Samvinnan - 01.12.1986, Side 8

Samvinnan - 01.12.1986, Side 8
Malgagn sam vinn umanna í áttatíu ár Ef félagið kostar eigi kapps um að koma svo ár sinni fyrir borð að það geti látið alla hina fátæku og máttarlitlu vera með, þá er sú hugsjón þess sápukúla að kaupfélag geti komið í stað kaupmanna. Ef kaupmaðurinn á að annast alla hina fátæku og lítilsigldu, þá sýnast mér kaupfélögin sneiðast sínum mesta Ijóma; þá sýnast mér störf félaganna til þjóðþrifa meira en hálfu minna virði en ella.“ Þetta skrifaði Sigurður Jónsson í Ystafelli, fyrsti ritstjóri Samvinnunnar. Og í þessari tilvitnun felst sjálfur kjarni samvinnustefnunnar. # Handrit yfír fjallveg Greinin, sem ummælin eru tekin úr, birtist í Ófeigi, fyrsta íslenska samvinnuritinu, sem Kaupfélag Þingeyinga gaf út og Benedikt á Auðnum handskrifaði. Nokkru síðar var hún endurbirt í fyrsta prentaða samvinnuritinu, Tímariti kaupfélaganna 1896, en það var undanfari Samvinnunnar. Síst er að undra þótt Sigurður í Ystafelli skyldi til kvaddur, þegar samþykkt hafði verið á aðalfundi Sambandsins 1906 að hefja útgáfu tímarits. Hann skildi samvinnuhugsjónina rétt og gat komið boðskap hennar til skila jafnt í ræðu sem riti. Fyrsta hefti Samvinnunnar kom út í byrjun ársins 1907, 202 síðna bók í 8

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.