Samvinnan - 01.12.1986, Side 19

Samvinnan - 01.12.1986, Side 19
# Lögin verður að halda Þennan heiðbjarta desemberdag, þegar flugvélin erfiðar sig norður yfir hálendið og allt umhverfið minnir á sér- kenni árstíðarinnar - myrkur og ljós berst skeyti utan af hafi inn í kyrrðina og ófærðina austanlands. Þar undan ströndinni er skip á ferð, sem ætlar inn á Austfirðina með vörur frá útlöndum. Slík tíðindi eru sjaldgæf austur þar, síðan kjarnorkuöldin rann yfir mannheim, því að með henni staðfestust miðaldahættir í samgöngumálum. Skipið úti fyrir Austurlandinu spyr yfirvöldin í Seyðis- firði um það, hvort það séu ennþá lög á íslandi, að kaup- för þurfi að eiga fyrstu viðkomuhöfn í hinum stærri kaupstöðum, eða hvort þeim sé leyfilegt að sigla til hinna smærri staða og ljúka erindum sínum þar. Lögin verður að halda, og hið íslenzka lýðveldi fyrirbýður það, að utanlandssigling hafi fyrstu samskipti við hina fáu og smáu; lögin, sem voru sett á stríðsárunum um fyrstu við- komuhafnir kaupfara - af öryggis- og hernaðarástæðum -, eru ennþá í fullu gildi á öðru ári friðarins, af því að engum hafði hugkvæmzt að afnema þau og engin nauð- syn virtist reka á eftir. Siglingar frá útlöndum á smáhafn- ir höfðu svo lengi verið óþekkt fyrirbrigði á íslandi. En yfirvöldin í þessum stórstað Austurlandsins skilja þýðingu þess að skip er úti fyrir, sem vill sinna þörfum fjórðungsins og þarf að hafa hraðann á, vegna þess að fleiri hafnir eru í siglingaleiðinni. Þau bjóðast til þess að mæta skipinu á miðri leið, úti fyrir Norðfirði og fullnægja lögunum. Lítill bátur leggur úr höfninni, ogúti fyrir firð- inum mætast einn hinn smæsti og hinn stærsti hins ís- lenzka flota. Þannig vinna embættismenn á Austurlandi að því, að létta hið þýðingarmikla endurreisnarstarf í siglingamálunum, sem nú er hafið. Eftir þetta siglir skipið áfram til Reyðarfjarðar með fulltrúa hins íslenzka ríkisvalds innanborðs. Þannig er lagaskyldunni fullnægt og hagsmunamálum byggðanna sinnt. 19

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.