Fréttablaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 12
12 2. september 2009 MIÐVIKUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Efnahagsbrotadeild
Ríkis lögreglustjóra rannsakar
styrkveitingar fyrirtækja í opin-
berri eigu til stjórnmálaflokka
fyrir kosningarnar 2007.
Helgi Magnús Gunnarsson sak-
sóknari staðfestir þetta, en vill ekki
ræða rannsóknina frekar.
Samkvæmt lögum um fjármál
stjórnmálasamtaka er flokkum
óheimilt að taka við styrkjum frá
opinberum aðilum. Rannsóknin
snýst því um hugsanlegt lögbrot
flokkanna, en ekki fyrirtækjanna.
Ríkisendurskoðun birti í mars
útdrætti úr ársreikningum flokk-
anna fyrir árið 2007.
Þar kom fram
að fyrirtæki í
meirihlutaeigu
ríkisins, Neyðar-
línan, Íslands-
póstur og Orku-
bú Vestfjarða,
hefðu styrkt
fjóra stjórn-
málaflokka.
Neyðarlínan
veitti Sjálfstæðis-
flokknum hámarksstyrkveitingu,
þrjú hundruð þúsund krónur, en
styrkti ekki aðra flokka. Sjálfstæðis-
flokkurinn skilaði síðar styrknum
og framkvæmdastjóri flokksins,
Andri Óttarsson, harmaði mistök-
in.
Þórhallur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Neyðarlínunnar, var
áður aðstoðarmaður Þorsteins Páls-
sonar, sem þá var ráðherra fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, og síðar rit-
stjóri Fréttablaðsins.
Þá upplýsti Ríkisendurskoðun
einnig að Íslandspóstur hefði
styrkt Framsókn, Samfylkingu,
Sjálfstæðis flokk og VG um 150.000
krónur hvern flokk. Ingimundur
Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts,
var áður bæjarstjóri í Garðabæ og
formaður Samtaka atvinnulífsins.
Flokkarnir lýstu því allir yfir í
kjölfarið að þeir ætluðu að endur-
greiða Íslandspósti.
Orkubú Vestfjarða styrkti Sjálf-
stæðisflokkinn um 40.000 krónur
fyrir kosningarnar en ekki aðra
flokka. Kristján Haraldsson er
orkubússtjóri Orkubús Vest-
fjarða.
Sá sem brýtur lög um fjármál
stjórnmálasamtaka, hvort sem er
af ásetningi eða stórfelldu gáleysi,
skal sæta fésektum. Alvarleg brot
geta þó varðað allt að sex ára fang-
elsi. Framkvæmdastjórar flokk-
anna eru líklegastir til að þurfa að
svara fyrir móttöku styrkjanna.
klemens@frettabladid.is
Efnahagsbrotadeild skoðar
styrki til stjórnmálaflokka
Efnahagsbrotadeild rannsakar nú styrkveitingar opinberra fyrirtækja til stjórnmálaflokka fyrir alþingis-
kosningar 2007. Fjórir flokkar kunna að hafa brotið lög. Kjörnir fulltrúar buðu upp á grunsemdir.
HELGI MAGNÚS
GUNNARSSON
Finnbogi Vikar, fyrrum
hluthafi í FL Group
og frambjóðandi VG í
sveitar stjórnarkosningum,
óskaði eftir lögreglurann-
sókn á styrkveitingunni
9. apríl.
Kæran þótti ekki full-
nægjandi til rannsóknar
en í henni vakti Finnbogi
athygli Ríkislögreglustjóra
á því að Guðlaugur Þór
Þórðarson, þing maður
Sjálfstæðisflokksins,
hefði haft milligöngu um
styrkina og að skömmu
eftir styrkveitinguna
hefði „farið af stað ferli
sem kennt er við REI“.
Guðlaugur Þór kom
að stofnun REI, sem
meirihluti Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar
ætlaði í fyrstu að selja til
Geysis Green Energy.
- kóþ
KÆRA FINNBOGA
FINNBOGI VIKAR
GUÐMUNDSSON
Samkvæmt heimildum blaðsins átti
einnig að taka í rannsókn efnahags-
brotadeildar önnur fríðindi sem
kjörnir fulltrúar almennings nutu
frá aðstandendum orkufyrirtækja,
sérstaklega laxveiðiferð Hauks
Leóssonar, stjórnarformanns OR, í
ágúst 2007.
Björn Ingi Hrafnsson, Guðlaugur
Þór og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
veiddu þá í Miðfjarðará, ásamt
Stefáni Hilmarssyni, fjármálastjóra
Baugs.
Baugur, sem
tengist jafnframt
FL Group, var með ána á leigu og
hafði boðið Hauki að veiða.
Helgi Magnús Gunnarsson,
saksóknari efnahagsbrotadeildar,
segir um þetta:
„Það er mjög óheppilegt að
kjörnir fulltrúar bjóði upp á svona
grunsemdir um störf sín, þó að
í þessu tilfelli hafi ekki þótt næg
ástæða af hendi Ríkissaksóknara til
að hefja rannsókn sakamáls.“ - kóþ
VILDI SKOÐA LAXVEIÐINA LÍKA
Styrkir til stjórnmálaflokka eru
meðal þess sem rannsóknarnefnd
Alþingis um bankahrunið rannsak-
ar, staðfesti Tryggvi Gunnarsson
nefndarmaður í samtali við Frétta-
blaðið þann 11. apríl.
Nefndin hefur óskað eftir
upplýsingum frá bönkunum um
hugsanlegar fyrirgreiðslur til stjórn-
málamanna.
Athugunin beinist ekki að
hugsanlegum viðskiptum eignar-
haldsfélaga, svo sem FL-Group, við
stjórnmálamenn.
Viðfangsefni nefndarinnar
eru bankarnir en ekki almenn
fyrirtæki.
Engar upplýsingar fengust í gær
um framgang rannsóknarinnar.
- kóþ
RANNSÓKNAR-
NEFND SKOÐAR
BANKANA
Ríkissaksóknari ákvað í vor að taka ekki
til formlegrar athugunar þrjátíu millj-
óna króna styrk FL Group til Sjálfstæðis-
flokksins fyrir kosningarnar 2007, né rann-
saka aðrar fyrirgreiðslur til háttsettra
sjálfstæðis manna í ljósi fyrirhugaðrar sölu
REI til Geysis Green, sem var að hluta í
eigu FL Group.
Samkvæmt heimildum blaðsins þótti
efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra
ástæða til að vekja athygli Ríkissak-
sóknara á þessum hugsanlegu lög-
brotum. Einnig vildi deildin, í
ljósi fjölmiðlaumfjöllunar,
skoða hvernig styrkveitingar
til Sjálfstæðisflokksins kynnu
að hafa tengst Landsvirkjun
Power, félagi Landsvirkjunar
og Landsbanka. Bankinn styrkti flokkinn um
alls þrjátíu milljónir króna.
Deildin óskaði eftir afstöðu ríkissaksókn-
ara til þessa, vegna tengsla fyrirtækjanna
við orkufyrirtæki í eigu almennings.
Ríkissaksóknari taldi að ekki væru nægi-
legar vísbendingar til formlegrar rannsókn-
ar á þessum málum. Þurft hefði að sýna
fram á að styrkir og fyrirgreiðslur hefðu
verið veittar til að hafa áhrif á afgreiðslu
stjórnvalds í málum tengdum fyrir-
tækjunum. Erfitt væri að sanna það.
- kóþ
Vildi skoða risastyrki FL Group og
Landsbanka til Sjálfstæðisflokksins
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON Þing-
maður Sjálfstæðisflokks viðurkenndi
að hafa „haft milligöngu“ um styrkina.
GENF, AP Auðugustu ríki heims
þyrftu að afhenda fátækari hluta
heimsins sextíu þúsund milljarða
króna árlega til þess að fátæku
ríkin gætu brugðist við loftslags-
breytingum.
Þetta segir Richard Kozul-
Wright, sem hefur tekið saman
207 blaðsíðna skýrslu fyrir Sam-
einuðu þjóðirnar um málið. Skýrsl-
an var kynnt í Genf í gær, þar sem
nú stendur yfir ráðstefna um við-
brögð við hlýnun jarðar.
Ef þróunarríki halda einfaldlega
áfram á sömu braut og iðnríkin
hafa farið, þá mun það hafa skelfi-
leg áhrif á loftslag jarðar, segir í
skýrslunni.
Á hinn bóginn er hægt að hjálpa
þeim með fjármagn til þess að þau
skipti yfir í hreina orkugjafa sem
losa ekki gróðurhúsalofttegundir
út í andrúmsloftið.
„Það er ekki hægt að láta
þróunarlöndin ein um þetta,“ segir
Kozul-Wright. Upphæðin, sem
hann telur nauðsynlega, nemur
um það bil einu prósenti af heildar-
framleiðslu jarðarbúa árlega.
Þetta myndi gera fátækari löndum
kleift að njóta hagvaxtar án þess
að spilla andrúmsloftinu.
Aðrir fræðimenn hafa sagt
ámóta upphæðir nauðsynlegar, en
ekki fyrr en eftir mörg ár. Kozul-
Wright segir hins vegar nauðsyn-
legt að byrja strax á allra næstu
árum að útvega þetta fé.
- gb
Þróunarríki þurfa mikla fjárhagsaðstoð til að bregðast við loftslagsbreytingum:
Sextíu þúsund milljarðar á ári
SAMGÖNGUR Bæjarráð Vestur-
byggðar lýsir óánægju með að
ferðir Breiðafjarðarferjunnar
Baldurs falli niður dagana 6. til
22. september.
Sæferðir, sem gera út Baldur,
hafa leigt skipið út til að leysa
af Vestmannaeyjaferjuna Herj-
ólf sem fer í slipp umrædda
daga. Þótt Baldur verði ekki í
ferðum ætla Sæferðir að þjón-
usta Breiðafjarðarsvæðið með
farþegaferjunni Særúnu. Það
skip tekur hins vegar ekki bíla og
getur ekki annað þungaflutning-
um eins og Baldur. Fram kemur
á heimasíðu Sæferða að kostnað-
ur við að leigja ferju í stað Herj-
ólfs frá útlöndum væri margfald-
ur miðað við að láta Baldur leysa
hann af. - gar
Bílaferjuleysi á Breiðafirði:
Skert þjónusta í
hálfan mánuð
BALDUR Breiðafjarðarferjan siglir til
Vestmannaeyja í afleysingum í hálfan
mánuð.
VIÐSKIPTI Tap Rarik á fyrstu sex
mánuðum ársins nam 164 milljón-
um króna. Rekstrarhagnaður varð,
fyrir afskriftir, fjármagnsliði og
skatta, upp á 1.166 milljónir króna
eða 28,1 prósent af veltu tímabils-
ins, samanborið við 782 milljón-
ir árið áður. Hreint veltufé frá
rekstri var 1.169 milljónir króna.
Rekstrartekjur hækkuðu um
rúm 13,7 prósent frá fyrra ári,
en rekstrargjöld með afskriftum
um rúmlega 6,6 prósent og var
regluleg starfsemi fyrirtækisins í
samræmi við áætlanir. Afskriftir
hækka milli tímabila um 102 millj-
ónir kr. vegna endurmats eigna í
lok árs 2008. - kh
Sex mánaða uppgjör Rarik:
Tap Rarik nam
164 milljónum
GENGIÐ FRAMHJÁ GADDAFÍ Líbíu-
menn héldu í gær upp á fjörutíu ára
afmæli stjórnarbyltingar Moammars
Gaddafí, sem enn er við völd þar í
landi. NORDICPHOTOS/AFP
Deilt um Dyrhólaey
Eigendur jarðanna Vatnsskarðshóla
og Garðakots eru ósáttir við að hafa
ekki verið boðnir til fundar eigenda
Dyrhólaeyjar í júní. Sveitarstjórn Mýr-
dalshrepps segir ekkert athugavert við
fundarboðið enda eigi Vatnsskarðs-
hólar og Garðakot ekkert í Dyrhólaey,
sem sé í óskiptri sameign Eystri-Dyr-
hóla, Norðurgarðs og Loftssala/Dyr-
hólahjáleigu.
MÝRDALSHREPPUR
Baðströnd á Héraði
Ferðamálasjóður hefur veitt fjögurra
milljóna króna styrk til að koma upp
baðströnd við Urriðavatn skammt frá
Egilsstöðum. Framkvæmdir eru þegar
hafnar og heimamenn í Fljótsdalshér-
aði vonast til að hægt verði að nota
aðstöðuna næsta sumar.
FERÐAMÁL
VESTURBAKKINN, AP Ísraelskur her-
maður skaut palestínskan ungl-
ing til bana á Vesturbakkanum á
mánudagskvöld.
Að sögn palestínskra lögreglu-
yfirvalda var hinn fjórtán ára
gamli Mohammed Nayef að kasta
steinum í ísraelska hermenn
þegar þeir skutu hann. Ísra-
elski herinn segir hins vegar að
Nayef hafi verið í hópi manna
sem köstuðu sprengjum að varð-
stöð í nágrenni við gyðingahverfi
á svæðinu. Hermennirnir hafi
því hafið skothríð og hæft dreng-
inn. Hann var fluttur á spítala
á mánudagskvöld og lést þar af
sárum sínum. - þeb
Palestínskur unglingur:
Fjórtán ára
skotinn til bana
RÁÐSTEFNUGESTIR Í GENF Um 1.500
manns sitja nú á fundum í Genf til að
ræða loftslagsmál. NORDICPHOTOS/AFP