Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1910, Síða 70

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1910, Síða 70
66 7. Kjötsölumálið. Útlit er fyrir það að þetta mál verði, enn sem fyr, helzta aðalmál fundarins. Hefir tímaritið minnst á gang þess að undanförnu, og vonandi er að það liggi Ijóst fyrir öllum, hvílíkt nauðsynjamál hjer er um að ræða fyrir landbænd- ur, yfirleitt, og þrif hinna nýju sláturfjelaga. Eins eyris verðhækkun á kjöti sláturhúsanna skiptir mörgum þús. kr. samtals á hverju ári, þó ekki sje mið- að við aukna starfsemi fjelaganna. Án afskipta sambandsins væri kjötsölumálið eflaust komið í meiri mola heldur en enn þá á sjer stað. Og sleppi sambandið málinu, er eigi annað sjáanlegt en allt fari á ringulreið, og undanfarin starfsemi hinna einstöku fjelaga verði árangurslítil. Fundurinn verður, enn sem fyr, að treysta og útbúa sem bezt þessi tvö meginatriði: samrœmi í Kjötverkun- inni og samvinnu í sölutilraunum. Reglurnar, frá fyrra ári, um flokkun kjötsins og verkun þess, verður að endurnýja, og má ske breyta þeim, lítilsháttar, ef hagkvæmt virðist. Purfa öll sláturfjelögin að skuldbinda sig til að fylgja þeirri fundarsamþykkt, sem gerð verður um þessi atriði. Um kjötsöluna, utanlands og innan, þarf einnig að verða samkomulag. Er nauðsynlegt að þeir menn, sem einkum bjóðast til þess, að selja kjötið, komi á fundinn til viðtals, og ráðagerða. Líkur eru til þess að umboðs- maður Sláturfjel. Suðurlands: Larsen frá Esbjerg, komi á fundinn. Louis Zöllner eða umboðsmaður hans hjer á landi ætti einnig að geta komið til viðtals. Ef fundinum sýnist eigi álitlegt að sæta þeim tilboðum, sem fram kunna að koma frá umboðsmönnum í kjötsölu- málinu, ætti það eigi að vera frágangssök að sláturfjelögin gerði úr garði erindisreka i sameiningu er hefði með höndum alla kjötsöluna í útlöndum. Pað ætti fráleitt að verða dýrara en gamla fyrirkomulagið. Með viðlíka útflutningi og í fyrra

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.