Fréttablaðið - 14.09.2009, Blaðsíða 14
Púðar og pullur eru atriði númer
eitt, tvö og þrjú á haustheimilinu.
Efnismiklir púðar eru þar betri,
jafnvel úr einhvers konar loðnu
efni, og þeir sem hafa haft glað-
legri litasamsetningu á púðum yfir
sumartímann ættu að skipta um
púðaver yfir vetrartímann (hægt
að fá ódýr til að mynda í Ikea).
Jarðlitir og hvítir tónar (ekki
skjannahvítir) koma sterkir inn.
Skinn og ábreiður hvers konar
geta ekki aðeins komið heimilis-
fólki vel á köldum kvöldum held-
ur er líka hægt að lífga upp á sóf-
ann og láta skinn hylja stóran
hluta sófasettsins. Hvítlist selur
til að mynda falleg skinn og þar
má finna alls kyns stærðir og
gerðir. Dyggðateppið fallega, sem
meðal annars er selt í minjabúð
Þjóðminjasafnsins, er líka
freisting sem er vel til
þess gerð að falla fyrir
áður en vetur gengur í
garð og setur fallegan
svip á stofuna.
Gólfmottur, rýja-
teppi og þykk teppi
undir sófaborðið er
afspyrnu gott ráð á
haustin. Ikea hefur um
langt skeið selt rýjamottur sem
kosta ekki of mikið.
Kerti, í haustlitunum, sinneps-
gul, fjólublá, dumbrauð og brún-
leit, í mismunandi stærðum og
gerðum eru upplögð á sófaborð
haustsins. Tiger er oft með kerti
í fallegum litum sem kosta ekki
mikið og svo má finna þykk kubbs-
laga kerti víða í blómabúðum.
Viðarhúsgögn, hvort sem er í
formi lítils hliðarborðs eða kolls,
geta gert stórkostlega hluti fyrir
stofuna. Ekki þarf að kosta miklu
til – tekkhúsgögn má oft finna á
ágætis verði í Góða hirðinum og
nytjasölum eða hreinlega úti í bíl-
skúrum skyldfólks. Í leiðinni má
athuga hvort ekki finnist gamall
plötuspilari þar líka eða annað
góss sem gefur. juliam@frettabladid.is
Heimilið dúðað
Um leið og við förum í gegnum forstofuskápinn og tökum til vett-
lingana er líka nauðsynlegt að taka á móti haustinu í stofunni með
værðarvoðum, kertum í haustlitunum, púðum og gólfmottum.
Erika er blóm haustsins og dásamlega fagurt á stofuborðinu.
Tekk fer vel við púða og kerti
í stofunni og ef ekki er pláss
fyrir fleiri húsgögn er um að
gera að næla sér í bolla eða
annað smálegt úr þeim viði
eða öðrum. Þorsteinn Berg-
mann og Fríða frænka eiga
til að mynda alltaf eitthvað
úr tekki.
Þetta er líkast til hin fullkomna hauststofa – samsett af ótal hlutum úr þykkum
efnum, viðarhúsgögnum, kertaljósum og haustlitum. NORDICPHOTO/GETTY
FJÓLUBLÁI LITURINN er allsráðandi í tískuvöru-
verslunum þessa dagana en þykir ekki síður töff á heimili.
Hann fer vel við hvítt og færir haustið heim í stofu.
Boðið verður upp á mánaðarlangt námskeið og í framhaldi af því verða
skipulögð tímabundin störf á byggingarstað eða teiknistofu í tvo til fimm
mánuði. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá
Vinnumálastofnun og þeir munu fá greidd taxtalaun vegna tímabundinnar
ráðningar að loknu undirbúningsnámskeiðinu. Áhugasömum er boðið til
kynningarfundar þriðjudaginn 15. september klukkan 13.30 á þjónustuskrif-
stofu Vinnumálastofnunnar að Engjateigi 11, á 2. hæð.
Völundarverk er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar, Vinnumálastofnunar
(VMST), Minjasafns Reykjavíkur og Iðunnar – fræðsluseturs.
Betri þekking á viðhaldi og endurgerð sögufrægra gamalla húsa og mann-
virkja í Reykjavík er megintilgangur þess. Með verkefninu geta skapast störf,
samhliða því að auka á menntun og reynslu fagstétta á borð við arkitekta,
verk-/tæknifræðinga og iðnaðarmenn. - gun
Vilja bjarga störfum, handverki og húsum
VÖLUNDARVERK LEITAR NÚ AÐ HÚSASMIÐUM OG ARKITEKTUM TIL AÐ TAKA
ÞÁTT Í ENDURGERÐ ELDRI HÚSA Í REYKJAVÍK.
Fagurt handbragð. Þetta uppgerða hús við Klapparstíg fékk viðurkenningu fegr-
unarnefndar Reykjavíkur fyrir þremur árum.
smur- bón og dekkjaþjónusta
sætúni 4 • sími 562 6066
BREMSUVIÐGERÐIR
BREMSUKLOSSAR
SPINDILKÚLUR
ALLAR PERUR
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
RAFGEYMAÞJÓNUSTA
OLÍS SMURSTÖÐ
BÓN OG ÞVOTTUR
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17
Ókeypis námskeið og ráðgjöf
Mánudagurinn 14. september
Þriðjudagurinn 15. september
Miðvikudagurinn 16. september
Fimmtudagurinn 17. september
Qi – Gong - Viðar H. Eiríksson leiðir æfingar sem hjálpa
fólki að afla, varðveita og dreifa orku um líkamann.
Tími: 12.00-13.00.
Gönguhópur - Við klæðum okkur eftir veðri og göng-
um rösklega út frá Rauðakrosshúsinu. Tími: 13.00 -14.00.
Afneitun og réttlætingar – Ráðgjafar Lausnarinnar
fjalla um áhrifin á fjölskyldulífið. Boðið er upp á einstak-
lingsráðgjöf að fyrirlestri loknum. Tími: 13.30-14.30.
Kvikmyndirnar og lífið – Kvikmyndir geta nýst okkur
sem efniviður og uppspretta umræðna um stóru spurning-
arnar, s.s. Hver erum við? Fyrir hvað stöndum við?
Tími: 15.00-16.30.
Grunnatriði í tölvunotkun - Myndir - Þriðji hluti af
fjórum fyrir algera byrjendur. Tími: 12.30-14.30.
Kreppan: Er eitthvað jákvætt við hana?- Opnar
umræður. Tími: 12.30-13.30.
Föndur, skrapp myndaalbúm - Lærðu að búa til
skrautleg albúm fyrir uppáhalds myndirnar þínar. Gott
er að hafa skæri meðferðis. Tími: 13.00-15.00.
Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00.
Ayurveda heilsufræði – Lifir þú í takt við þína náttúru-
legu líkamsgerð? Tími: 12.30-13.30.
Ísgerð – Bragðgott og hressandi námskeið.
Tími: 13.45-15.15.
Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífið af hlátri
og gleði? Tími: 15.30-16.30.
Bókaklúbbur - Spjallað verður um bókina Nafnlausa
vegi eftir Einar Má Guðmundsson. Tími: 14.00-15.00.
Baujan sjálfstyrking- Þóra félagsliði kennir slökunar-
öndun og tilfinningavinnu til sjálfshjálpar.
Tími: 15.30-16.30.
Föstudagurinn 18. september
Tölvuaðstoð - Fáðu persónulega aðstoð!
Tími: 13.30-15.30.
Við deyjum öll úr stressi - Eyþór frá Þekkingamiðlun
skoðar á léttan máta hvernig stressuð þjóð getur
brugðist við og slakað á. Tími:14.30-15.30.
Facebook fyrir byrjendur - Langar þig að skilja hvað
allir eru að tala um? Tími: 12.15-14.00.
Sálrænn stuðningur - Fjallað er um áhrif alvarlegra
atburða á andlega líðan fólks. Tími: 13.00-14.30.
Prjónahópur - Lærðu og kenndu öðrum!
Tími: 13.00-15.00.
Minnistækni - Kolbeinn frá Betra námi kennir einfaldar
en gagnlegar aðferðir til að muna ótrúlegustu hluti.
Tími:15.00 -16.00.
Allir velkomnir!
Náðu fram því besta- Dale Carnegie - Skoðum
áskoranir framundan, ræðum innblástur og hvatningu
og hvernig samskiptareglur hjálpa okkur að ná fram því
besta. Tími: 12.30 -14.00.
Einkatímar í söng – fullt. Umsjón: Hulda Björg Víðisdóttir,
söngkennari. Tími: 12.00 – 14.00.