Fréttablaðið - 14.09.2009, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 14.09.2009, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar Í dag er mánudagurinn 14. sept- ember 2009, 257. dagur ársins. 6.48 13.23 19.57 6.30 13.08 19.44 Opið 07 til 01 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is með ánægju Rödd skynseminnar Notaðu netið! Þú kannt á internetið, er það ekki? Gúglaðu borgina sem þú vilt heimsækja, það er fullt af góðum dílum á netinu. Svo skaltu nota Facebook í annað en að tala um hvað þú er að gera góða hluti í ræktinni. Þú átt örugglega vini á fésinu sem þekkja borgina þína í Evrópu inn og út. Þannig gætirðu jafnvel reddað ódýrri gistingu. Byrjaðu samt á því að fara inn á www.icelandexpress.is, þar finnurðu ódýr fargjöld til Evrópu. Verð frá: 14.900 kr. Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. icelan dexpr ess.is Finnd u ódýra sta flugið á Gerðu rödd skynseminnar að vini þínum á Facebook og fáðu góð sparnaðarráð fyrir ferðalagið! Stjórnmálamenn voru fljótir að stökkva á þá hugmynd að útbúa minnisvarða um Helga Hóseas- son. „Þeir eru mjög margir sem hafa áhuga á þessu. Ég finn fyrir því í samfélaginu að þótt fólk sé ekki endilega sammála öllu sem Helgi sagði, þá ber það virðingu fyrir þeirri staðfestu sem hann sýndi í sinni áralöngu baráttu,“ sagði Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar í borgarstjórn, inni á Vísi. Þá hafði RÚV þegar sagt frá því að margir hefðu skráð sig á síðu inni á Snjáldrinu til að lýsa yfir áhuga sínum á minnisvarða um Helga. ORÐALAGIÐ „endilega sammála öllu“ er skemmtilegt hjá Degi en Helgi barðist fyrir því í nær fjöru- tíu ár að fá skírnarsáttmálann sinn ógildan. Davíð Oddsson, skyrslett- ur og sýklar blönduðust líka inn í baráttuna. Styttur eru minnisvarð- arnir sem íslenskir karlmenn hafa reist hverjir öðrum frá alda öðli. Ingólfur Arnarson fékk styttu en ekki Hallveig, kona hans, og komu þau samt hingað á sama skip- inu. Það eru til fleiri leiðir til að muna eftir fólki en að reisa af því styttu. Í TILFELLI Helga mætti til dæmis skreyta leið 14 sem ekur eftir Langholtsveginum með furðulegu slagorðunum sem stóðu á skiltun- um hans. Þannig gæti boðskapur- inn flust víðar þótt ekki væri nema um nokkurra vikna skeið. Síðan gæti borgin fengið lagahöfund til að semja lag um Helga sem kennt yrði í leikskólum. Dúfur geta ekki kúkað á lög. Margir gengnir borgarbúar eiga skilið að þeirra sé minnst, svo sem Laufey Jakobsdóttir, amman í Grjótaþorpinu. Ekki fékk hún áletr- aða hellu, lágmynd eða beð sér til heiðurs á heimaslóðum sínum en Megas heldur minningu hennar á lofti með því að syngja um hana í Krókódílamanninum. Þar birtist hún sem sá bjargvættur sem hún var í lifanda lífi. EITT er það sem mér finnst fallegt í umræðunni um minnisvarðann hans Helga en það er sú hugmynd að verðlauna einhvern fyrir stað- festu – jafnvel þótt staðfestan hafi ekki komið neinu sérstöku til leið- ar. Fyrir fólkið í landinu yrði minn- isvarðinn þó vafalítið annað og meira en aðeins til minningar um þennan eina mann og staðfestuna miklu. Eftir eitt viðburðaríkasta ár í sögu þjóðarinnar þar sem geng- ið hefur á meiru en nokkurn óraði fyrir grunar mig að fólk vilji fyrst og fremst minnisvarða um þraut- seigjuna sem það hefur nú sjálft þegar sýnt og þarf að sýna eilítið lengur. Mótmælendur Íslands

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.