlausnar, en þó innan takmarka grundvallarskipulagsins. Sem fyrr segir myndar Hansahverf- ið kjarna byggingarsýningarinnar, en annars bauð Berlín til sýningarinnar undir kjörorðinu: „Öll Berlín, bygg- ingarsýning.“ Og þar var ekki boðið upp á lítið, því frá stríðslokum hafa verið byggðar þar yfir 100.000 íbúðir Þinghöllin nýja í byggingu. Þessa nýstárlegu byggingu hefur Bandaríkjamaðurinn Stubbins teiknað. Finninn Alvar Alto hefur byggt þetta fjölbýlishús. Til vinstri er grunnteikning af helmingi hússins og þar sjást 5 mismunandi stórar íbúðir. Dagstofan er einskonar almenningur og úr henni er gengt í önnur herbergi tbúðarinnar. Glugginn á stofunni veit út á svalirnar, sem eru hér rúðustrikaðar. Gropius, frægur þýzk-amerískur arkitekt, hefur byggt þetta boglaga fjölbýlishús. Það vakti mikla athygli á sýningunni. Til vinstri er grunnmynd af helmingi hússins. Þar er gengt í öll herbergi úr forstofu. Kunnur norskur arkitekt taldi skipulag þessara íbúða það bezta á sýningunni í Berlín. SAMVINNAN 5

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.