Samvinnan - 01.12.1986, Qupperneq 35

Samvinnan - 01.12.1986, Qupperneq 35
Skáldið Einar Benediktsson hefur átt erindi við kynslóðirnar og á enn. Ferðinni var lokið og ljóðunum hætt. Hið unga fólk gekk til starfa í bítið næsta dag, við byggingar, ræktun, framleiðslu og heimilisstörf og skilar landinu betra og lífskjörunum léttari í hendur næstu kynslóðar. Ástæða er til að ætla, að þeirri arfleifð fylgi einnig ávaxtað pund hins kynngimagnaða, vitra þjóðskálds. • Kennslustund á atómöld Enn liðu mörg ár. Ný kynslóð kemur við sögu, ung kyn- slóð á atómöld. Kennari kemur inn í bekk sinn til nálega 30 nemenda milli fermingar og tvítugs. Kennslubókum er flett, at- hugað lestrarefni og sett fyrir til næsta dags. „Ég nenni ekki að kenna ykkur í dag. Við vorum svo dugleg síðast, og það er ekki alltaf hægt að vera dugleg- ur.“ Feginsandvarp fór um bekkinn og bókum var lokað í skyndi. Líklega áttu þau að fá frí. En kennarinn sat sem fastast, sagði ekki neitt, en fletti bók. Sextíu augu störðu á hann og í stofunni varð hljótt. Formálalaust og án útskýringa tók hann að lesa. Von um frelsi varð að engu. Allir sátu og hlustuðu. „Aldrei fann ég frárri jó. Fram á móti er við þeystum, sýndist leiftra af sólnagneistum. CLEÐILEC JÓL FARSÆLT NÝTT ÁR jé) öJUÍuWl (jþO-Út d éuhuwn d/uom. KAUPFÉLAG DÝRFIRÐINGA Þingeyri Vatna og brúna milli í miðri meginhengju vóðu niðri dökkir ernir. En þá dró aftur úr sem hnökra af fiðri. íshroð féll og brauzt að bökkum. Brotgný var þó ekki að heyra. Aðeins hrapsins ógn fannst slá öll í dans með söng og stökkum, stíga hring fyrir auga og eyra.“ Eftir stundar lestur lokaði kennarinn bókinni. Dauða- hljótt var í stofunni. „Hvað er þetta, sem ég las?“ Einn nemendanna svarar eftir litla bið: „Það er úr Pétri Gaut, þýðing Einars Benediktssonar." Kennarinn bjóst til að standa á fætur, en hikaði við. „Þið kærið ykkur víst ekki um að heyra meira.“ „Jú, jú, meira, meira,“ kvað við margraddað. Nokkrum dögum síðar. Nú skyldi tekið fyrir námsefni það, sem vanrækt var. „Ætlarðu ekki að lesa fyrir okkur?“ „Nei, nú lærum við.“ „Já, en við höfum lært þetta svo vel. Lestu heldur.“ „Hvað ætti ég að lesa?“ „Pað sama og um daginn.“ „Nei, nú lærum við. Eg hefi ekki bókina.“ „Þú getur sótt hana. Ég skal sækja hana fyrir þig.“ „Ég veit ekki hvar hún er. Ég lánaði einhverju ykkar hana. Nei, nú lærum við.“ Á samri stundu var bókin lögð upp á kennaraborðið. Og kennarinn gafst upp. „Nei, mamma, nú skulum við skrafa til skemmtunar, hvað sem er; en harmtöl á ekki að hafa né hugraun, sem svíður og sker. Hvað þarftu? Þyrstir þig ekki? Er þetta rúm ekki of stutt? Nei, barnabólið! - Nú þekki ég beddann. - Svo þú ert þá flutt. En manstu hjá rúminu mínu hvað mörgum kvöldum þú sazt og dúðaðir mig undir dýnu og drápur og þulur last?“ Enn átti Einar Benediktsson erindi við fólkið og fór ekki erindisleysu. Ungir hugir og ung hjörtu voru reiðu- búin list hans og töfrum, vissulega ekki af fullum skiln- ingi, en móttækileg af heilum hug, þegar atvikin höguðu því svo, að tækifæri gafst. Það var að vísu þýðing hans á Pétri Gaut, sem þarna var um að ræða. En fullyrða má, að kvæði hans hefðu átt vísan sama hljómgrunn í hinum ungu hjörtum. Þannig hefur skáldið Einar Benediktsson átt erindi við kynslóðirnar og á enn. Þannig hafa þær varðveitt fjár- sjóð þann er hann gaf þeim, um leið og sá fjársjóður hef- ur auðgað líf þeirra og veitt því fyllingu. Þannig gengur hinn dýri arfur frá kyni til kyns. + 35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.