Samvinnan - 01.12.1986, Qupperneq 20
Snjór fyrir norðan — sigling að austan
• Skyldu jólavörurnar koma?
Inni á Reyðarfirði teygir snjóábreiðan sig niður að sjáv-
armáli, og bæirnir og þorpið sitja eins og þústur á lands-
laginu og rjúfa hinn samfellda svip. Þessi ágæta verzlun-
arhöfn eins blómlegasta héraðs landsins þekkir kyrrð
skammdegisins og deyfð athafnalífsins. Þar, eins og ann-
ars staðar, líta menn á þessari árstíð í áætlanir strand-
ferðaskipanna og reyna að gera sér í hugarlund, hvort
vænta megi jólavörunnar frá Reykjavík fyrir jól að þessu
sinni eða ekki. Sú megingáta verður enn ekki ráðin, því
að þetta skip flytur ekki jólagóss, en þó boðar koma þess
líf og starf. Hjól atvinnu- og viðskiptalífsins, sem hættir
til að stöðvast í samgönguleysinu að vetrinum, tekur aft-
ur að snúast. Þegar skipið leggst að bryggju, bíða margar
hendur þess að hefja starf og skipa vörunni á land. Bif-
reiðar bruna fram bryggjuna og fullfermdar finnsku
timbri inn í þorpið. Ofan úr dölum og fjarlægum byggð-
um brjótast bílar og vagnar til þess að sækja stoð og
styttu í íbúðarhús eða útihús, og út fjörðinn bruna bátar
á leið til næstu hafna. Þannig veldur skipskoman nauð-
synlegu lífi og umróti á mörgum stöðum, sem ekki eru á
leið skipsins. í hugum margra austur þar er þessi sjálf-
stæða íslenzka sigling, beint frá markaðslöndum þjóðar-
innar inn á austfirzku hafnirnar, eins og tjaldi væri svipt
frá gluggum þeirra og útsýn birtist til umheimsins, sem
hefur að þessu leyti verið lokaður heimur fyrir allan
Hólmavík
þorra landsmanna, síðan siglingafyrirkomulaginu til
landsins var breytt í stríðsbyrjun.
# Menningarlíf við íshafsrönd
Frá Reyðarfirði liggur leið skipsins norður fyrir Langa-
nes og vestur með landi. Á vinstri hönd er hin hættulega
strönd, sem erlendir skipaeigendur hafa allt til þessa ótt-
ast í eigi minni mæli en Napóleon prins um árið, að sögn
forráðamanna Eimskipafélagsins. Því að fyrir liggur
greinargerð frá þeim um, að erlend skipafélög hafi síðan
í stríðsbyrjun verið allsendis ófáanleg til þess að hætta
skipum sínum norður fyrir mildari sjóa Faxaflóans. En
nú heggur þetta skip norðanbáruna undan Austur-
ströndinni, og veðrið er milt, og víst gæti það verið verra
sunnar á hnettinum, þótt vænta megi snöggari umskipta
á þessum hjara en þar, og bezt sé að vera við öllu búinn.
Næst í leiðinni er Húsavík. Einnig þar mundi skips-
komunni fagnað sem bezt, og hún mundi verða til þess
að flýta snúningi hins nær því staðnaða hjóls atvinnu- og
viðskiptalífs. En nú segja veðurfréttir storm í uppsigl-
ingu, og veðurofsinn í Vestmannaeyjum er þegar orðinn
ótrúlega mikill. Hinar opinberu fréttir telja veðursins
von allt til þessa afskekktasta hluta landsins, því að
veðurguðirnir fara ekki í manngreinarálit, og stormur-
inn getur herjað jafn illilega á eyðikot á Langanesströnd
og uppljómaðan skrautglugga í Austurstræti.
GLEÐILEG JÓL
og farsælt komandí ár
Þökkum gott samstarf og viðskipti
á liðnum árum
KAUPFÉLAG VESTMANNEYJA
Vestmannaeyjum
20