Fréttablaðið - 02.09.2009, Síða 14

Fréttablaðið - 02.09.2009, Síða 14
14 2. september 2009 MIÐVIKUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ Betur lagt haus í bleyti „Eins og ég hugsaði þetta átti þetta bara að vera blossi og svo búið.“ RÍKHARÐUR JÚLÍUS RÍKHARÐSSON, DÆMDUR Á MÁNUDAG FYRIR AÐ KVEIKJA Í HÚSI Á KLEPPSVEGI. Fréttablaðið, 1. september Nýtt landslag „Áður fyrr skipti varla máli hvað hlutirnir kostuðu en nú sjáum við að ódýrari hlutir ganga betur en áður.“ VÍÐIR PÉTURSSON, FRAMKVÆMDA- STJÓRI HÚSASMIÐJUNNAR, UM STÖÐUNA Á BYGGINGAVÖRU- MARKAÐI. Fréttablaðið, 1. september Pantaðu í síma 565 600 0 eða á w ww.som i.is Frí heim sending * FERSKT & ÞÆGILEGT TORTILLA VEISLUBAKKI EÐALBAKKI LÚXUSBAKKI DESERTBAKKI GAMLI GÓÐI TORTILLA OSTABAKKI 30 bitar 30 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 50 bitar Fyrir 10 manns ÁVAXTABAKKI Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm. *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar. „Við hjá Rauða krossi Íslands erum að kynna rannsókn um umfang og eðli mansals á Íslandi,“ segir Sólveig Ólafs- dóttir, sviðsstjóri hjá Rauða krossinum, og bætir við að rannsóknin sé sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. „Rannsóknin er unnin af Rannsóknarstofu í kvenna- og kynja- fræðum í Háskóla Íslands en fyrir tilstilli Rauða krossins.“ Rannsóknin verður kynnt í hádeginu á Háskólatorgi. Sólveig segir að í starfi Rauða krossins á Íslandi hafi starfsfólkið rekið sig á veggi í þessum málum, því litlar upplýsingar hafi verið hægt að fá. „Fólksflutningar milli landa eru eitt helsta viðfangsefni Rauða krossins, sérstaklega í Evrópu, og í okkar samstarfi um hvernig best sé hægt að aðstoða hópa sem lenda á jaðri samfélagsins höfum við rekið okkur á veggi.“ Hún segir að þess vegna hafi verið sett fram áheit árið 2007 um að rannsókn á umfangi mansals hæfist hér á landi. „Það má segja að samstarfs- félög okkar í Evrópu hafi haft rökstuddan grun um að meira væri í gangi en að Ísland væri bara gegnumstreymisland þar sem fólk dveldi í stuttan tíma, jafnvel færi bara um flugvöllinn.“ Að sögn Sólveigar stendur til að nota niðurstöður rannsóknarinnar til að bæta vernd og þjónustu fyrir fórnarlömb mansals, bæði hjá Rauða krossinum og öðrum félagasamtökum sem starfa að svipuðum málum. „Ástæðan fyrir fáum málum hér er ekki að við séum svo ólík öðrum löndum. Fórnar lömbin koma bara síður því það eru engin úrræði fyrir þau.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SÓLVEIG ÓLAFSDÓTTIR SVIÐSSTJÓRI RAUÐA KROSSINS Kynnir fyrstu skýrsluna um mansal Víðs vegar um landið má finna yfirgefin hús af ýms- um stærðum og gerðum. Stefán Karlsson, ljósmynd- ari Fréttablaðsins, myndaði nokkur slík á ferð sinni um Austfirði fyrir nokkru. Meðal fjarðanna eru Loð mundarfjörður, Seyðis- fjörður og Hornafjörður. Loðmundarfjörður er á milli Seyðis fjarðar og Borgarfjarðar eystri og er einn afskekktasti fjörður landsins. Í upphafi tuttug- ustu aldarinnar voru þar tíu bæir, en á sjöunda áratug aldarinnar höfðu þeir allir lagst í eyði. Sunnan við Loðmundarfjörð er Seyðisfjörður, þar sem um 700 manns búa í samnefndum bæ. Fjörðurinn var áður fyrr lítið bændasamfélag, en bóndabæirnir hafa lagst í eyði. Í Hornafirði er einnig að finna þétta byggð, en á Höfn búa um 1.600 manns. Höfn var verslunarstaður og lengi vel eini þéttbýlisstaðurinn í Austur- Skaftafellssýslu. Gömul býli sem lagst hafa í eyði á undanförnum árum er að finna annars staðar í firðinum. Eyðibýli á Austfjörðum SEYÐISFJÖRÐUR Þessar rústir í Seyðisfirði virðast hafa samlag- ast náttúrunni ótrúlega vel. SEYÐISFJÖRÐUR Þetta fyrrum myndarlega hús stendur enn við Seyðisfjörð. LOÐMUNDARFJÖRÐUR Loðmundarfjörður er allur í eyði og hefur verið það frá því á sjöunda áratug síðustu aldar. HORNAFJÖRÐUR Þetta stóra eyðibýli stendur í Hornafirði. Ýmislegt lauslegt er að finna við húsið, en það virðist ekki trufla hesta á beit mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.