Samvinnan - 01.12.1986, Page 43

Samvinnan - 01.12.1986, Page 43
Það er nýtt fyrirbæri á ferðinni: mannskepnan, öll á nálum, ekkert nema hræðslan... ingur kominn í sálarlífið. Uppgjafartónninn leynir sér ekki, og mótlætið þrúgar hana. Hún lifir og hrærist innan um þreytandi fólk, færir tilgangslausar fórnir og lendir af sporinu út í fen dulhyggju og geðbilunar. Það er eins og reynsla hennar sé að engu orðin og sjálfsvitund hennar þoku hulin, ef hún er þá ekki búin að glata henni með öllu. Martha Quest glatar sínu upprunalega eðli; það er eins og hún bresti um þvert. Hvað olli? Var hún farin að ganga of nærri höfundi sínum, sem fannst hún þá nauðbeygð til þess að losa sig undan áhrifavaldi hennar, breikka bilið milli sín og hennar? Hafði eitthvað komið fyrir Doris Lessing sj álfa? Hafði hún orðið fyrir einhverju áfalli, einhverri persónu- legri ógæfu? Var það afleiðing þess, að pólitísk sannfær- ing hennar bilaði, af tómleika og ráðvillu á krossgötum? Eða var það dökknandi útlit í heimsmálum, sem olli? Martha Quest lætur sér nægja að þjóna marxískum rit- höfundi, verður fyrst ritari hans, síðan ástmær hans og hjákona, hjúkrunarkona, þjónn. Hún gefst smám saman upp og fórnar æ meiru af sjálfri sér vegna þessara að- stæðna og fyrir þá fjölskyldu, sem hún er orðin föst í net- inu hjá, fyrir hálfsturlaða eiginkonu rithöfundarins og þann undarlega hóp, sem þau umgangast, óreiðuna og upplausnina í þessari sambúð. Hún óttast þetta ástand, að hún skuli naumast þekkja sjálfa sig og að tilvera henn- ar skuli öll vera í molum: „Hún gekk, gekk, hratt, vildi komast burt, unz hún kom að þynnu eða stórum fleti úr gljáandi efni og sá koma til sín einhverja veru, sem sveipuð var skinnfeldi dýrs, lág- vaxin, með ijósfölan loðfeld á hausnum, galopin og skelfd augu eins og hún væri á flótta undan einhverju eða að leita sér að felustað. Eftir andartak áttaði hún sig á því, að þetta var hún sjálf, Martha, sem fyrir örskammri stundu hafði fyllzt taumlausum fögnuði, þegar hún sá sólroðið ský yfir sviflétt'u laufþykkni.“ Svellandi tilfinningar og trylltir hugarórar kippa á endanum undar. henni fótunum. Hún lifir naumlega af mikinn harmleik, sem minnstu munar, að eyði öllu lífi, og hennar bíða þau örlög að lifa innan um örkumla og vanheilar verur til ársins 1997 á strönd, þar sem dauðinn herjar. Þá fær mannkynið loksins frið í rústum eyði- merkurinnar. Pá hefst samvinna kynþáttanna, engin landamæri eru lengur til, og jafnvel þroskaheftir og geð- sjúkir fá að njóta réttar síns. Þannig endar sagnabálkur- inn án þess að nokkur botn fáist í vandamál Mörthu; það væri þá helzt, að bent væri til hugsanlegra lausna á öðru stigi tilverunnar, handan við allar markalínur, sem greina milli meðalhegðunar og vitfirringar, eða að per- sónuleikafjötrarnir röknuðu upp í ímynduðum heimi eins og Doris Lessing lýsir í „geimskáldskap" sínum. 0 Að flýja eigin persónuleika í bókinni veltir Doris Lessing m. a. fyrir sér þeirri spurn- ingu, hvort þeir geðveiku séu ekki snöggtum skilnings- skarpari og heilbrigðari en þeir, sem telja sig heilbrigða, 43

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.