Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1964, Blaðsíða 16

Samvinnan - 01.10.1964, Blaðsíða 16
r JÓN S. JÓNSSON: Þættir úr tónlistarsögu GRIKKIR OG RÚMVERJARI. Fáir eru þeir hlutir í veröldinni, sem fólk í menningarþjóðfélagi kemst í meiri snertingu við en tónlist í einhverri mynd. Svo er það einnig: hér á íslandi. Á móti börnunum er tekið, þegar þau fyrst líta ljós heimsins, með vöggulögum. Síðasta kveðja að loknu ævi- skeiði, er „sálmurinn um blómið“. í skólum og á mannamótum er söngur talinn sjálfsagður, Árlega er haldinn mikill fjöldi söngskemmtana í einni eða annarri mynd. Margir kórar eru starfandi um alit land og verulegur hluti dagskrár Ríkisútvarpsins er byggður upp af einhverri tónlist. Þegar á þetta er litið er eins hitt, að í öllum V__________________________________________________ Við endalok fornra menningar- skeiða. Þegar Rómaveldi stóð með mestum blóma, náði það yfir mestan hluta Vestur-Evrópu og töluverðan hluta af Asíu og Afríku. Á fimmtu öld e. Kr. var svo komið, að Róm hafði ekki lengur tök á að verja lönd sín og óaldarflokkar úr austri og norðri hófu innreiðar sínar og yfirgang. Rómaveldi og menning þess splundrað- ist og það liðu margar aldir þar til brotin tóku á sig myndir þeirra þjóða er nú byggja meginlandið. Samhliða hnign- un og falli Rómaveldis, sem greypt er skírum rúnum á hell- ur sögunnar, skynjum við and- stæða þróun sem á margan hátt átti eftir að verða afdrifa- rík fyrir mannkynið. Hér er um að ræða þróun, sem á rætur sínar í hinni kristnu trú og kirkju. Langt fram eftir öld- um var hin kristna kirkja aðal og oft hinn einasti samastað- ur og miðlari menningar. Hin- ir fyrstu kristnu söfnuðir uxu stöðugt og teygðu arma sína til endimarka Rómaveldis, þrátt fyrir stöðugar ofsóknir í þrjár aldir. Konstantín keisari tók kristna trú árið 312 og fyr- irskipaði að kristin trú skyldi frá þeim tíma vera jafn rétt- há og önnur trúarbrögð í rík- inu. Árið 395 skiptist ríkið í tvennt, hið aust-rómverska og vest-rómverska, og stjórnirn- ar höfðu aðsetur í Róm og Byzantium (Konstantinopel, síðar Istanbul). Árið 476, eftir stórstyrjaldir í heila öld, steig seinasti keisari vest-rómverska ríkisins úr hásæti sínu, en þá var undirstaða og völd Páfa- stóls orðin það sterk, að hann var við því búinn, og vel fær um að veita lýðnum þá forystu sem keisarinn hafði áður veitt. Eins og margsannað er, þá var forysta Páfastóls oftast nei- kvæð hvað snerti vísindi, hstir — og umburðarlyndi. Hin gríska arfleifð. Saga vestrænnar tónlistar er venjulega talin eiga upptök sín í sönglist hinnar kristnu kirkju. En í gegnum allar mið- aldirnar, og allt til vorra tíma, hafa listamenn leitað aftur til Grikkja og Rómverja að hug- myndum, fyrirmyndum og inn- blæstri. Þetta hefur einnig átt sér stað í tónlistinni, en af sérstökum ástæðum hefur það verið með öðrum og ólíkum hætti en í öðrum listgreinum. Rómverskar bókmenntir höfðu töluverð áhrif gegnum mið- aldimar, og þessi áhrif urðu æ víðtækari á 14. og 15. öld þeg- ar töluvert magn af rómversk- um bókmenntum kom í leitim- ar Á sama nma iannst megn- ið af þeim grísku bókmennt- um, sem við nú höfum. Rithöf- undar og myndlistarmenn á miðöldum höfðu hin raunveru- legu listaverk fornaldanna fyr- ir framan sig, en hvað tónlist snertir var þessu öðru vísi far- ið. Ekki er vitað til þess að tónskáld á rniðöldum hafi haft undir höndum einn einasta lagstúf frá Grikkjum, og við erum ekki mikið betur settir í dag. Aðeins um tugur laga og lagstúfa hefur varðveitzt af grískri tónlist. Lög þessi eru öll frá seinni hluta gríska menn- ingarskeiðsins og gefa því ó- Ijósa mynd af tónlist þeirra. Ekki stöndum við betur að vígi hvað Rómverja snertir, ekki eru til neinar áreiðanlegar, eða réttara sagt upprunalegar heimildir um tónlist þeirra. Það er augljóst mál, að vitneskja okkar um bókmenntir og högg- myndalist nefndra fornþjóða væri harla lítil, ef á þeim vett- vangi væru gögnin ekki merki- legri en í tónlistinni. Það má segja að gildar, en 16 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.