Samvinnan - 01.12.1986, Side 26

Samvinnan - 01.12.1986, Side 26
Þjóðfundurinn og aðdragandi hans talinn svo róttækur, að hann mundi jafnvel vera vinur Þjóðverja, og í febrúar gerðist sá einstæði atburður, að hann stóð upp í dómkirkjunni eftir biskupsmessu og krafðist þess, að sóknarpresturinn segði af sér, en nýr maður yrði fenginn í hans stað! Og enn gerðist það, sem varla hefði getað orðið tveim árum áður, að menn drukku skál „Þýzkálands og allra þjóða“ í klúbbnum. 0 Döpur veisla íslendingar gerðu sér vonir um það, að þjóðfundurinn yrði haldinn 1850. En þær vonir brugðust. í maímánuði barst sú fregn, að stjórnin hefði ákveðið samkomudag þjóðfundarins 4. júlí 1851, eða ári seinna en vænzt hafði verið. Petta voru slæmar fréttir fyrir íslendinga, og er rétt að skyggnast út í álfu til að athuga, hvað þar hafði gerzt. í byrjun árs 1850 var flóðbylgja byltinganna í Evrópu tek- in að réna. Sameining Þýzkalands hafði ekki tekizt og áhugi Þjóðverja á baráttu landa sinna í dönsku hertoga- dæmunum hafði minnkað. Sáu stórveldin, sérstaklega England og Rússland, sér leik á borði og reyndu að miðla málum, enda vildu þau varðveita danska konungs- ríkið sem sterkast. f lok júlí var háð orrustan við Isted, þar sem Danir unnu sigur og var þá uppreisn hertoga- dæmanna lokið. Var nú danska stjórnin hin fastasta í sessi eftir þessa sigra og vann óspart að því að treysta völd Dana í hertogadæmunum. Var því varla hægt að búast við mikilli samúð með sjálfstæðisbaráttu íslend- inga, enda hefði eftirlátssemi við þá getað leitt til þess, að hertogadæmin gerðu nýjar kröfur. Kvað nú við annan tón en 1848, og varð það ógæfa íslendinga, hversu af- greiðsla á málum þeirra dróst úr hófi fram, unz öll von um réttarbætur hvarf að þessu sinni. íslendingar höfðu margvíslegan undirbúning undir þjóðfundinn, og gerðu sér miklar vonir um hann. Er sýnilegt, að þeir hafa ekki áttað sig á þeirri breytingu, sem orðin var í Höfn, og má bezt marka grandvaraleysi þeirra á því, að þeir kusu Trampe greifa, hinn nýja stift- amtmann, í undirbúningsnefnd sína undir fundinn! Brátt kvisaðist út, að frumvarp stjórnarinnar, sem Trampe hafði fengið í hendur, mundi verða annars eðlis en íslendingar óskuðu. Kom til ýmiss konar vandræða, þar sem Trampe tók nú að banna fundi og leggja ýmsa steina í götu landsmanna. í marz 1851 óskaði Trampe eftir hermönnum og var herflokkur sendur til landsins skömmu fyrir fundinn. Kom þessi ráðstöfun landsmönn- um heldur spánskt fyrir sjónir, enda gat enginn séð þörf vopnaðra manna í landinu, nema helzt Trampe. Nú verður farið fljótt yfir sögu. Þegar fundarmenn Stnánm féícujsmönnurrt og öðrum xnðskvptaviniLm svo og starfsfólM okkar 6estu óskir um GLEÐILEGJÓL r fc y* ' KAUPFÉLAGIÐ FRAM ogýarscM komanár ar Neskaupsstað 26

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.