Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1958, Page 8

Samvinnan - 01.02.1958, Page 8
A Skógum undir Eyjafjöllum. mikið rit um þessi efni nokkrum árum síðar. Þeir félagar höfðu komið sér sam- an um, að Dasent skyldi semja dagbók um ferðalögin, en Campbell átti að teikna myndir af því, sem fyrir augu bæri. Því miður mun Dasent aldrei hafa skrifað þessa dagbók. En hins vegar er til frá handi hans grein um heimsókn til Færeyja árið 1862 á leið til íslands. En Campbeli stóð vel við orð sín. Hann teiknaði og málaði fjölmargar myndir frá dvöl þeirra félaga á Islandi árin 1S61 og 1862. Myndir hans og athugasemdir um ísland eru nú geymdar í Landsbóka- safni Skotlands með öðrum handritum hans, og þar rakst ég á þær fyrir nokkr- um mánuðum, þegar ég var að grúska í óprentuðum þjóðsögum eftir hann. Mér hefur komið til hugar, að lesendum Samvinnunnar myndi þykja gaman að sjá sumar myndir Campbells frá þess- ari för hans, og því hef ég birt þær hér íslandsför Campells 1862 Hermann Pálsson, lektor í Edinborg Hinn 25. ágúst 1862 beið millilanda- skip brottferðar á Reykjavíkurhöfn. Meðal farþega voru nokkrir Bretar, sem dvalizt höfðu á íslandi um tveggja mán- aða skeið. í bænum var verið að halda uppboð á ferðadóti þeirra og útbúnaði. Þar voru meðal annars seldir 26 hestar, fjórir reiðingar, þrír klyfsöðlar og tölu- vert af hnappeldum, reipum og gjörðum og einn hnakkur. Fyrir allt þetta fengu ferðamennirnir rúmlega 330 ríkisdali, sem var töluverður skildingur í þá daga. Einn ferðamaðurinn var íslendingun- um mjög að góðu kunnur. Það var Da- sent, sem fám árum fyrr hafði snarað Njáls sögu á enska tungu. Annar hét Sir Charles Clifford, og ritaði hann ferðasögu þeirra félaga í gamansömum stíl tuttugu árum síðar. En sú ritsmíð mun ekki vera vel þekkt, enda kom hún út í lítilli útgáfu suður í Hampshire. Þriðji ferðalangurinn, sem hér verður getið, var John Francis Campbell, fræg- asti þjóðsagnasafnari Skota og einhver bezti fræðimaður á því sviði, sem uppi hefur verið í þessum hluta heims. Þeir Campbell og Dasent höfðu kom- ið til íslands árið áður og ferðazt þá um Suðurland allt austur undir Eyjafjöll, og síðan norður um Sprengisand til Mý- vatns og Akureyrar. Dasent lék hugur á að kynnast sögustöðum, en Campbell hafði mikinn áhuga á jarðfræði og mun einkum liafa komið til íslands í því skyni að athuga hveri, jökla og önnur merkileg fyrirbæri, enda samdi hann Heimasæta í Skálholti. Ragnheiður Þorsteinsdóttir. 8 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.