Samvinnan - 01.10.1964, Qupperneq 26
opinbera næsta guðdómlegt
innsýni og skilning, og á mörg-
um sviðum hefur þar engu
verið við bætt í 2500 ár. 1 næstu
grein mun ég leitast við að
gera að nokkru grein fyrir tón-
listartheóríum og kenningum
Grikkja.
Svipmyndir
Framhald af bls. 21.
skip annast enn um skeið að
mestu vöruflutninga, en ár-
ið 1914 markar merkileg
tímamót í verzlunarbaráttu
þjóðarinnar með stofnun
Eimskipafélags íslands.
Verzlun innanlands er enn
lítil og er talið, að Reykja-
vík reki % hluta hennar á
árunum f yrir heimsstyrj -
öldina fyrri, en Akureyri,
Hafnarfjörður, ísafjörður og
Seyðisfjörður % hluta. Hag-
ur manna í höfuðstaðnum og
kaupstöðunum vænkast, en
ýmsir erfiðleikar skapast í
sveitum landsins af völdum
fólksflutninga úr þeim til
kaupstaðanna og sjávarút-
vegsins, er nú hefjast fyrir
alvöru og eiga eftir að hafa
örlagaríkar afleiðingar í för
með sér fyrir landbúnaðinn
næstu áratugina. Orsakirnar
til þessa fólksstreymis, sem
beinist fyrst framan af aðal-
lega til Reykjavíkur, eru af
mörgum rótum spunnar. í
fyrsta lagi hafa fiskveiðar
landsmanna tekið stórkost-
legum framförum á þessum
fyrstu áratugum 20. aldar-
innar, hin sívaxandi þil-
skipaútgerð krefst mikils
mannafla og íslendingar
hafa eignast fjölda mótor-
báta og allmörg botnvörpu-
skip. í fyrri stríðsbyrjun áttu
landsmenn þannig 140 þil-
skip, 9500 lestir að stærð og
nam tala háseta á þeim um
2100. Þá voru og 1400 stærri
og minni bátar í eigu ís-
lendinga með um 6500 há-
setum. Verðmæti sjávaraf-
urða var þá um 13y2 milljón
krónur, en rúmar 5 milljón-
ir af landbúnaðarafurðum. í
öðru lagi orsaka ný iðnfyrir-
tæki og allskonar byggingar-
vinna fólksstreymi til bæj-
anna úr sveitum landsins. í
þriðja lagi tilkoma nýrra
skóla í höfuðstaðnum og
kaupstöðunum út um land
svo og bankastofnana, en á-
hrifa þeirra gætir nú í vax-
andi mæli í íslenzku at-
hafna- og atvinnulífi. Loks
hafa hin síauknu opinberu
störf í höfuðstaðnum átt
sinn mikla þátt í vexti og
viðgangi hans aðallega á
kostnað sveitanna.
Þær breytingar á atvinnu-
háttum manna, sem að of-
an greinir, leggja grundvöll
að nýju þjóðskipulagi á ís-
landi. Hið þúsund ára gamla
ríki, sem verið hefði um ald-
araðir rótgróið bændaþjóð-
SMi TH - CORONA
BBB
DROTTNING RITVELANNA,
TROMPIÐ Á HENDl YÐAR.
FULLKOMIN AMERÍSK RAF-
MAGNSRITVÉL Á AÐEINS
KR.12.600.oo.ÚRVAL LITA
OG LETURGERÐA.
SÍS VÉLADEILD
VNOHOD - HJHNS
26 SAMVINNAN