Samvinnan - 01.12.1986, Page 70
Yfirburða leiðtogi og boðberi samvinnustefnunnar
Þar verða allir að sæta sama verði, sömu viðskiptakjör-
um og sömu virðingum. Loksins eru þó margir bændur
hér á landi farnir að skilja það, að ekki muni þeim lengur
tjá að sitja og halda að sér höndum hver í sínu horni. Þeir
eru byrjaðir á að stofna ýmsan álitlegan félagsskap. Vil
ég þar til nefna:
1. BÚNAÐARFÉLÖGIN. Þau eru komin á fót í
flestum sveitum í öllum héruðum landsins. Að vísu eru
þau víða lítið annað en nafnið, en þau eru þó vonandi
vísir til annars meira. BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
er vitanlega stærst og myndarlegast, enda nær yfir allt
land. Hefur það gjört stórmikið gagn síðan það var
stofnað 1899.“ - Höf. telur upp Ræktunarfélag Norður-
lands, „mjög myndarlegt,“ Búnaðarsamband Austur-
lands stofnað 1906, Búnaðarsamband Vestfjarða stofn-
að 1907 og getur um Húss- og bústjórnarfélag Suður-
amtsins frá 1837-99.
2. KAUPFÉLÖGIN, (sem reyndar hafa flest verið
aðeins pöntunarfélög.) Af þeim er Kaupfélag Þingey-
inga elst og myndarlegast. Mun það nú vera 25 ára
gamalt. Á það tilveru sína, vöxt og viðgang fyrst og
fremst því að þakka, að Þingeyingar hafa um langan ald-
ur verið langt á undan öllum landsmönnum að menningu
og áhugaframförum. Það mun líka hafa hjálpað Þingey-
ingum, að svo stendur þar á, að þeir verða allir að sækja
í einn stað til verslunar, - á Húsavík - en þar bjó aðeins
einn kaupmaður, sem allir höfðu verslað við. Og þegar
bændur byrjuðu á kaupfélagsskapnum, þótti kaup-
manninum sér auðvitað stórlega misboðið, og gjörðist
brátt svo andvígur í garð bænda, að ekki var nema um
tvennt að velja fyrir þá: Að gefast upp og ganga á náðir
stórbokkans, eða að berjast til sigurs uppá líf og dauða.
Og Þingeyingar tóku þann kostinn sem röskum drengj-
um sæmdi betur og unnu fullan sigur.
Mörg kaupfélög (pöntunarfélög) hafa verið stofnuð
síðan, og hefur þeim sumum vegnað allvel, en önnur
hafa veslast upp og dáið fyrir ódugnað bænda. Allmörg
eru þó enn á lífi. Nokkur þeirra hafa nýlega myndað
samband sín á milli, sem enn mun þó vera mest á papp-
írnum.
3. RJÓMABÚSSAMTÖKIN. Eru það Árnesingar,
sem riðu þar fyrst á vaðið, enda hafa þeir besta aðstöðu
af öllum landsmönnum. Samtök þessi eru á hraðri fram-
för og hafa þegar gjört stórmikið gagn, ekki aðeins fyrir
Árnessýslu, heldur jafnvel óbeinlínis fyrir allt landið.
Nú hafa rjómabúin myndað samband sín á milli, og mun
það styðja mikið að framför þeirra.
4. KYNBÓTAFÉLÖG. Það eru nautgriparæktar-
hrossaræktar- og sauðfjárræktarfélög. Fyrir stuttu hefur
verið byrjað á þessum félagsskap í ýmsum stöðum á
KAUPFÉLAG HAFNFIRÐINGA
óskar sta rfsfólki og viðskiptavinum
Gleðilegra jóla.
Pökkum gott samstarf og viðskipti
á liðnum árum.
KAUPFÉLAG HAFNFIRÐINGA
Hafnarfirði
5endum öllum viðskiptavinum
og 5tarf5fólKi
bestu ósKir um
GLEÐILEG JÓL
ogfarsælt komandi ár.
PöKKum gottsamstarf á liðnum árum.
KAUPFÉLAG LANGNESINGA
Þórshöfn
70