Fréttablaðið - 14.09.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 14.09.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Ég eignaðist ísskápinn þegar amma fór á elliheimili árið 2001. Ég var afskaplega ánægð með það, bæði var ekkert að skápnum og svo átti ég sterka minningu tengda honum. Amma átti nefnilega í Westi Hlíf segir straumlínulag ísskápsins sem vísi til sjötta áratug-arins höfða til sín. „Frá því tíma-bili er líka ímynd þessara amerískufyrirmyndarheimil tilbúin til þess að láta skápinn fara. Fjölskyldan var þá flutt í glænýja íbúð með nýrri eldhúsinn ésem Gersemar í ísskápnumÞegar Hlíf Sævarsdóttir var lítil stelpa fannst henni það hin mesta upplifun að fara til ömmu sinnar og fá malt eða appelsín í flösku úr Westinghouse-ísskápnum. Seinna á ævinni eignaðist hún einnig ísskápinn. SJÓVÁ FORVARNAHÚS hefur í samstarfi við IKEA innréttað tvö örugg heimili í Forvarnahúsinu að Kringlunni 3. Annars vegar heimili fyrir eldra fólk og hins vegar fyrir barnafólk. Almenningi gefst kostur á að koma og skoða heimilin undir leiðsögn sérfræðings Forvarnahússins en nauðsynlegt er að skrá sig í slíka heimsókn með því að senda póst á sjova@sjova.is. Hlíf Sævarsdóttir við hliðina á Westinghouse-ísskápnum, sem hún notar sem búr heimilisins og kertageymslu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MÁNUDAGUR 14. september 2009 — 217. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG FÓLK Íslensku þáttaraðirnar Hamarinn og Fangavaktin verða sýndar á svipuðum tíma hvor á sinni sjónvarpsstöðinni. Báðar verða þær á sunnudagskvöldum, Hamarinn byrjar klukkan 20.10 á RÚV og Fangavaktin hefst tut- tugu mínútum seinna á Stöð 2. Hamarinn fer í loftið 4. október en Fangavaktin hefur göngu sína 27. september. Þetta er annað árið í röð sem íslenskt leikið efni rekst á en í fyrra var dagskrár- tíma Svartra engla hnikað til á RÚV svo að áhorfendur gætu horft á þann þátt og Dagvaktina á Stöð 2. Í ár vill hvorug sjónvarpsstöðin láta undan. - fgg / sjá síðu 22 Hamarinn og Fangavaktin: Íslenskt efni rekst aftur á UNNUR BIRNA VILHJÁLMSDÓTTIR Fórnarlamb netníðings Óprúttinn aðili í hennar nafni á Facebook FÓLK 22 Óvæntur smellur Barði Guðmundsson flugþjónn gerði stutt- mynd sem hefur feng- ið góðar viðtökur. FÓLK 22 Útvegar gas á kútana Fyrirtækið ÍSAGA var stofnað árið 1919 og fagnar því níutíu ára afmæli um þessar mundir. TÍMAMÓT 14 HLÍF SÆVARSDÓTTIR Notar gamlan Westing- house-ísskáp sem búr • heimili Í MIÐJU BLAÐSINS ATVINNULEYSI 345 háskólastúdentar í lánshæfu námi voru skráðir atvinnulausir á síðasta skólaári og þáðu atvinnuleysisbætur sem þeir áttu ekki rétt á. Þetta kom í ljós þegar nemendaskrár háskólanna voru keyrðar saman við upplýsing- ar um þá sem þegið hafa atvinnu- leysisbætur. Talið er að nemendurnir hafi þegið samtals um það bil 300 millj- ónir króna úr Atvinnuleysistrygg- ingarsjóði á síðasta ári. Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður félagsmálaráð- herra, segir að ekki liggi fyrir nákvæmar tölur, en 300 milljón- ir eru taldar nærri lagi. Verið er að vinna úr upplýsingum um stöðu háskólastúdentanna gagnvart Atvinnuleysistryggingarsjóði. Sumir úr hópnum fengu tekju- tengdar bætur, sem atvinnulausir fá fyrstu mánuðina eftir atvinnu- missi. Aðrir fengu almennar atvinnuleysisbætur, sem eru 149.000 krónur á mánuði. Í þriðja hópnum eru þeir sem skráðu sig sem atvinnulausa náms- menn í fyrrasumar en héldu áfram að skrá sig atvinnulausa eftir að þeir fóru aftur í nám í fyrrahaust. Þeir fengu atvinnuleysisbætur, sem eru að meðaltali 110.000 krónur á mánuði fyrir þennan hóp náms- manna sem hafa ekki öðlast full réttindi á vinnumarkaði. Grunn- framfærsla námslána samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra náms- manna var hins vegar 100.600 krónur á mánuði. Nemendaskrár og skrár Atvinnu- leysistryggingarsjóðs eru nú að fullu samkeyrðar og á það að koma í veg fyrir að svona mál endurtaki sig. Nokkrir dagar eru síðan félags- málaráðherra og menntamála- ráðherra kynntu breytingar sem fela í sér að réttur námsmanna til atvinnuleysisbóta á sumrin er afnuminn. Samhliða voru frítekju- mörk þeirra sem fara í lánshæft nám eftir atvinnumissi hækkuð, til þess að auðvelda fólki að hefja lánshæft nám frekar en að skrá sig atvinnulaust. - pg Háskólanemar sviku út 300 milljóna bætur Á fjórða hundrað háskólanema skráðu sig ranglega atvinnulausa á meðan þeir stunduðu nám á síðasta skólaári. Svikin eru talin nema um 300 milljónum króna. Staða nemendanna gagnvart Atvinnuleysistryggingarsjóði er í skoðun. Í ÞUNGUM ÞÖNKUM Síðustu keppendurnir á fyrsta Íslandsmótinu í póker sátu yfir spilunum í gær. Sigurvegarinn átti von á 1,6 milljónum króna í verðlaun. Logi Unnarsson Jónsson lenti í þriðja sæti en þeir Axel Einarsson og Matthías Vilhjálmsson börðust um fyrsta sætið. Þeir áttu jafnmikla spilapeninga eftir þegar blaðið fór í prentun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON VÍÐA VINDASAMT Í dag verða sunnan 8-15 m/s, hvassast vestan til. Rigning eða skúrir, einkum síð- degis en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 10-18 stig að deginum, hlýjast norðaustan til. VEÐUR 4 13 12 16 16 14 FÓLK „Þetta hefur gengið eins og lygasögu. Pókerinn er orðinn gríðarlega vinsæll hérna á Íslandi og það komust færri að en vildu,“ segir Jóhann Ólafur Schröder, einn skipuleggjenda Íslandsmótsins í póker, sem haldið var um helgina. „Ég veit ekki nákvæmlega hversu mörgum þurfti að vísa frá en sem dæmi get ég nefnt að það voru yfir þrjátíu ósvöruð símtöl á símanum mínum kvöld- ið áður en mótið hófst. Ég geri ráð fyrir að flest þeirra hafi haft að gera með mótið,“ segir Jóhann. Hann nefnir einnig að fullur salur af fólki hafi fylgst með síðari degi mótsins á Hilton Nordica-hótelinu. Fyrir mót höfðu aðstandendur boðið lögreglu að líta við til að ganga úr skugga um að allt færi eftir settum reglum. „Við höfum verið í góðu samstarfi við yfirvöld og lögreglu, en löggurnar létu ekkert sjá sig. Enda flokkast þetta ekki undir fjárhættuspil heldur svokallaðan móta-póker, sem er allt annars eðlis,“ segir Jóhann. Stefnt er á að endurtaka leikinn að ári. - kg Alls tóku 190 þátt í fyrsta Íslandsmeistaramótinu í póker um helgina: Lögreglan mætti ekki á pókermótið Stærstu málin Það er líklega stærsti árangur Obama í embætti að sópa stór- málunum undir teppið og beina sjónum manna að þeim minni, skrifar Jón Ormur Halldórsson. UMRÆÐAN 12 LÖGREGLUMÁL „Ég gerði ráð fyrir að hann væri nýdottinn út í og hefði kannski rekið hausinn í og rotast, þannig að mín fyrstu viðbrögð voru að hendast út í,“ segir Hrafn Davíð Hrafns- son, tvítugur starfsmaður í Kolaportinu, sem í gærmorg- un reyndi að bjarga karl- manni upp úr Reykjavíkurhöfn. Maðurinn sem Hrafn hugðist bjarga var látinn þegar lögreglu bar að. Hinn látni var á milli tvítugs og þrítugs, að sögn lög- reglu sem hafði seint í gærkvöld ekki enn tekist að bera kennsl á manninn og óskar eftir aðstoð frá almenningi. Maðurinn var um 170 senti- metrar á hæð, dökkkærður og sólbrúnn. Hann var í gulum og bláum bol, svörtum skóm með hvítum röndum og hvítri úlpu með gráum ermum. - gar / sjá síðu 4 Hetjudáð er maður lést: Stökk í sjóinn til að bjarga HRAFN DAVÍÐ HRAFNSSON Breiðablik og Fram unnu Undanúrslitin í VISA- bikar karla fóru fram um helgina. ÍÞRÓTTIR 17

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.