Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1958, Side 19

Samvinnan - 01.02.1958, Side 19
V aðlaklerkur EFTIR DANSKA HÖFUNDINN STEN BLICHER GUNNAR GUNNARSSON. RITHÖFUNDUR. ÞÝDDI í-. ★ Ný, spennandi ★ framhaldssaga, ★ sem f jallar um ★ morðmál ★ prests á Jótlandi Fyrri hluti DAGBÓK EIRÍKS SÖRENSSONAR I nafni Jesú! Fyrir mildilega ráðstöfun himnaföðurins hef- ur ástkærum yfirboðara mínum þóknazt að hækka mig í tign- inni, gera mig að héraðsfógeta og dómara yfir þessari þjóð. Heimsdómarinn mikli leggi þar á blessun sína og veiti mér vizku og dómgreind, að ég megi rækja sómasamlega ábyrgð- arfullt embætti mitt. Að dómi hvers og eins stendur Drottinn! segir í Orðskvið- unum. Það er ekki gott, að maðurinn sé einsamall. Þar sem ég nú er þess fullfær að sjá fyrir konu, ætti ég h'klega að fara að líta í kringum mig eftir meðhjálp. Öllum, er til þekkja, ligg- ur einkar vel orð til prestsdótturinnar að Vöðlum. Síðan móð- ir hennar sæl andaðist, hefur þessi unga kona stýrt umsvifa- miklu heimili og sýnt, að hún er bæði hugkvæm og nýtin. Bróðir hennar er í Lærða skólanum, fleiri eru þau systkin ekki; ætti hún því að vera sæmilega á vegi stödd, þegar gamla mannsins missir við. Martein bónda á Ingvarsstöðum bar hér að í dag þeirra er- inda, að færa mér alikálf, en ég minntist orða Móse: Bölvað- ur sé hver sá dómari, er gjafir þiggur. Marteinn er alræmdur Marteinn brúsi er alræmdur fyrir gort og glœfra. fvrir gort og glæfra, og kvað vera sólginn í málaferli; vil ég ekkert eiga saman við hann að sælda, nema þá úr dómarasæti. Eftir að hafa ráðfært mig við himnaföðurinn og mitt eigið hjarta, fæ eg ekki annað greint, en að Metta Quist sé eina konan, sem eg gæti hugsað mér við að una lífið á enda og deyja frá. En ekki er vert að hrapa að neinu; eg ætla enn um stund að gefa henni gætur í kyrrþey. Yndisþokki á sér aldur, vænleiki villir sýn. En enga konu hef eg séð henni líka, það er áreiðanlegt. Illan bifur hef eg á Marteini brúsa. Hverju það sætir veit eg þó varla. Gangi eg fram á hann á förnum vegi, er sem göm- ul martröð mæti mér; en það hugboð mitt er svo óljóst, að eg fæ ekki áttað mig á, hvort að mér flögrar gamall draumur eða þessi geigur minn er ímyndun ein. Hver veit nema um forboða sé að ræða? Hann kom hér aftur um daginn og bauð að selja mér samanvalið tvíeyki, úrvalsgripi, hræódýrt. Það hefðu verið alger reyfarakaup! Mér hnykkti við, enda var mér kunnugt um, að hann hafði viðað að sér hestunum, sínum úr hvorri áttinni og gefið fyrir þá sjötíu dali, samanlagt. Einmitt á það verð lét hann þá fala, en sem tvíevki ættu þeir að vera auðseldir fyrir hundrað dali. Mætti segja mér, að eitt af þessurii þokkamálum hans væri ekki langt undan. Kaup, er nálgist mútur, vil eg ekki við nokkurn mann eiga. Tók mig til og heimsótti Vaðlaklerk. Þetta er mesti sóma- maður, sæmilega guðhræddur, en þéttur fyrir og helzti upp- stökkur. Mótmæli þolir hann engi, og talinn er hann aðsjáll svo um munar. Þegar mig bar að garði, var staddur hjá honum kotkarl þeirra erinda, að nudda í honum um ofurlítinn afslátt af kirkjugjaldinu. Vitanlega er tíundin ekki of hátt reiknuð, þetta er einhver viðsjálsgripur, enda saumaði séra Sören að honum svo að jafnvel seppunum blöskraði, að eg held, en prestur varð því æfari, sem hann jós meiru úr sér. Hver hefur sinn djöful að draga! Sannara orð verður ekki sagt. En þetta er aðeins í nösunum á honum. Rétt á eftir ámálgaði hann við dóttur sína að gefa refjahundinum væna brauðsneið og draga ekki af ölkollunni. — Hún býður af sér einkar góðan þokka, yngismeyjan. Kveðju minni tók hún svo vingjarnlega og blátt áfram, að sjálfum fipaðist mér og kom varla fyrir mig orði. Ráðsmaður minn, Rasmus, hefur verið í vist á prestssetr- samvinnan 23

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.