Fréttablaðið - 14.09.2009, Blaðsíða 8
8 14. september 2009 MÁNUDAGUR
ÚTGÁFA Kynbundið ofbeldi gæti
kostað þjóðina nærri hálfan annan
milljarð króna á ári, samkvæmt
útreikningum Þórdísar Elvu
Þorvaldsdóttur.
Bók Þórdísar, Á mannamáli,
sem fjallar um kynbundið ofbeldi
á Íslandi, kemur út á morgun.
Útreikningana byggir Þórdís
á meðaltali útreikninga á kostn-
aði vegna kynbundins ofbeldis
hjá þremur Evrópuþjóðum. Miðað
er við beinan kostnað ríkisins, til
dæmis vegna dómskerfis og heil-
brigðiskerfis, kostnað brotaþola
sjálfra og vinnuveitenda þeirra.
Er þá ótalinn miski sem erfitt er
að meta til fjár.
Í bók sinni bendir Þórdís á að
þrátt fyrir þennan gífurlega kostn-
að sé vilji stjórnvalda til úrbóta
furðu lítill. Til dæmis virðist
íslensk stjórnvöld enga heildar-
yfirsýn hafa yfir framgang mála
á aðgerðaáætlun vegna ofbeld-
is á heimilum og kynferðislegs
ofbeldis sem gekk í gildi í nóvem-
ber 2006. Í bókinni kemur fram
að við heimildaöflun vegna ritun-
ar hennar hafi Þórdísi gengið illa
að fá upplýsingar um framgang
áætlunarinnar hjá þeim ráðuneyt-
um sem ætlað var að bera ábyrgð
á tilteknum liðum hennar.
Í bók Þórdísar er einnig fjall-
að um kærur og dóma í kynferð-
isbrotamálum og umræðuna sem
fram fer í samfélaginu, þar á
meðal í fjölmiðlum, um kynbundið
ofbeldi.
ÚTSALA
Daiwa kaststangir afsl
Daiwa einhendur afsl
Daiwa rennslisstangir afsl
Daiwa Tvíhendur afsl
Daiwa Spinnhjól afsl
Daiwa fluguhjól afsl
allar aðrar veiðivörur afsl
50%
30%
20-50%
30%
50%
50%
50%
NOREGUR Jens Stoltenberg, leið-
togi norska Verkamannaflokks-
ins, hefur verið forsætisráðherra
meirihlutastjórnar vinstriflokk-
anna í Noregi í heilt kjörtíma-
bil, sem er afrek út af fyrir sig
því áður en sú stjórn tók við árið
2005 hafði meirihlutastjórn ekki
farið með völd þar í landi síðan
1985.
Hin „rauðgræna“ stjórn Verka-
mannaflokksins og Vinstri sósíal-
ista, með þátttöku Miðflokksins,
virðist þó samkvæmt flestum
skoðanakönnunum síðustu daga
varla geta haldið meirihluta á
þingi eftir kosningarnar í dag.
„Þetta sýnir að hvert atkvæði
skiptir máli,“ sagði Stoltenberg
um helgina.
Að minnsta kosti verður mjótt
á mununum og von er á spenn-
andi talningu í kvöld. Fari svo að
stjórnin falli er vandséð hvers
konar stjórnarmynstur verður
mögulegt.
Stærsti stjórnarandstöðuflokk-
urinn er Framfaraflokkurinn,
sem varla getur þó tekið þátt í
meirihlutastjórn vegna þess að
aðrir flokkar geta ekki hugs-
að sér að starfa með honum, að
undanskildum Hægriflokknum
sem þó er tvístígandi.
Norska „járnfrúin“ Siv Jensen
tók við forystu í flokknum árið
2006 af Carl I. Hagen og hefur
áfram haldið uppi merkjum rót-
tækrar einstaklingshyggju og
strangrar innflytjendastefnu.
Flokkurinn hefur jafnt og þétt
bætt við sig fylgi undanfarna
áratugi og nú er svo komið að
þótt aðrir flokkar vilji helst ekki
starfa með honum gæti orðið
nánast útilokað að mynda meiri-
hlutastjórn í landinu án þátttöku
hans.
Kosningabaráttan hefur að
nokkru snúist um hvað gera eigi
við myndarlegan olíusjóð Norð-
manna, sem ríkið hefur safnað í
áratugum saman með tekjum af
olíuvinnslu í Norðursjó.
Stoltenberg hefur verið gagn-
rýndur bæði fyrir að hafa notað
of mikið af þessum sjóði og fyrir
að hafa notað of lítið af honum.
Jensen hefur meðal annars sagt
að hann eigi að verja peningum
úr sjóðnum strax til að fjárfesta
í heilbrigðiskerfi og samgöngum,
frekar en að bíða þangað til hann
sjálfur verður gamall og þarf á
aðstoð að halda.
gudsteinn@frettabladid.is
Búist við tvísýnum
úrslitum í Noregi
Norðmenn kjósa sér nýtt þing í dag. Skoðanakannanir sýna að mjótt verður á
mununum. Stjórn Jens Stoltenberg má ekki missa mikið fylgi til að falla.
Úrslit kosninga 2005 Nýjasta Gallupkönnunin
Rauðgræna stjórnin
Verkamannaflokkurinn 32,7% 32,5%
Sósíalíski vinstriflokkurinn 8,8% 7,2%
Miðflokkurinn 5,4% 6,1%
Stjórnarandstaða hægri flokkanna
Framfaraflokkurinn 22,1% 22,7%
Hægriflokkurinn 14,1% 17,8%
Kristilegi þjóðarflokkurinn 6,8% 5,7%
Frjálslyndir (Venstre) 5,9% 5,2%
LITLAR FYLGISBREYTINGAR
JENS STOLTENBERG Meirihlutastjórn vinstri- og miðflokka Noregs hefur haldið út í
heilt kjörtímabil. NORDICPHOTOS/AFP
JAPAN Meðalaldur japönsku þjóð-
arinnar fer nú ört hækkandi og
eru yfir 40.000 Japanar orðnir
hundrað ára og eldri.
Hefur þessum aldurshópi fjölgað
um tíu prósent á einu ári.
Af þeim sem orðnir eru hundr-
að ára og eldri eru konur í mikl-
um meirihluta, eða 87 prósent,
enda verða japanskar konur
allra elstar í heiminum að með-
altali.
Ástæður fyrir háum aldri hjá
japönsku þjóðinni má rekja til
heilsusamlegs fæðis, góðs heil-
brigðiskerfis og mikils félagslífs
meðal eldri borgara í Japan.
- kg
Ellibylgja austanhafs:
40.000 Japanar
100 ára og eldri
1. Hve margir hafa fengið
svínaflensu á Íslandi?
2. Hvaða íslenski kokkur er nú
í tökum fyrir nýja matreiðslu-
þætti?
3. Hvaða erlendi leikari hefur
tekið að sér hlutverk í nýrri
mynd Valdísar Óskarsdóttur?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 22
BANDARÍKIN Starfsmenn Hvíta
hússins í Washington fullyrða að
björgunarpakkinn sem Banda-
ríkjaþing samþykkti fyrr á árinu
hafi nú þegar skapað 1,1 milljón
nýrra starfa í Bandaríkjunum.
Öldungadeild og fulltrúadeild
Bandaríkjanna samþykkti um
miðjan febrúar aðgerðapakka
Baracks Obama sem metinn
var á tæpa 790 milljarða dala,
eða sem nemur um níutíu þús-
und milljörðum íslenskra króna.
Björgunarpakkanum var ætlað
að skapa um 3,5 milljónir nýrra
starfa.
Timothy Geithner fjármála-
ráðherra segir bandarískan
efnahag hafa verið undir miklum
þrýstingi en nú sé farið að draga
úr samdrætti.
Starfsmenn Hvíta hússins:
Segja aðgerðir
hafa skapað
milljón starfa
SKÁK Skáksveit Salaskóla í Kópa-
vogi hefur tryggt sér Norður-
landameistaratitil grunnskóla í
skák þrátt fyrir að ein umferð sé
eftir í keppninni. Sveitin hefur
unnið allar viðureignir sínar og á
nú aðeins eftir að keppa við aðra
sveit heimamanna.
„Afrek þessarar sveitar
eru einstök en hún skartar nú
Íslandsmeistaratitli, Norður-
landameistaratitli og heims-
meistaratitli. Ólíklegt er að
nokkur skáksveit grunnskóla
hafi unnið þvílík afrek,“ segir á
heimasíðu Salaskóla.
Í sveitinni eru Patrekur Maron
Magnússon, Jóhanna Björg
Jóhannsdóttir, Páll Andrason,
Eiríkur Brynjarsson og Guð-
mundur Kristinn Lee.
Norðurlandamótið í skák:
Salaskóli fagnar
Norðurlanda-
meistaratitli
MENNING Leiksýningin Frida …
viva la vida verður að öllum lík-
indum sýnd í Mexíkó á næsta ári.
Edgardo Bermejo Mora, menning-
arfulltrúi Mexíkó á Norðurlöndun-
um, var viðstaddur frumsýningu
verksins á föstudag og varð svo
hrifinn að hann ætlar að vinna að
því að koma sýningunni á leiklist-
arhátíðir í Mexíkó. Þá hefur hann
boðist til þess að finna þýðanda til
að snara verkinu yfir á spænsku.
Atli Rafn Sigurðarson, leik-
stjóri sýningarinnar, hitti Mora
í gær. „Hann kallaði sýninguna
mexíkóskustu leiksýningu sem
hann hefði séð utan heimalands-
ins og taldi hana eiga erindi við
Mexíkóbúa. Mora er velmetinn
rithöfundur og þar að auki menn-
ingarfulltrúi sem vinnur við að
velja verk inn á sýningar hinna
ýmsu hátíða, svo við erum mjög
ánægð með þetta,“ segir Atli að
vonum stoltur, enda ekki einung-
is leikstjóri verksins heldur líka
eiginmaður höfundar og aðal-
leikkonu verksins, Brynhildar
Guðjónsdóttur.
Atla leiðist ekki tilhugsunin að
sýna í Mexíkó. „Það verður súr-
realískt að leika þetta fólk, Fridu
og Diego, fyrir Mexíkóa. Það má
líkja þessu við það ef mexíkóskur
leikhópur sýndi víkingaleikrit hér
á landi.“ - hhs
Leiksýningin Frida … viva la vida sögð sú „mexíkóskasta utan Mexíkó“:
Boðið að sýna Fridu í Mexíkó
FRIDA OG DIEGO Menningarfulltrúi
Mexíkó á Norðurlöndunum hreifst af
sýningunni Frida … viva la vida.
MYND/ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Ný bók um kynbundið ofbeldi á Íslandi:
Ofbeldið er þjóðinni dýrkeypt
Þórdís Elva
Þorvalds-
dóttir
Samkvæmt
bók hennar
gæti kyn-
bundið
ofbeldi kostað
þjóðina nærri
hálfan annan
milljarð.
VEISTU SVARIÐ?