Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.09.2009, Qupperneq 37

Fréttablaðið - 02.09.2009, Qupperneq 37
MIÐVIKUDAGUR 2. september 2009 „Ég er að fara að gera margt í ár, en það er fátt sem ég hlakka meira til en að vera viðstadd- ur þetta festival,“ segir Þorleif- ur Örn Arnarsson um Rómeó og Júlíu á þremur sviðum, litla hátíð Borgarleikhússins í maí. Uppsetn- ing St. Gallen og Þorleifs á verkinu fer þá á svið samhliða metaðsókn- arsýningu Vesturports og marg- verðlaunaðri uppsetningu Oskar- as Korsunovas. „Í þessum stærri löndum eins og Þýskalandi, þar sem ég er að vinna aðallega, er maður vanur því að sjá margar uppsetningar á sama verk- inu. Heima erum við með svo fá leikhús og verk eru leikin með svo löngu millibili að það er ekki hægt að bera sýningarnar að neinu leyti saman. Að vera með svona festival held ég að geti gefið íslenskri leik- húsmenningu ofboðslega mikið. Áherslan færist á sýn listamann- anna á samfélagið í gegnum verk- in frekar en verkin sjálf.“ Þorleifur leikstýrir Eilífri óham- ingju sem á að frumsýna á Litla sviðinu í mars. „Ég var í miklum samræðum við þá í Borgarleikhús- inu út af Eilífri óhamingju á svip- uðum tíma og ég var að setja þetta upp. Þá kviknaði þessi hugmynd hjá þeim, af því að Oskaras er að koma að leikstýra hjá þeim líka.“ Frábærar viðtökur á uppsetningu Þorleifs spilltu án efa ekki fyrir vali Borgarleikhússins. Í sýningunni keyrir hann að eigin sögn upp erótík og léttleika til að „tragedían geti fært áhorf- andanum ástina“. Eru persónur dregnar skýrum dráttum sem og samböndin þeirra á milli á annars auðu sviði. Hjá Litháíska Borgarleikhús- hópnum eru Rómeó og Júlía hins vegar af bakaraættum og verða stóru orðin magnþrungin undir stórbrotinni umgjörð og yfir átök- um um deig, flórsykur og hveiti. Sýningu Vesturports þekkja lands- menn en þar blandar leikhópurinn saman sirkus og leikhúsi við þýð- ingu Hallgríms Helgasonar. - kbs Áherslan á hvern- ig en ekki hvað SLÓ Í GEGN Uppsetning Þorleifs á Rómeó og Júlíu í St. Gallen sló í gegn og kemur nú til Íslands. MYND/FILIPPÍA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.