Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1964, Side 15

Samvinnan - 01.10.1964, Side 15
Síldarréttur Ég fjölyrði ekki meira um frystingu að sinni, en ykkur sem hafið áhuga á framhaldi, vil ég benda á að hægt er að fá bækling um frystingu ein- stakra tegunda ef skrifað er eða hringt til viðkomandi að- ilja. ★ Síldarréttur úr nýrri síld (6—8 manns). 8 síldar, salt 1 sítróna 1 búnt steinselja 8—10 kartöflur 50—100 g smjörlíki 3 tómatar 2—3 msk brauðmylsna. Smyrjið eldfast mót. Flysj- ið kartöflurnar, skerið þær í þunnar sneiðar og raðið i mót- ið ásamt helmingnum af smjörlíkinu sem látið er í bit- um jafnt yfir. (Látið lok yfir mótið meðan það bíður). Hreinsið síldina og fjarlægið beinin. Stráið salti yfir, ásamt sítrónusafa og saxaðri stein- selju. Leggið síldina yfir kart- öflumar í mótinu (sjá mynd). Þvoið tómatana, skerið þá í fjórðunga og raðið kring um síldina. Penslið síld og tómata með bræddu smjörlíki og strá- ið brauðmylsnunni yfir. Hyljið mótið með aluminíum pappír, sé lok ekki fyrir hendi og bak- ið síldina við góðan hita, 10—15 mín. Takið síðan lokið af og brúnið síldina við meiri yfir- hita nokkrar mínútur. Steik- ingartími fer eftir stærð síld- anna. Með þessu eru bornar soðnar — eða hrærðar kartöflur og hrátt salat. psggs Kartöflusalatið Bananaréttur Smáréttur úr banönum (lítil uppskrift). 4 bananar sinnep 4 sneiðar reykt svínakjöt 1 msk smjörlíki 2 msk tómatkraftur grænar baunir 2 epli 2 laukar y4 agúrka Flysjið bananana. Smyrjið skeinkuna (reykta svínakjötið) með sinnepinu og vefjið henni utanum bananana. Raðið ban- önunum í smurt eldfast mót og penslið þá með bræddu smjörlíki. Bakið við um það bil 225 gráður í 15 mín. Hitið grænu baunirnar og setjið þær í kring og tómatsósuna yfir hvern banana. Meðan bananarnir eru að steikjast eru eplin flysjuð og skorin í báta og laukinn í sneiðar. Steikt hvað fyrir sig í smjörlíki. Látið í skálar og í þriðju skálina eru látnar gúrkusneiðar. Borið með ban- anaréttinum, ásamt salatblöð- um, séu þau fyrir hendi. Gott kartöflusalat 10 meðalstórar kartöflur (soðnar) 1 smátt saxaður laukur 2 harðsoðin egg i/2 agúrka 1 epli 2 dl mayonnais (olíusósa), sítrónusafi, sinnep og ensk sósa eftir bragði. Kartöflumar eru flysiaðar og skomar í teninga, látnar í skál ásamt smátt skomum lauknum, söxuðum eggjunum og gúrkunni sem er skorin í sneiðar eða bita. Saman við þetta er blandað mayonnais- inum og kryddi eftir bragði. Mörgum þykir betra að láta einnig sinnep saman við. Skreytt með því sem í er t. d. eggjum og gúrkum. Einnig er fallegt og gott að hafa tómata, sveppi og grænan heilan pip- ar í þennan rétt, er það þá smækkað og haft saman við og til skrauts og bragðbætis. Borið fram með köldu kjöti eða pylsum. Einnig gott með soðnum fiskafgöngum. Framhald á bls. 19. SAMVINNAN 15

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.