Fréttablaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 8
8 2. september 2009 MIÐVIKUDAGUR
1 Hvert er sagt vera sveins-
stykki vélhjólaklúbbsins Fáfnis
í því að komast inn í Vítis-
englana?
2 Hvað heitir talsmaður
samtakanna kjosa.is sem vill að
forsetinn vísi Icesave-samningn-
um í þjóðaratkvæðagreiðslu?
3 Hvaða númer mun Eiður
Smári Guðjohnsen bera á
keppnistreyju sinni hjá franska
liðinu Mónakó?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
ÖRYGGISMÁL „Fari saman stór-
streymi, háflóð, hvassviðri og þung
alda eru mannvirki fyrir hundruð
milljóna í stórhættu,“ segir sveit-
arstjórn Mýrdalshrepps og kveðst
hafa sýnt einstakt langlundar-
geð í að bíða eftir endurbótum á
sjóvarnar garði við Vík. Að sögn
Mýrdælinga hefur sífellt brotið af
landinu og fjöruborðið nálgast nú
Vík. Opinberir aðilar gerðu áætlun
um sjóvörn við Vík árið 1994.
„Þá voru sett viðmiðunarmörk
um hvenær skyldi ráðist í sjóvarnir
og miðuðust þau mörk við að verja
mannvirki áður en þau væru í yfir-
vofandi hættu. Landbrotið hefur að
meðaltali verið sjö til tíu metrar á
ári undanfarin ár. Á árunum 1990-
1993 var landbrotið allt að 42 metr-
ar á ári að meðaltali. Fjöruborðið
er nú komið langt inn fyrir við-
miðunarmörk án þess að fjármagn
hafi verið tryggt í framkvæmd-
ina,“ segir í ályktun sveitarstjórnar-
innar.
Í bréfi til Mýrdalshrepps kemur
fram að fjármögnun sjóvarnar-
garðs við Vík verði rædd við endur-
skoðun samgönguáætlunar sem nú
standi yfir. Bréfið var rætt á síð-
asta sveitarstjórnarfundi. „Á undan-
förnum árum hefur orðið umtals-
vert eignatjón vegna sandfoks sem
erfiðara hefur reynst að hemja eftir
því sem landrými minnkar. Sveitar-
stjórn lýsir fullri ábyrgð á hendur
samgönguráðuneyti og ríkisstjórn
verði ekki tryggt að framkvæmd-
ir hefjist þegar á fyrri hluta ársins
2010.“ - gar
Sveitarstjórn segir hundraða milljóna króna tjón yfirvofandi og lýsir ábyrgð á ríkið:
Fjöruborð við Vík langt innan marka
FJARAN VIÐ VÍK Landbrot undan ágangi
sjávar er stöðugt við Vík í Mýrdal og
segjast heimamenn orðnir uggandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Básaskersbryggju | 900 Vestmann 0 | Fax 481 2991 | www.eimskip.is | www.herjolfur.is
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 9
1
3
5
4
Herjólfur í slipp
Þegar áætlunarsiglingum lýkur þann 13. september fer Herjólfur í slipp
á Akureyri til viðhalds og skoðunar. Áætlað er að Herjólfur sigli að nýju
samkvæmt áætlun frá Þorlákshöfn á hádegi föstudaginn 18. september.
Á meðan siglir Baldur samkvæmt eftirfarandi áætlun milli Vestmannaeyja
og Þorlákshafnar.
Frá Vestmannaeyjum kl. 8:00 og 16:00.
Frá Þorlákshöfn kl. 12:00 og 19:30.
Ath. veðurskilyrði hafa meiri áhrif á Baldur og því gætu orðið einhverjar tafir.
PÓLLAND, AP Leiðtogar margra Evr-
ópuríkja komu saman í Póllandi í
gær á litlum skaga við Gdansk sem
þýskt herskip gerði árás á fyrir
réttum sjötíu árum.
Þessi árás markaði upphaf
seinni heimsstyrjaldarinnar.
Þau Angela Merkel Þýskalands-
kanslari, Vladimír Pútín, forsætis-
ráðherra Rússlands, og Donald
Tusk, forsætisráðherra Póllands,
lofuðu því, ásamt öðrum leiðtogum
sem mættir voru, að gleyma aldrei
þeim lærdómi sem draga mætti af
styrjöldinni miklu. Þrátt fyrir það
gátu sumir þeirra ekki komið sér
saman um aðdraganda og orsakir
stríðsins.
Pólverjar vilja að Rússar viður-
kenni sinn hlut í upphafi hildar-
leiksins, en Rússar reyndu aftur á
móti að gera sem minnst úr samn-
ingi Hitlers og Stalíns. Þjóðverjar
láta þó þessar deilur sem vind um
eyrun þjóta og viðurkenna fúsir
eigin ábyrgð.
„Þing okkar hefur fordæmt
samning Molotovs og Ribben-
trops,“ sagði Vladimír Pútín, for-
sætisráðherra Rússlands, „og við
gerum rétt í því að búast við því
að önnur ríki sem gerðu samninga
við nasista geri slíkt hið sama.“
Utanríkisráðherrar Sovét-
ríkjanna og Þýskalands, þeir
Vjatseslav Molotov og Joachim
von Ribbentrop, undirrituðu 23.
ágúst 1939 samning um að hvor-
ugt ríkið myndi ráðast á hitt. Rúm-
lega viku síðar réðust Þjóðverjar á
Pólland, og um miðjan september
réðust síðan Sovétmenn einnig inn
í Pólland samkvæmt leynilegum
ákvæðum samningsins.
Pútín benti á að Pólverjar hefðu
á svipuðum tíma gert samning við
nasista um að hvorugt landið myndi
ráðast á hitt. Lech Kaczynski, for-
seti Póllands, sagði hins vegar
út í hött að bera þann samning
saman við samning Molotovs og
Ribbentrops, enda hefði Pólland
gert sambærilegan samning við
Sovétríkin.
Angela Merkel Þýskalandskansl-
ari sá hins vegar enga ástæðu til
að efast um hlut Þýskalands og
sagði að Þjóðverjar myndu aldrei
gleyma orsökum og afleiðingum í
sambandi við upphaf stríðsins.
„Þjóðverjar hófu seinni heims-
styrjöldina. Við færðum heiminum
ómældar þjáningar,“ sagði hún.
gudsteinn@frettabladid.is
Sjötíu ár frá
stríðsbyrjun
Leiðtogar Evrópuríkja gátu ekki alveg gleymt deilu-
málum sínum þegar þeir komu saman í Póllandi til
að minnast upphafs seinni heimsstyrjaldarinnar.
ÞAR SEM SEINNA STRÍÐIÐ HÓFST Minningarathöfn var haldin í gær á Westerplatte-
skaga við Gdansk í Póllandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓLK Átta umsækjendur eru um
embætti prests í Hafnarfjarðar-
prestakalli. Frestur til að sækja
um embættið rann út 27. ágúst.
Skipað verður í embættið frá og
með 1.október. Sjö af umsækj-
endunum átta eru konur, að því
er fram kemur í tilkynningu frá
Biskupsstofu.
Umsækjendur eru: séra Arna
Ýrr Sigurðardóttir, cand. theol.,
Arndís B. Bernharðs dóttir Linn,
séra Ása Björk Ólafsdóttir,
cand. theol., Bryndís Valbjarnar-
dóttir, séra Guðbjörg Jóhannes-
dóttir, cand. theol., Haraldur
Örn Gunnarsson, séra Yrsa
Þórðardóttir og séra Þórhildur
Ólafs.
Biskup Íslands skipar í emb-
ættið til fimm ára að fenginni
umsögn valnefndar.
- kh
Kjalarnesprófastsdæmi:
Sjö konur meðal
umsækjenda
BANDARÍKIN, AP Meira en fimm-
tíu hús urðu í gær skógareldunum
í Kaliforníu að bráð. Eldarnir hafa
stækkað og nú er búist við að þeir
geisi vikum saman.
Meira en tólf þúsund heimili eru í
hættu og þúsundir manna hafa flúið
að heiman. Sumir hafa þó þráast við
og látið ráðleggingar stjórnvalda
sem vind um eyru þjóta.
Óvíst var hvaða áhrif þrumuveður,
sem einhverjar líkur voru til að
skylli á í gær, myndi hafa á eldana.
Hvassviðri sem fylgdi því gæti nært
eldana, en til þessa hefur lognið á
þessum slóðum verið frekar hag-
stætt fyrir slökkvistarfið.
Stærstu eldarnir eru rétt fyrir
utan borgina Los Angeles, aðeins
rúmlega tuttugu kílómetra frá mið-
borginni.
Gríðarleg eyðilegging mætti
íbúum í hverfinu Tujunga Canyon,
þar sem eldarnir skildu eftir sig
brunarústir einar.
- gb
Skógareldarnir æða áfram í Kaliforníu:
Tugir heimila urðu
eldinum að bráð
REYKHAFIÐ GNÆFIR VIÐ HIMIN Skýja-
kljúfarnir í Los Angeles virðast ekki stórir
í samanburði við reykinn frá eldunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FJARSKIPTI Danice, sæstrengur
sem tengir saman Ísland og
Evrópu, var tekin í notkun í
gær. Sæstrengurinn liggur á
milli Íslands og Danmerkur.
Vodafone er fyrsti notandi Dan-
ice en með komu hans hefur
Vodafone tryggt sér fjórar mis-
munandi gagnatengingar við
umheiminn, að því er segir í til-
kynningu frá fyrirtækinu. Hinir
eru Farice-1, Cantat-3 og Green-
land Connect.
Lagning Danice-sæstrengsins
hófst í ágúst 2008. Strengurinn
er í eigu Eignarhaldsfélagsins
Farice ehf, sem einnig á áttatíu
prósent í Farice-1 sæstrengnum.
Gagnatenging við Ísland:
Opnað á Dan-
ice-sæstrenginn
VEISTU SVARIÐ?