Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1958, Side 14

Samvinnan - 01.02.1958, Side 14
Krotað á spássíu Vandi vopnlausrar þjóðar Eftir Gunnar Gunnarsson Endurheimt lýðveldisins bar að undir lok átaka þeirra úti í heimi, sem mest hafa orðið og örlagaríkust; enda sér þess vott. Þegar á leið sjálfstæðis- baráttuna og mið og mörk skýrðust, mundi einhver hafa kallað hrakspá, ef sagt hefði verið fyrir, að fjórtán ár- um eftir fengið sjálfsforræði myndu fslendingar enn una hið bezta við stjórnlögin gömlu, steinachíseruð til málamynda. Margt ber að vísu til, og væri ljótt afspurnar ef satt reynist, að sérhagsmunir flokka ráði þar nokkru um. Vonandi hefur sagan veigameiri rök fram að færa; en ekki er fyrir að taka, að sumir hinna framliðnu myndu hafa metið það vott um mann- dómsskort, að tjasla í gamlar flíkur aðfengnar og telja hátíðabúning, — að fullveldinu fengnu. Sagði ég fullveldi? Öllu má nafn gefa. Sannreyndin er hins vegar sú, að um líkt leyti og íslendingar inn- byrtu algert sjálfsforræði eigin mála, var fullveldi einstakra þjóða lokið hér á hnattkringlunni, að minnsta kosti í bráð. En hugtök eru lengi að deyja, einkum þau, sem meginþorra mann- kynsins er jafnsárt um. Þvi miður er á líðandi stund full- veldi þjóðar jafnfjarlæg hugsjón og himnaríki, — einu leifarnar ógnar- stjórn harðsvíraðra samsærismanna, sem sér til framdráttar hafa beizlað hræ ýmissa afsláttardraumóra og skeiðríða því um allar álfur, og ekki við einteyming. Sá dagur er liðinn, að athafnafrelsi heiðarlegra borgara til þarfra hluta eigi sér örugga vernd í ríkisheildinni, og þýðir ekki um að fárast, enda á mannkynið í því efni, sem og flestum öðrum, sökótt við sjálft sig einvörðungu. Breytt alheimsaðstaða er ekki ólík- leg til að móta að nokkru íslenzk stjórnlög og önnur. Kann því að vera, að engu sé spillt með drætti þeim, sem á hefur orðið, en illt til að vita, sé hann óviljaverk eða lögin til lang- frama strönduð í sjálfheldu síngimi og sérhagsmuna. Vandi íslendinga verður naumast talinn mikill, saman borinn við sumra annarra, en er ærinn eigi að síður, svo sem títt er um einkamál. Eftir apla- burð síðustu heimsstyrjaldar og það reginólán, að hildirnar eru vart heimtar að fullu, er aðstaða hinna ýmsu þjóðarheilda hnattarins ger- breytt. Þær breytingar eru svo gagn- gerar, að örðugt mun verða að átta sig á þeim til fulls, fyrr en tímar liða. En hver og einn hlýtur að búa að sínu. Raunar er það sem gerzt hefur ekki annað en framhald þess, sem frá til- komu framtakssamrar skynveru hlaut að gerast og hefur verið að gerast frá því sögur fara af og að sjálfsögðu löngu fyrir söguöld: upphaf og efling samtaka þeirra, er þjóðfélög nefnast, frjáls eða tilknúin; því miður oftast tilknúin. Tilknúin frá örófi alda til endadægurs mannlegrar veraldar ein- mitt vegna þess, að ekki er nema um tvennt að velja: allsherjarsamstarf um viðhald hóflegs réttarfars eða samstæðuna illræmdu: ofstjórn- stjórnleysi. Þetta tvennt er aðeins dá- lítið ólíkar hliðar sama hlutar: stjórn- leysi ríkir hvarvetna, þar sem réttin- um hefur verið skákað til hliðar, og það engu siður þótt valdbeiting ger- ræðisins kunni, ýmsra hluta vegna, að endast lengur en líkindi sýnast til og bærilegt er, þeim sem við búa. Framundan er náið menningarsam- starf á alþjóðlegum grundvelli og frjáls alheimsmarkaður; eining ver- aldar verður ekki umflúin. Þjóðir, sem tregðast við að gera sér það ljóst, hvað þá haga gerðum sínum eftir því, munu farast í hringiðunni. Enn sem komið er virðist of mörgum íslending- um þetta sjálfgefna sjónarmið lokuð bók, nema svo sé að sjálfblinda ráði eða þeir treysti sér ekki til að sætta sig við afleiðingarnar, sem að vísu eru miklar og sumar miður æskilegar. Ráðamenn Rússaveldis — langsam- lega mestu nýlendusamsteypu allra alda — hafa orðið flestum fyrri til að átta sig á, hvernig í pottinn er búið og stefna einbeittir að settu marki. Þjóðum, sem lýðræði lúta, er í þessum efnum óhægra um vik, en það er hættulegur misskilningur, sem verið er að reyna að koma inn hjá fólki, að andstaðan gegn ásækni rauðliða sé einkamál Bandaríkjanna. Karlarnir í Kreml eiga sem betur fer í útistöðum við hvern frjálshuga mann, sem anda dregur eða á sér aldinmeið áhrifa yfir moldum, alloft blóði vökvuðum, og nær það einnig til eigin valdsvæðis: stjóm- arfylgi innan gaddavírsgirtra landa- mæra er feigt og valt, svo sem ein- hliða flóttamannastraumur ber vitni um. Gervihugsjónir þessara grályndu manna munu eiga sér skamman ald- ur, svo er fyrir að þakka. Aðalhættan stafar vestrænum þjóðum af eigin sjálfsku og sundrung, svo og þrekleysi sumra bandalagsaðilanna. Góðir menn og gegnir, en helzti tal- hlýðnir og fljótráðir og ef til vill ekki neinir ofurhugar, hafa hrönnum sam- an látið blekkjast af fárskeytum fleð- skapar og fagurgala. Er þó engum manni vorkunn að vita á þvi nokkur skil, sem efst er á baugi í alþjóðavið- skiptum. „Það er með loforð sem skorpuna á bökuðum býtingi, þau eru gerð til að brjóta," er haft eftir Len- ín. Stalín herti að vanda á hnútunum: „Fagurgalinn er gríma, sem hin verri verkin fela sig að baki. Falslaus stjóm- arerindrekstur er jafnóhugsandi og þurrt vatn eða viðarkennt járn.“ Skerfur Búlganíns til skilningsauka barst skömmu fyrir áramótin: „Miðl- un kemur því aðeins til greina, að kommúnistaflokkurinn hafi endan- legan hagnað af.“ Þannig mætti lengi rekja. Vandi vopnlausrar þjóðar í landi, sem liggur opið fyrir árásum, en þjóð- (Framh. á bls. 27) 14 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.