Fréttablaðið - 02.09.2009, Page 6

Fréttablaðið - 02.09.2009, Page 6
6 2. september 2009 MIÐVIKUDAGUR DÓMSMÁL Jónas Ingi Ragnarsson, oft kenndur við „líkfundarmálið“, pantaði hráefni sem nota má við amfetamínframleiðslu undir því yfir- skini að það væri fyrir þróun eldvarnaefnis, sem hann og Tindur Jónsson unnu saman að. Aðalmeðferð í máli Jónasar Inga og Tinds hófst í héraðsdómi Reykjaness í gær. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa staðið að framleiðslu fíkniefna í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði sumarið 2008. Í húsnæðinu fundust meðal ann- ars 38 kíló af efninu P-2-NP, sem notað er til að búa til milliefnið P-2-P, sem notað er við fram- leiðslu á amfetamíni og metamfetamíni. Jónas Ingi og Tindur neita báðir að hafa ætlað að framleiða fíkniefni. Við skýrslutöku í gær sagðist Jónas Ingi hafa verið þjónustu aðili fyrir fíkniefnaframleiðendur, það er útvegað mönnum í „þessum iðnaði“, eins og verjandi hans komst að orði, löglegt hráefni og búnað til fíkniefnaframleiðslu, svo sem mjólkursykur, vogir, lampa og fleira. Á vordögum 2008 hafi aðili, sem Jónas neitar að nefna, beðið hann um að útvega sér efnið P-2-P. Efnið er eftirlitsskylt. Taldi Jónas því að erfitt yrði að flytja það inn til landsins og ákvað að búa það til sjálfur og selja fyrrnefndum aðila. Hann hafi talið í mesta lagi um brot á reglugerð að ræða en ekki lagabrot. Kvaðst hann hafa vitað að hægt væri að nota P- 2-P til framleiðslu á amfetamíni en ekki spurt kaupandann til hvers hann ætlaði að nota það. Tindur, sem hefur lokið einu ári í efnafræði við Háskóla Íslands, fór upphaflega að vinna fyrir Jónas Inga með það í huga að aðstoða hann við að framleiða eldvarnaefni. Jónas Ingi bar fyrir rétti að þáttur Tinds í málinu hefði verið „takmarkaður“. Ekki hafi liðið á löngu þar til Jónas Ingi hefði beðið Tind um aðstoð við sam- setningu tækja sem hann notaði við framleiðslu á P-2-P. Hann hefði ekki sagt Tindi hvað hann ætlaði að framleiða. Tindur hefði þó fljótlega áttað sig á hvaða efni væri um að ræða. Í skýrslutöku kvaðst Tindur hafa gert sér grein fyrir að framleiðsla á P-2-P væri eftir- litsskyld en ekki vitað að nota mætti efnið til að framleiða fíkniefni. Honum hefði þótt þetta spennandi verkefni og því ákveðið að halda samstarfinu við Jónas Inga áfram. Hann sæi eftir því núna. Saksóknari lagði fram uppskrift af símtali milli Jónasar Inga og Tinds, sem lögregla hler- aði, þar sem þeir töluðu um „eldvarnakover“. Útskýrði Tindur að þeir hefðu viljað lágmarka áhættuna. Jónas Ingi hefði því notað eldvarna- verkefnið sem yfirskin þegar hann pantaði P-2- NP til að vekja ekki grunsemdir. bergsteinn@frettabladid.is Notuðu eldvarnaverkefni sem yfirskin en töluðu af sér í síma Jónas Ingi Ragnarsson notaði eldvarnaverkefni sitt og Tinds Jónssonar sem yfirskin til að kaupa hráefni í meinta amfetamínframleiðslu. Hann segist ekki hafa ætlað að framleiða fíkniefni heldur selja milliefnið. Á LEIÐ Í DÓMSSAL Jónas Ingi Ragnarsson, fremstur á myndinni, á leið til aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Tindur Jónsson fylgir í humátt á eftir með sólgleraugu og hulið andlit. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FÓLK Bekkir meðfram göngu- stígnum sem liggur með suður- strönd Reykjavíkur og áfram inn í Fossvogsdal eru of fáir, að sögn hverfisráðs Vesturbæjar, sem vill að bekkjunum verði fjölgað til muna. „Á ferðum okkar um stíginn rekumst við oft á eldri borgara sem sitja á þeim örfáu bekkjum sem nú þegar eru á leiðinni og hefur okkur oftsinnis verið tjáð að gott væri að geta gengið lengra, en of strjált sé á milli bekkja til að mögulegt sé að hvíl- ast reglulega. Einnig er margt fólk með ung börn sem gæti vel nýtt sér fjölgun bekkja til að setj- ast niður með nesti eða hreinlega til að njóta fagurs útsýnis,“ útskýrir hverfisráðið. - gar Stígakerfi borgarinnar: Bekkir of fáir fyrir göngufólk Prófessor í lyfjafræði við Háskóla Íslands, sem var lögreglunni innan handar við rannsókn málsins, bar fyrir dómi í gær að sitt mat væri að iðnaðar- húsnæðið í Hafnarfirði væri ætlað til „stórfelldrar framleiðslu á fíkniefnum“. Auk efna og búnaðar sem þyrfti til að fram- leiða P-2-P hefði mátt finna þar önnur efni og áhöld sem nýttust á seinni stigum til að fullvinna amfetamín og metamfetamín. Þó vantaði nokkur nauðsynleg efni. Til að framleiða metamfetamín vantaði þó aðeins vetnisgas; það væri hægt að fá sent heim frá söluaðila samdægurs. Kvaðst hann að auki ekki geta komið auga á neina tengingu við framleiðslu á eldvarnaefni í iðnaðarhúsnæð- inu og sæi „engan annan augljósan tilgang“ en að framleiða ætti þar fíkniefni. „ENGINN ANNAR AUGLJÓS TILGANGUR“ BRETLAND Vorið 1944 töldu Þjóðverj- ar miklar líkur á því að Bandamenn myndu ráðast inn í Frakkland frá Íslandi, í því skyni að frelsa Frakk- land undan hernámi nasista. Þetta kemur fram í skjölum, sem þjóð- skjalasafnið í Bretlandi birti í gær. Í skjölunum segir frá ferð þriggja manna, Þjóðverjans Ernsts Freseni- us og Íslendinganna Hjalta Björns- sonar og Sigurðar Júlíussonar, sem nasistar sendu til Íslands til að kanna skipaferðir og herflutninga. Í frétt breska dagblaðsins The Tele graph, sem byggð er á skjölunum, segir að selveiðimaður nokkur hafi séð til ferða þremenn- inganna skammt frá Borgarfirði eystri og þótt þeir grunsamlegir. Þrír njósnarar Bandamanna, sem hétu Miller, Hoan og Frick, fréttu af þessu þar sem þeir sátu að snæðingi á hóteli á Seyðisfirði 5. maí 1944. Þeir héldu af stað og handtóku mennina, sem síðan voru sendir til Bretlands og voru þar í haldi til stríðsloka. Í yfirheyrslum þar gáfu Íslendingarnir fúslega upplýsingar um ferðir sínar, en Fresenius vildi sem minnst segja. Mennirnir þrír eru sagðir hafa gengið í njósnaskóla í Noregi, þar sem þeir lærðu leyniskrift, dulmál og skemmdarverkastarfsemi. Fresenius hafði áður búið hér á landi í nokkur ár. Hann var frum- kvöðull í ylrækt á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp, en hélt aftur til Þýskalands nokkru eftir valdatöku Hitlers. - gb Þrír njósnarar nasista fóru um Ísland vorið 1944: Áttu að fylgjast með skipum HITLER OG FÉLAGAR Tveir Íslendingar og einn Þjóðverji voru sendir til Íslands til að njósna um yfirvofandi árás, sem nas- istar töldu að yrði skipulögð frá Íslandi. NORDICPHOTOS/AFP LÍBÍA, AP Lockerbie-sprengju- maðurinn Abdel Baset al-Megra- hi liggur nú á sjúkrahúsi í Líbíu. Að sögn emb- ættismanna þar í landi hefur heilsu hans hrakað gríðar- lega undan- farna daga. Al-Megrahi var sleppt úr fangelsi í Skot- landi 20. ágúst síðastliðinn af mannúðarástæðum. Hann þjá- ist af krabbameini í blöðruháls- kirtli. Við komuna til Líbíu tóku hundruð manna fagnandi á móti honum. Al-Megrahi var eini maðurinn sem var sakfelldur fyrir sprengju árás í flugvél Pan Am- flugfélagsins yfir Lockerbie í Skotlandi árið 1988. - þeb Lockerbie-sprengjumaður: Heilsu al-Megra- hi hrakar hratt LÖGREGLUMÁL Stúlka á fermingar- aldri fékk gat í naflann á almenn- ingssalerni í verslunarmiðstöð í Reykjavík í sumar. Stúlkan hafði komist í kynni við mann á netinu sem setti lokk í naflann að henn- ar ósk. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er ekki um einsdæmi að ræða. Upp komst um málið þegar stúlkan þurfti að leita til læknis vegna graftar í naflanum, þar sem lokkurinn var fjarlægður. Forráðamaður hennar tilkynnti um málið til lögreglu í kjölfarið. Lögreglan vill benda forráða- mönnum á að kynna sér vefsíður um örugga netnotkun, til dæmis saft.is. - þeb Stúlka á fermingaraldri: Lokkur settur í nafla á salerni ABDEL BASET AL-MEGRAHI Á meirihluti í HS Orku að vera í opinberri eigu? Já 81% Nei 19% SPURNING DAGSINS Í DAG Hefur þú áhyggjur af því að Vítisenglar hafi haslað sér völl á Íslandi? Segðu skoðun þína á visir.is. KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.