Fréttablaðið - 18.09.2009, Side 2
2 18. september 2009 FÖSTUDAGUR
H
ÍV
T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
9
-
1
4
9
2
AÐEINS
1% FITA
20%
ÁVEXTIR
N Ý R J Ó G Ú R T D R Y K K U RM S . I S
NÝR JÓ
GÚRT
DRYKK
UR
3%
HVÍTUR
SYKUR
AÐEINS ENGINSÆTUEFNI
SAMGÖNGUR „Það kostar okkur
fjóra milljarða króna á ári að
reisa fimmtán þúsund manna
byggð austast í borginni frekar
en í Vatnsmýri,“ segir Gísli Mart-
einn Baldursson í ítarlegu viðtali
sem birtist í helgarútgáfu Frétta-
blaðsins.
Tíminn sem borgarbúar verja í
bílum sínum ásamt bensínkostnaði
er metinn á þrjá milljarða króna á
ári og við það bætist rekstur flug-
vallarins sem kostar hátt í millj-
arð á ári. „Samt er þetta tabú í
umræðunni um sparnað og að gera
borgina hagkvæmari,“ segir Gísli
Marteinn.
Gísli Marteinn segist vilja draga
línu austan við þau góðu hverfi
sem fyrir eru austast í borginni,
Grafarvog, Grafarholt og Úlfars-
fell. „Þetta eru flott og góð hverfi,
við ætlum að standa vörð um þau
en ekki eyðileggja þau með því að
setja tugi þúsunda manna aust-
an við þau og gera þau með því að
gegnumaksturshverfum.“
Í viðtalinu ræðir Gísli einnig um
hugmyndir sínar um þróun borga
og þróun þeirra og umhverfis- og
samgöngumál. - ss
Gísli Marteinn Baldursson í viðtali við helgarútgáfu Fréttablaðsins:
Flugvöllurinn í Vatnsmýri dýr
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON Hann
segir það kosta fjóra milljarða á ári að
reisa fimmtán þúsund manna byggð
austast í borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NEYTENDUR „Þetta var eiginlega
fullmikið fyrir okkur,“ segir Skarp-
héðinn Sigtryggsson sem keypti
Portúgalsferð fyrir fjölskylduna
með beinu flugi frá Akureyri en
þurfti samt að fljúga um Keflavík
og millilenda í Berlín á heimleið-
inni.
„Ég er sjálfur kvíðasjúklingur,
konan er öryrki og með mikla slit-
gigt í hnjám og drengurinn er ein-
hverfur og flogaveikur svo okkur
leist mjög vel á að geta farið í
beinu flugi héðan frá Akureyri. Við
keyptum ferðina með góðum fyrir-
vara en um það bil tveimur vikum
fyrir brottför heyrðum við það af
tilviljun úti í bæ að hætt hefði verið
að fljúga frá Akureyri og farið væri
frá Keflavík í staðinn,“ segir Skarp-
héðinn sem, ásamt eigin konu sinni
og sextán ára syni, keypti tveggja
vikna ferð með Úrvali-Útsýn til
Portúgal í beinu flugi frá Akureyri
í sumar.
Vegna fyrrgreindra aðstæðna
fjölskyldunnar var úr vöndu að
ráða. „Við hefðum sennilega hætt
við ferðina en dóttir okkar, sem
býr í Danmörku, var búin að borga
ferð til þess að hitta okkur í Portú-
gal þannig að við létum okkur hafa
það og keyrðum til Keflavíkur,“
lýsir Skarphéðinn sem tekur fram
að Úrval-Útsýn hafi þó boðist til að
greiða flug fyrir fjölskylduna til og
frá Akureyri.
Að sögn Skarphéðins var dvölin
í Portúgal ánægjuleg. En þar ytra
bárust næstu ótíðindi. „Þá fréttum
við það niðri á Íslendingabar að það
yrði ekki beint flug frá Portúgal til
Íslands. Dvölin var svo lengd um
eina nótt og millilent í Berlín þar
sem var sjö tíma bið,“ segir Skarp-
héðinn sem kveður ferðalagið frá
því hótelið var yfirgefið í Portúgal
og þar til komið var til Íslands hafa
tekið um tuttugu klukkutíma.
„Við vorum komin á hótel í
Reykjavík um miðja nótt og orðin
sár enda var þetta alls ekki ferðin
sem við keyptum,“ segir Skarphéð-
inn sem skrifaði Úrvali-Útsýn bréf
eftir heimkomuna.
„Ég tíundaði það í bréfinu að fólk
er misjafnlega í stakk búið til að
takast á við svona ferðalög. Inni í
þessu er líka einn dagur í vinnutap
fyrir utan að láta fara svona með
sig. Ég setti ekki fram ákveðnar
kröfur en fyndist það ekki mikið
þótt við fengjum helmings afslátt
af ferðinni. En allt sem ég fékk var
mjög stuttaralegt bréf um að þeir
myndu borga fyrir okkur matinn í
Berlín ef við framvísuðum reikn-
ingi,“ segir Skarphéðinn óánægð-
ur.
Tinna Guðmundsdóttir hjá
Úrvali-Útsýn segir ferðaskrifstof-
una hafa verið í rétti til að gera
óhjákvæmilegar breytingarnar á
fluginu. Allir hafi átt þess kost að
hætta við ferðina.
„Ferðaskrifstofan spyr ekki um
heilsufar fólks og við þekkjum ekki
aðstæður allra okkar farþega,“
segir Tinna sem kveður ekki ætl-
unina að bæta fjölskyldunni frekar
upp óþægindin. „Við bendum fólki á
að leita til Neytendasamtakanna ef
það er ósátt við okkar niðurstöðu.“
gar@frettabladid.is
Beint Portúgalsflug
varð að 20 tíma kvöl
Fjölskylda sem keypti beint flug frá Akureyri til Portúgals endaði á að fljúga
um Keflavík og millilenda í Berlín að auki. Fullmikið fyrir okkur, segir faðirinn
sem er kvíðasjúklingur, kona hans gigtveik og sonurinn einhverfur táningur.
FJÖLSKYLDA Í FRÍI Allt lék í lyndi hjá Skarphéðni Sigtryggssyni og fjölskyldu úti í
Portúgal en ferðirnar til og frá landinu voru mun erfiðari en þau ætluðu.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Magnús, er mikil gerjun í
þessum geira?
„Já, já, þetta gerjast allt mjög vel.“
Víngerð hefur tekið kipp á Íslandi í
kreppunni. Magnús Axelsson er einn eig-
enda víngerðarverslunarinnar Ámunnar.
HEIMILD/HAGSTOFA ÍSLANDS
Breyting á vísitölu neysluverðs milli ára
Írl
an
d
Ja
pa
n
Ba
nd
ar
ík
in
Po
rtú
ga
l
Sv
is
s
Ký
pu
r
Sp
án
n
Ei
st
la
nd
Be
lg
ía
Lú
xe
m
bu
rg
Fr
ak
kl
an
d
Ev
ru
sv
æ
ði
ð
Þý
sk
al
an
d
H
ol
la
nd
Té
kk
la
nd
Vi
ðs
ki
pt
al
ön
d
Sl
óv
en
ía
Íta
lía
Au
st
ur
rík
i
Sl
óv
ak
ía
EE
S
ES
B-
rík
in
D
an
m
ör
k
M
al
ta
G
rik
kl
an
d
Fi
nn
la
nd
Bú
lg
ar
ía
Le
ttl
an
d
Br
et
la
nd
N
or
eg
ur
Sv
íþ
jó
ð
Li
th
áe
n
Pó
lla
nd
Rú
m
en
ía
U
ng
ve
rja
la
nd
Ís
la
nd
15%
12%
9%
6%
3%
0%
-3%
Ísland 16%
EES 0,6%Evrusvæðið -0,2%
Noregur 1,5%
Írland -2,4%
EFNAHAGSMÁL Samræmd vísitala
neysluverðs, eins og Eurostat, töl-
fræðistofnun Evrópusambands-
ins reiknar hana, hefur hækkað
um sextán prósent á milli ára hér-
lendis. Ísland sker sig verulega úr
þeim hópi ríkja sem Eurostat kann-
ar. Næst á eftir Íslandi kemur Ung-
verjaland með fimm prósenta verð-
bólgu.
Lægst er verðbólgan á Írlandi,
en þar er raunar 2,4 prósenta verð-
hjöðnun.
Í Hagsjá Landsbankans segir að
munurinn á samræmdri vísitölu
Eurostat og vísitölu neysluverðs
eins og Hagstofa Íslands birtir,
sé sá að Eurostat taki ekki tillit
til útgjalda vegna eigin húsnæðis,
en taki hins vegar tillit til útgjalda
ferðamanna. Í nýjustu skýrslu
sinni mæli OECD með því að verð-
bólgumarkmið Seðlabankans miði
við samræmdu vísitöluna. - sh
Samræmd vísitala neysluverðs hækkaði um 16 prósent á Íslandi milli ára:
Langmest verðbólga á Íslandi
BANDARÍKIN Nettengslasíðan Face-
book hefur nú skilað hagnaði í
fyrsta sinn síðan til hennar var
stofnað árið 2004.
Mark Zuckerberg, hugmynda-
smiðurinn að baki síðunni, fagnar
því jafnframt að um þessar mund-
ir eru notendur síðunnar um ger-
vallan heim orðnir 300 milljónir.
Notendurnir voru um 200 millj-
ónir í mars og þykir einstakur
árangur að notendum hafi fjölgað
um 100 milljónir á hálfu ári.
300 milljónir nota Facebook:
Skilar hagnaði í
fyrsta sinn
VINSÆL SÍÐA Notendum Facebook fjölg-
aði um 100 milljónir á hálfu ári.
FÓLK Sveinn Friðfinnsson, sem
grunaður er um að hafa haft
milljarða af sænskum sparifjár-
eigendum með pýramídasvindli,
er umdeildur maður í heimabæ
sínum Grundarfirði.
Einn Grundfirðingur sem
Fréttablaðið ræddi við í gær
sagði marga á staðnum hafa
brennt sig á því að eiga í viðskipt-
um við Svein. Hann vorkenndi í
raun engum sem væri svo vitlaus
að láta Svein svindla á sér, svo
vont orð færi af honum.
Annar taldi málið uppblásið,
Sveinn væri ekki alslæmur þótt
einhverjum væri í nöp við hann
vegna þess að hann hefði ekki
staðið við gerða samninga.
Lögreglan í Svíþjóð rannsak-
ar nú meint svik Sveins, en hann
er þó ekki eftirlýstur. Ekki hefur
náðst í Svein síðustu daga. - sh
Meintur svikahrappur:
Umdeildur á
Grundarfirði
ÁSTRALÍA Ástralar eru slegnir yfir
máli föður í Viktoríu-fylki sem
hélt dóttur sinni fanginni frá ell-
efu ára aldri og misnotaði hana
kynferðislega nánast daglega í 30
ár. Nágrannar feðginanna kváð-
ust hafa haft grunsemdir en ekki
viljað valda vandræðum.
Móðir stúlkunnar bjó allan
tímann á heimilinu en heldur því
fram að hana hafi aldrei grunað
neitt. Stúlkan ól föður sínum fjög-
ur börn á tímabilinu og komst
upp um málið þegar hún vildi
aldrei gefa upp nafn föður þeirra
á fæðingardeildinni.
Margir hafa krafist þess að
félagsmálaráðherra Ástralíu segi
af sér vegna málsins.
Ástralskur níðingur tekinn:
Misnotaði dótt-
ur sína í 30 ár
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði kannabisræktun í húsi á
Kjalarnesi um miðjan dag í fyrradag.
Við húsleit fundust um fimmtíu
kannabisplöntur.
LÖGREGLUMÁL
Tóku kannabis á Kjalarnesi
VIÐSKIPTI Lokaverð á hverjum hlut
í deCODE í kauphöllinni hefur
verið undir einum dollara síðustu
þrjátíu daga. Vegna þessa hefur
deCODE nú fengið viðvörun frá
Nasdaq fyrir að uppfylla ekki
skilyrði um lágmarksverð.
Í tilkynningu frá deCODE
segir að samkvæmt reglum Nas-
daq hafi fyrirtækið 180 daga til
að ná settu lágmarki. Það þýðir
að fyrir 15. mars á næsta ári,
þarf verð á hlut í dagslok að hafa
farið yfir einn dal tíu daga í röð.
Í tilkynningunni segir jafn-
framt að þetta komi ekki til með
að hafa nokkur áhrif á skráningu
hlutabréfa í deCODE. - sh
Hlutabréf kosta of lítið:
Nasdaq varar
deCODE við
UTANRÍKISMÁL Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra fundaði í
gærkvöldi með Miguel Angel Mor-
atinos, utanríkisráðherra Spánar.
Fundurinn fór fram í Stjórnar-
ráðinu.
Í tilkynningu frá forsætisráðu-
neytinu segir að ráðherrarnir hafi
rætt tvíhliða samskipti Íslands
og Spánar, sem eiga sér langa
sögu, og þörfina á frekari sam-
ræðu á milli stjórnvalda í löndun-
um, meðal annars um hagsmuni í
sjávarútvegsmálum.
Þá var einnig rætt um væntan-
legar áherslur Spánverja í forsæti
Evrópusambandsins, sem þeir
taka við um næstu áramót. - sh
Utanríkisráðherra Spánar:
Ræddi áherslur
í forsæti ESB
SPURNING DAGSINS