Samvinnan - 01.12.1986, Blaðsíða 56

Samvinnan - 01.12.1986, Blaðsíða 56
Gunnar Karlsson og Sveinn Skorri Höskuldsson svara grein Andrésar Kristjánssonar í síðasta hefti Andrci Smáleg áhcndíng KtÍNtjánvan tíi Gunnars KarKsnnar og Svcins Skotra Höskulthsonar aö bs-iðni og tilclni Naf'n og smnvinmimvnstui Kaup- félags Dingevinga í öndverðu Sveinn Skorri Höskuldsson: Að búa til og fínna upp Enn um orðið og nafnið kaupfélag í tilefni af ábendingu Andrésar Kristjánssonar síðasta hefti Samvinnunnar skrifar I Andrés Kristjánsson grein í tilefni af ritdómi Gunnars Karlssonar um Aldarsögu Kaupfélags Þingeyinga í 2. hefti Samvinnunnar 1983 og grein minni „Hver bjó til orðið kaupfélag?“ í 5.-6. hefti Samvinmumar 1985. Annað aðal-efnisatriði greinar Andrésar snýr að grein minni ogfjallar um nafngift Kaupfélags Þingeyinga. Hann bendir réttilega á þá ónákvæmni mína að segja að frumkvöðlar félags- ins, Benedikt á Auðnum og Sigurður í Ystafelli, hafi síðar haldið því fram að stofnendur félagsins hefðu „fundið upp“ eða „búið til“ orðið kaupfélag. Þeir hafi einungis talað um nafnið og sé sitt hvað orð og nafn. Fyrir þessa ábendingu er ég Andrési þakklátur og stendur orðalag mitt til leiðréttingar og bóta ef ég skrifa frekar um efnið. Andrés vitnar máli sínu til stuðnings í samtöl sín við Benedikt á Auðnum á árunum 1931-38 og segir: „Ég heyrði hann ræða um nafn K. Þ. við mig og aðra, og mér finnst það fjarstæða að 56 ætla að hann hafi nokkru sinni átt við orðið kaupfélag þegar hann eignaði sér og öðrum frumherjum K. Þ. nafn félagsins.“ Gegn þessu hef ég ekki haldbær rök, en vil einungis segja að mér finnst það orðalag Benedikts og Sigurðar dálítið villandi að tala um að „búa til“ og „finna upp“ nafnið Kaupfélag, ef þeim var umhugað um að lesendum sínum yrði ljóst að frumherjar félagsins völdu orð sem þegar var til og notað, er þeir gáfu Kaupfélagi Þingeyinga nafn. í minni máltilfinningu hafa orðin að „búa til“ og „finna upp“ í sér fólgna svo mikla nýjung eða nýsmíði að ég skildi þá svo að þeir teldu stofnend- urna hafa skapað nýyrði. Ef þeim hefði verið hugleikið að gera lesend- um ljóst að um eldra orð var að ræða hefðu þeir getað notað orðalag eins og að „finna nafn“, „gefa nafn“, „velja nafn“ o. fl. Ég er svo sem ekki heldur einn um að hafa ratað í þessa villu. Menn, sem við gætum kallað næstu kynslóð þing- eyskra félagsmálafrömuða á eftir stofnendum Kaupfélagsins, voru strax teknir að leggja þennan skilning í nafngiftina að beinlínis hefði verið um sköpun nýyrðis að ræða. Jónas Jóns- son segir í grein sinni, „Eftir 50 ár“, í Samvinnunni, mars 1952, 5. bls., er hann hefur rætt um stofnfund félags- ins: „Þá var kaupfélag ekki aðeins nýj- ung í íslenskri félagsmálastarfsemi, heldur líka nýyrði í íslensku máli.“ Eftir öll þessi skrif okkar Andrésar má þó lesendum Samvinnunnar vera sitthvað ljósara um tilurð og notkun orðsins og nafnsins kaupfélag, og meðan ekki koma fram ný málsgögn get ég verið honum öldungis sammála um eftirfarandi niðurstöðu: „Það sem Benedikt á Auðnum, Benedikt í Múla og aðrir frumherjar K.Þ. gerðu, er þeir gáfu félagi sínu nafn, var að finna laggott orð (--) fá því stað í nafni K. Þ. Um leið afmörkuðu þeir því nýja merkingu, ákveðinn geira hringsins, hlutverk pöntunar- eða vörumiðlunar- félaga af samvinnugerð.“ +
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.