Fréttablaðið - 02.09.2009, Síða 32
20 2. september 2009 MIÐVIKUDAGUR
J. R. R. TOLKIEN LÉST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1973.
„Huglaus er sá sem
kveður þegar vegurinn
myrkvast.“
Tolkien var breskur rithöf-
undur og fræðimaður. Hann
er þekktastur fyrir skáld-
sögur sínar Hringadróttins-
sögu og Hobbitann.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, stjúpfaðir og sonur,
Ágúst Björn Hinriksson
til heimilis að Norðurvangi 34 Hafnarfirði,
sem lést þann 17. ágúst, verður jarðsunginn frá Hafnar-
fjarðarkirkju föstudaginn 4. september kl. 13.00.
Margrét Hildur Steingrímsdóttir
Örn Ingi Ágústsson Hildur Ársælsdóttir
Hinrik Þór Ágústsson Hulda Magnúsdóttir
Íris Tinna Margrétardóttir
Þorsteinn Bjarni Viðarsson
Hinrik V. Jónsson Hulda Magnúsdóttir
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
amma og langamma,
Margrét Þorsteinsdóttir
Sunnuvegi 11,
lést laugardaginn 29. ágúst á Hrafnistu Hafnarfirði.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánu-
daginn 7. september klukkan 13.00.
Björn Ingvarsson
Þorsteinn Björnsson Anna Heiðdal
Björn Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar
og tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Þorsteins Hjaltason
(Glói)
lést á dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn 29. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigríður Steindórsdóttir
Steindór Jónsson Anna Þórný Jónsdóttir
Helgi Vigfús Jónsson Ingibjörg Jónasdóttir
Lára Magnea Jónsdóttir Ólafur Guðmundsson
afabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sólveig Vilhjálmsdóttir
Dvalarheimilinu Kjarnalundi, áður
Víðivöllum 4, Akureyri,
sem lést 25. ágúst sl., verður jarðsungin frá
Höfðakapellu föstudaginn 4. september kl. 13.30.
Vilhjálmur Ingi Árnason
Tryggvi Árnason Björg S. Skarphéðinsdóttir
Ingibjörg Bryndís Árnadóttir
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigríður Anna Magnúsdóttir
Ferjubakka 16, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn
24. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 4. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á HjartaHeill eða önnur líknarfélög.
Hafliði Pétursson
Arnar Hauksson
Vilhelmína Hauksdóttir Þór Ragnarsson
Tómas Reynir Hauksson Silja Ketonen
Haukur Baldvinsson
ömmubörn og langömmubarn.
Okkar innilegustu þakkir til allra sem
sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs sonar, föður, stjúpföður og afa,
Harðar Barðdal
Brúnastöðum 17, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum v/Hringbraut 4. ágúst sl.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameins-
deildar 11E fyrir frábæra umönnun.
Sesselja E. Guðnadóttir Barðdal
Jóhanna I. Barðdal
Sesselja E. Barðdal
Bergþóra Fanney Barðdal
Þórður V. Oddsson Marta E. Guðmundsdóttir
og barnabörn.
MOSAIK
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Samtal um dauðann heitir erindi sem
Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur held-
ur við Háskólann í Reykjavík í hádeg-
inu á morgun. Þar leggur hann út frá
hliðarrannsókn sem varð til í sambandi
við rannsóknarverkefni um ekkla á Ís-
landi sem hann hefur unnið að síðast-
liðin ár.
„Ég legg út frá viðtölum mínum við
sjúklinga með ólæknandi sjúkdóma
annars vegar og við starfsfólk sem
annaðist þá hins vegar en með við-
tölunum var ég að skoða hvaða þetta
fólk var að takast á við,“ segir Bragi,
sem hefur starfað sem sjúkrahúsprest-
ur á Landspítalanum í yfir tuttugu ár
og meðal annars sinnt krabbameins-
sjúkum og eftirfylgd við syrgjendur.
Af viðtölum við sjúklinga að dæma
segir Bragi mikinn mun á því hvernig
kynin takast á við það að standa
frammi fyrir dauðanum. „Konur sýna
áberandi meira frumkvæði til að fara
inn í umræðuna um dauðann en karl-
menn þurfa meiri hvatningu. Þegar til
þess kemur eru þeir þó ekki fráhverfir
umræðunni en þeir virðast síður vita
hvernig þeir eigi að opna hana,“ upp-
lýsir Bragi. Hann segir einnig ljóst að
fólk sé að takast á við mjög ólíka hluti.
„Þeir geta verið tilvistarlegs eðlis en
auk þess hafa margir miklar áhyggj-
ur af fjölskyldunni. Sumir láta síðan í
ljós ótta við kviksetningu en komi slíkt
fyrir er það sett í ákveðinn farveg og
farið yfir málið þannig að ekki þurfi að
óttast.“ Þá segir Bragi suma hrædda
en aðra hlakka til, en hið síðarnefnda
á sérstaklega við um þá sem upplifa
miklar þjáningar.
Hvað starfsfólk sem vinnur með
deyjandi sjúklingum varðar er allur
gangur á því hvort það sé búið að gera
upp við sig sinn eigin dauða og segir
Bragi það hafa komið sér á óvart að
það að annast deyjandi sjúklinga getur
tengst sterkum faglegum þáttum sem
fólk er að skerpa hjá sjálfu sér. En
setur það mark sitt á fólk að annast
deyjandi? „Já, það er ákveðin áminn-
ing um að það sama bíði okkar allra og
forgangsröðun í lífi fólks getur orðið
fyrir áhrifum.“
Í erindinu á morgun veltir Bragi
upp þeirri spurningu hvort líknandi
meðferð feli í sér samtal um dauðann.
„Cecily Saunders, einn helsti frum-
kvöðull líknandi meðferðar, lagði upp
með mikilvægi þess að vera með sjúk-
lingum sem væru að takast á við eigin
yfirvofandi dauða og veita þeim sam-
tal,“ en að sögn Braga benda nýlegar
rannsóknir til þess að þetta geri sig
ekki nægilega vel þar sem starfsfólk-
ið höndli ekki alltaf þær byrðar. „Það
þyrfti því að byggja inn í þjónustuna
meiri bakstuðning við starfsfólk en
ég hugsa að út úr þessari vinnu komi
fræðsluefni,“ segir Bragi.
Fyrirlesturinn, sem er öllum opinn,
fer fram í stofu K-5 og hefst klukkan
11.45. vera@frettabladid.is
BRAGI SKÚLASON: FLYTUR ERINDIÐ SAMTAL UM DAUÐANN
Mikill munur á milli kynja
Þennan dag árið 1845 hófst Heklu-
gos og stóð það fram á vor árið
1846. Þá voru 77 ár frá síðasta gosi
en 102 ár liðu að því næsta.
Hekla er eitt virkasta eldfjall Ís-
lands og hefur hún gosið nítján
sinnum á sögulegum tíma, fyrst
1104 og síðast árið 2000 en þá var
hægt að spá fyrir um gosið fimm-
tán mínútum áður en það hófst.
Eldfjallið, sem er í Rangárvalla-
sýslu, er fremur ungt og er megin-
hluti þess talinn vera yngri en
7.000 ára. Það stendur á fremur
þykkri jarðskorpu þar sem Suður-
landsbrotabeltið og Suðurlands-
gosbeltið mætast. Þarna er því
mikil virkni í jarðskorpunni en
spenna er hlaðin í brotbeltinu og
undir gosbeltinu liggja kvikuhólf
og -þrær.
Fjallið er frábrugðið öðrum ís-
lenskum eldfjöllum að því leyti að
kvikuhólf þess er mun dýpra en
í öðrum fjöllum, eða á um ellefu
kílómetra dýpi í jarðskorpunni.
ÞETTA GERÐIST 2. SEPTEMBER ÁRIÐ 1845
Gos hefst í Heklu
SJÚKRAHÚSPRESTUR Í TVO ÁRATUGI Bragi segir mikilvægt að fólk eigi kost á því að eiga samtal um dauðann. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN