Samvinnan - 01.10.1964, Blaðsíða 6
Tobías Sigurjónsson (efst t. v.), bónði í Geldingaholti, hefur
verið formaður kaupfélagsins síðan 1938, eða rúman aldarfjórð-
ung. Auk hans eru í stjórn félagsins þeir Gísli Magnússon, Ey-
hildarholti, Bergur Gíslason, Kýrholti, Björn Sigtryggsson,
Framnesi og Jóhann Salberg, sýslumaður Skagfirðinga. — Mar-
teinn Friðriksson (efst t. h.) er framkvæmdastjóri Fiskiðju Sauð-
árkróks h.f., sem hefur með höndum fiskmóttöku og fiskverkun.
Sala sjávarafurða hjá Fiskiðjunni nam á s.l. ári um 12 millj.
króna. Á þriðju myndinni sést yfir mestan hluta Sauðárkróks,
höfuðstaðar Skagaf jarðar. Elsti hluti bæjarins er næst á mynd-
inni, og þar eru flest hús kaupfélagsins.
anna. En þó er það svo, að
einn meðlimur bæjarstjórn-
ar er nýlega sagður hafa lát-
ið þess getið, að kaupfélagið
væri bezt geymt „uppi á nöf-
um.“ Til skýringar fyrir ó-
kunnuga skal þess hér getið,
að þar er kirkjugarður
Sauðárkróks. Er þessi hlægi-
lega afstaða forsvarsmanna
Sauðárkróks síðasti vottur-
inn um áðurumtalaða íhalds-
semi Skagfirðinga? Vonandi
hverfur hann með jafn
skjótri svipan og selstöðu-
kaupmenn og torfbæir.
Blaðamaður Samvinnmin-
ar hitti fyrir skömmu að
máli Gísla Magnússon,
bónda í Eyhildarholti, og
spurði hann nokkurra spurn-
inga varðandi það efni, er
getið er hér að framan, og
kaupfélagið yfirleitt. — Var
þar síður en svo farið í nokk-
urt geitahús í ullarleit, því
Gísli er sennilega flestum
eða öllum fróðari um sam-
vinnumál í Skagafirði að
fornu og nýju. Auk þess sem
hann um margra áratuga
skeið hefur verið einn af
mörgum mjmdarbændum
sinnar sýslu, hefur hann tví-
vegis átt sæti í stjórn kaup-
félags Skagfirðinga, í síðara
skiptið óslitið frá 1939. Þá
var hann oddviti í Rípur-
hreppi frá 1934 og þangað til
nú nýverið og sýslunefndar-
maður um langt skeið.
Kvæntur er Gísli Guðrúnu
Sveinsdóttur og eiga þau 11
börn.
— Jú, það er varla of mik-
ið sagt, að bæjaryfirvöldin
hafa veitt kaupfélaginu litla
fyrirgreiðslu, sagði Gísli. —
Ber þá einna helzt að geta
þess hróplega ranglætis, sem
kaupfélaginu hefur verið
sýnt í lóðamálum. Aðalstöðv-
ar þess eru og hafa verið frá
gamalli tíð í norðurenda
bæjarins, en hann hefur all-
ur stækkað til suðurs. Þar
að auki eru hús félagsins
orðin gömul og úrelt um
margt. Félaginu er því brýn
nauðsyn að byggja stórhýsi
nálægt miðjum bæ og flytja
þangað aðalstöðvar sínar og
koma auk þess á fót útibúi
í suðurbænum. Sótt hefur
verið um lóðir undir báðar
þessar byggingar til bygg-
ingarnefndar bæjarstjórnar,
en ekkert svar borist. Ekki
einu sinni neitun. Þetta er
vottur þeirrar virðingar, sem
meirihluti bæjarstjórnar
Sauðárkróks sýnir því fyrir-
tæki, íem bæði bæjarfélagið
og allur þorri bæjarbúa
byggir afkomu sína á.
— Hefur félagið ekki einn-
ig átt í brösum við forsvars-
menn bæjarfélagsins út af
útsvarsmálum?
— Jú, það hefur borið við
oftar en einu sinni, að iit-
svar hefur verið iagt
Efri myndin að neðan sýnir stækkunarframkvæmdir hjá bygg-
ingavöruverzlun Kaupfélags Skagfirðinga. Neðri myndin er
sannkölluð samvinnumynd og sýnir margar henuur vinna létt
verk á bifreiða- og vélaverkstæði félagsins.
6 SAMVINNAN