Fréttablaðið - 02.09.2009, Qupperneq 20
2. september 2009 MIÐVIKUDAGUR2
„Það var brjálað veður og mikið
í ánum, þannig að gönguleiðirnar
voru ófærar á tveimur leiðum og
við þurftum að breyta áætluninni.
Samt var þetta skemmtileg ferð,“
segir Berglind hvergi bangin.
„Svo lentum við í að bjarga ferða-
mönnum, alveg óvart. Þeir voru
mjög heppnir að við vorum þarna,“
heldur hún áfram og lýsir svo leið-
inni.
„Við byrjuðum á að keyra í skál-
ann við Sveinstind. Komum seint
um kvöld, eitthvað um ellefuleytið.
Pabbi, bróðir minn og ég sváfum
í tjaldi. Löbbuðum næsta dag í
Skælinga og óðum eina á á leið-
inni. Þar tjölduðum við líka. Dag-
inn eftir gengum við um Eldgjá í
vondu veðri og gistum í skálanum
í Álftavatnskrók en fórum þaðan í
Hólaskjól því allt annað var ófært.
Þar vorum við fjórðu nóttina. Svo
vorum við keyrð áleiðis í Hvann-
gil. Þar tók Ragna Sif, dóttir for-
manns hjálparsveitarinnar, á móti
okkur. Hún var þar skálavörður
og fór með okkur í gönguferð að á
sem venjulega er hrein og tær en
var kolmórauð og illileg þegar við
komum að henni. Við gengum frá
Hvanngili í skálann í Emstrum,
köstuðum aðeins mæðinni og
löbbuðum svo af stað en vorum
tekin upp í bíla og keyrð að Breiða-
bólsstað í Fljótshlíð. Þar var svaka
veisla, fínn matur og góð kaka og
við krakkarnir fórum í fótbolta á
eftir. Þetta var allt mjög gaman.“
Yfir áttatíu manns voru í göngu-
ferðinni þegar flest var, að sögn
Berglindar, en er hún gengin liðs
við hjálparsveitina? „Ég er fjórtán
ára og gæti í fyrsta lagi tekið próf
eftir tvö ár þegar ég verð sextán
en pabbi er í sveitinni og því fékk
ég að fara með. Þetta var fyrsta
ferðin mín og mér fannst hún góð
upplifun. Þarna var skemmtilegt
fólk, ég sá margt sem ég hafði ekki
séð áður og vissi ekki að væri til.
Ég veit um fullt af fólki sem fer
ekki út fyrir bæjarmörkin þannig
að mér fannst ég rosalega heppin.“
gun@frettabladid.is
Öslað um óbyggðirnar
Berglind Grímsdóttir fór fyrir skemmstu í sína fyrstu fjallaferð með Hjálparsveit skáta í Kópavogi. Hópur-
inn hreppti úrhellisrigningu og vindhraða upp í tuttugu metra á sekúndu. Henni fannst samt gaman.
Já, það rigndi.Í Eldgjá rýna menn í GPS-punktana og ráða ráðum sínum í
þokunni.
Oddgeir Sæmundsson kannar Syðri-Ófæru við Álftakróka og kemst fljótt að því að
hún er bráðófær. Þá var eina færa leiðin í Hólaskjól.
Hópurinn í Botnum á Fjallabaksleið syðri.
Hvanngil og Fögrufjöll.
„Ég hugsaði um hvað margir krakkar væru að missa af þessu,“ segir Berglind, sem
var í alvöru gönguferð á hálendinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FARFUGLAHEIMILI eru 33 víðs vegar um
landið. Farfuglar eru aðilar að stærstu gistihúsa-
keðju í heimi, Hostelling International. www.
hostel.is
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
MATUR
MATUR